Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 66

Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 66
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 Gegn krabbameini í körlum Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ N IC 13 01 02 Í mars renna 100 kr. af hverjum seldum pakka af Nicotinell beint til átaksins Mottumars. Mundu að það eru bláu pakkarnir frá Nicotinell sem styrkja gott málefni. 100 KRÓNUR KÖRFUBOLTI Úrsl ita keppni körfuboltans nálgast óðum enda bara tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Það er samt langt frá því að vera ljóst hvaða lið mætast í átta liða úrslitunum og ýmislegt getur breyst á næstum 100 klukkutímum. Það sem flækir málið talsvert við útreikningana er að innbyrðis viðureignir viðkomandi liða ráða sætaröðinni, verði þau jöfn, og það er líka allt eins líklegt að fleiri en tvö lið verði jöfn að stigum. Í slíkri stöðu verður til ný tafla eins og um lítið mót væri að ræða hjá viðkomandi liðum. Það skiptir því mörg liðanna miklu máli hvaða lið verða jöfn þeim að stigum ætli þau að njóta góðs af sigrum úr innbyrðis leikjum. Fréttablaðið hefur rýnt í stigatöfluna og úrslit vetrarins til þess að útskýra betur hvað er í raun undir í kvöld og á sunnudagskvöldið. Grindvíkingar ættu þó að eiga deildarmeistaratitilinn vísan annað árið í röð enda með tveggja stiga forystu á Snæfell og með betri innbyrðis stöðu. Það er mun meiri spennan í baráttunni um heimavallarréttinn í úrslitakeppninni en Þór, Stjarnan og Keflavík verða þar í eldlínunni. Snæfell verður hins vegar alltaf meðal fjögurra efstu liðanna þökk sé stigum og innbyrðis stöðu. Njarðvíkingar hafa unnið fimm leiki í röð og gætu vissulega hækkað sig úr sjötta sætinu með sigri á Keflavík enda með betri innbyrðis stöðu gegn nágrönnunum. Keflvíkingar ættu að eiga auðveldari leik í lokaumferðinni. Njarðvík er líka með betri innbyrðis stöðu á móti Stjörnunni en Stjarnan er á miklu flugi og á líka leiki á móti neðstu liðunum. Barátta Njarðvíkinga er því fyrst og fremst við KR um sjötta sætið en þar nægir KR að jafna þá að stigum þar sem KR-ingar eru með betri innbyrðis stöðu. Svo er það stóra spurningin hvort að það verði úrslitakeppni í Fjósinu í Borgarnesi eða í Síkinu á Króknum en bæði húsin eru þekkt fyrir frábæra stemmningu við slíkar aðstæður. Skallagrímur stendur betur í stigum en ekki í innbyrðis viðureignum. Hvorugt lið er alveg öruggt um sæti sitt í deildinni en bæði gætu endanlega tryggt sér sætið með hagstæðum úrslitum hjá sér eða í öðrum leikjum í kvöld. Fjölnir, ÍR og KFÍ eru öll jöfn á botninum en Fjölnir nýtur góðs af innbyrðis móti þessarar þriggja liða eftir sigurinn mikilvæga á ÍR í síðustu umferð. Fjölnir á aftur á móti erfiðari leiki eftir en hin tvö liðin. Hér t i l h l iðar má sjá ítarlegra yfirlit um þessi fjögur baráttusvæði í lokaumferðum Dominos-deildar karla. ooj@frettabladid.is Hver endar hvar? Tvær síðustu umferðir Dominos-deildar karla í körfubolta fara fram á næstu fj órum dögum og þá ræðst hvaða lið komast í úrslitakeppnina og hvaða lið mætast þar. Auk þess mun koma í ljós hvaða tvö lið munu falla niður í 1. deild. MIKILVÆGUR Á LOKASPRETTINUM Benjamin Smith þarf að spila vel ætli Þórsarar að halda stöðu sinni í 3. sætinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Grindvíkingar tryggja sér deildarmeistaratitilinn með næsta sigri hvernig sem aðrir leikir fara. Þeir hafa nefnilega betri innbyrðisstöðu á móti Snæfelli sem verður því að komast yfir þá á stigum. Þór nægir að jafna Grindavík en þarf hins vegar að vinna upp fjögurra stiga forskot. Grindvíkingar eiga leiki eftir við Fjölni og Tindastól sem þeir eiga að vinna. Baráttan um deildarmeistaratitilinn (Grindavík 32, Snæfell 30, Þór 28) Fimm lið geta enn fallið úr deildinni en það þarf þó eitthvað óvænt að gerast til að Skallagrímur eða Tindastóll fari niður. Skallagrímur er með verri innbyrðis stöðu á móti þremur af fjórum liðum fyrir neðan sig (ekki Fjölni) og Tindastóll er verri innbyrðis á móti tveimur og hugsanlega þremur tapi liðið með meira en sex stigum á móti ÍR í kvöld. Mestar líkur eru þó á því að tvö af þremur neðstu liðunum fari niður. Fjölnir, ÍR og KFÍ eru öll með 10 stig en Grafarvogsbúar eru með besta árangurinn í innbyrðis móti liðanna. Fjölnir vann þrjá af fjórum leikjum sínum við hin tvö liðin og er líka betri innbyrðis á móti Tindastól. Baráttan um að sleppa við fall (Skallagrímur 14, Tindastóll 12, Fjölnir 10, ÍR 10, KFÍ 10) Fjögur efstu sætin gefa heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og þau tvö efstu heimavallarrétt í undanúrslitunum. Grindvíkingar eru öryggir með annað efstu tveggja sætanna og Snæfellingar verða alltaf í hópi fjögurra efstu vegna stöðu í innbyrðis viðureignum. Þrjú næstu félög, Þór, Stjarnan og Keflavík, berjast síðan um hin tvö sætin. Það gæti orðið flókinn útreikningur enda möguleiki á því að mörg lið verði jöfn. Stjörnumenn verða efstir verði öll þessi lið jöfn að stigum en þá munu Keflvíkingar reka lestina og missa af heimavallarréttinum. Keflvíkingar eru verri innbyrðis á móti bæði Þór og Stjörnunni en Stjarnan er síðan betri innbyrðis á móti Þór. Það getur því margt gerst í lokaumferðunum. Keflavíkurliðið þarf því að komast upp fyrir hin liðin á stigum ætli það að hækka sig í töflunni. Verði Snæfell, Þór, Stjarnan og Keflavík öll jöfn að stigum, sem getur gerst, þá verður röðin væntanlega eins og hún er í dag nema að stórsigur Þórs á Snæfelli í kvöld gæti skilar Þórsurum upp fyrir Snæfell. Þór vann fimm stiga sigur í fyrri leiknum og verður því ofar en Snæfell með sigri verði aðeins þau lið jöfn. Snæfell er með betri innbyrðis stöðu á móti öllum þessum liðum nema Keflavík. Skallagrímur og Tindastóll berjast um tvö síðustu sætin inn í úrslitakeppnina þó að slakur árangur í innbyrðis viðureignum gegn neðstu liðunum gefi smá möguleika á kraftaverkastökki hjá liðunum þremur fyrir neðan. Það eru frekar reikningsmöguleikar en raunhæfir möguleikar. Lykilatriði hér er að Tindastóll verður ofar en Skallagrímur verði liðin jöfn. Stóri möguleikinn hjá Tindastól liggur í leiknum við ÍR í Seljaskóla í kvöld en svo gæti einnig farið að Stólarnir taki á móti nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur í lokaumferðinni sem hefðu þá að engu að keppa. Skallagrímsmenn mæta í DHL-höllina í kvöld og taka á móti Þór í lokaumferðinni en þeir unnu fyrri leikinn í Þorlákshöfn. Hér er því mikil spenna og mikið í boði fyrir bæði lið. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni (Skallagrímur 14, Tindastóll 12, Fjölnir 10, ÍR 10, KFÍ 10) Staðan í deildinni Grindavík 20 16 4 1961-1743 32 Snæfell 20 15 5 1930-1738 30 Þór Þ. 20 14 6 1852-1715 28 Stjarnan 20 13 7 1886-1766 26 Keflavík 20 13 7 1840-1762 26 Njarðvík 20 11 9 1803-1721 22 KR 20 10 10 1718-1726 20 Skallagrímur 20 7 13 1610-1751 14 Tindastóll 20 6 14 1618-1729 12 Fjölnir 20 5 15 1661-1864 10 ÍR 20 5 15 1660-1808 10 KFÍ 20 5 15 1775-1991 10 LEIKIR KVÖLDSINS: Stjarnan-KFÍ Grindavík-Fjölnir. ÍR-Tindastóll Njarðvík-Keflavík. Þór Þ.-Snæfell KR-Skallagrímur LEIKIR SUNNUDAGSKVÖLDSINS: Keflavík-ÍR Tindastóll-Grindavík Fjölnir-Stjarnan KFÍ-KR Skallagrímur-Þór Þ. Snæfell-Njarðvík Baráttan um heimavallarréttinn (Þór 28, Stjarnan 26, Keflavík 26)

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.