Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 70
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
„Það er græni drykkurinn hennar
Sollu á Gló. Hann er svo ótrúlega
hollur og orkugefandi.“
Sigríður Eyþórsdóttir úr hljómsveitinni Sísí
Ey.
DRYKKURINN
Hljómsveitirnar Robert the Roommate, Ylja og
Ultra Mega Technobandið Stefán koma fram
á styrktartónleikum fyrir Geðhjálp sem verða
haldnir á Kexi hosteli á föstudaginn.
Skipuleggjendur eru Bergþóra Sveins dóttir,
Marsibil Björk Eiríksdóttir og Jóhann Páll
Jónsson, nemar við Háskóla Íslands í tóm-
stunda- og félagsmálafræði. Þau eru í faginu
viðburðastjórnun og er eitt verkefnið að halda
einhvers konar viðburð.
Geðhjálp völdu þau vegna þess að þar finnst
þeim vera þarft og gott starf í gangi sem
kemur öllum við, á beinan eða óbeinan hátt.
Samtökin eru til húsa við Túngötu. „Það er búin
að vera mikil umræða í gangi í samfélaginu um
þetta málefni og það vantar fleiri úrræði fyrir
fólk með geðraskanir,“ segir Bergþóra.
Henni líst vel á tónleikana á föstudaginn.
Systir Bergþóru, Rósa Guðrún Sveinsdóttir, er
einmitt söngkona í Robert the Roommate. „Ég
held að þetta verði ótrúlega skemmtilegt og ég
vona að sem flestir mæti. Þetta er mjög mikil-
vægt málefni.“
Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur og
hefjast þeir stundvíslega kl. 20.30. - fb
Tónleikarnir hluti af háskólanáminu
Marsibil, Bergþóra og Jóhann Páll skipuleggja tónleika til styrktar Geðhjálp á Kexi hosteli annað kvöld.
SKIPULEGGJA TÓNLEIKA Frá vinstri: Jóhann Páll
Jónsson, Marsibil Björk Eiríksdóttir og Bergþóra
Sveinsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Þetta er að verða ógeðslega flott,“
segir Páll Óskar Hjálmtýsson um
nýju heimasíðuna sína sem verður
opnuð á föstudaginn.
Á Palloskar.is verður allur hans
ferill rakinn í tímalínu sem hefst
á fæðingarári hans, 1970. Hægt
verður að hlusta ókeypis á öll lögin
sem hann hefur sjálfur gefið út,
auk þess sem óútgefin lög, sjald-
heyrðar upptökur, tónlistarmynd-
bönd, ljósmyndir og blaðagreinar
frá 22 ára ferli hans fá sinn sess.
„Þú getur valið þau lög sem þú
vilt, ýtt á play-takkann og farið svo
að ryksuga heima hjá þér,“ segir
Páll Óskar. „Þessi heimasíða er
eiginlega vitnisburður um vinnu-
alka. Það hefur komið sjálfum mér
á óvart hvað þetta er búin að vera
rosalega mikil vinna í gegnum tíð-
ina.“
Popparinn tekur fram að þetta
sé ekki sölusíða og því verðihvorki
hægt að kaupa lög, plötur né tón-
leikamiða á henni. Í staðinn ætlar
hann að dekra við hina fjölmörgu
aðdáendur sína með því að upp-
færa hana reglulega og frumflytja
þar ný lög eða tónlistarmyndbönd
þegar sá gállinn er á honum. „Það
eru nokkrar smáskífur í augsýn.
Þetta er svolítið sem ég ætla að
spila út smám saman,“ segir hann
en vill ekki lofa nýrri plötu fyrir
jólin enda brjálað að gera við tón-
leikahald.
Palli kann strákunum hjá
Wedo, þeim Guðmundi Ragnari
Einarssyni, Charles Christie og
Orra Helgasyni, bestu þakkir
fyrir að hanna fyrir sig Pall oskar.
is en sú vinna hefur staðið yfir í
þrjá mánuði. Heimasíðan verður
einmitt afhjúpuð í höfuðstöðvum
Wedo. - fb
Vitnisburður um vinnualka
Páll Óskar Hjálmtýsson afh júpar nýja heimasíðu, Palloskar.is, á föstudaginn.
OPNAR HEIMASÍÐU Páll Óskar
afhjúpar nýja heimasíðu, Palloskar.is, á
föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
„Hönnunarsafnið í London hafði
samband við okkur fyrir um ári og
vildi gera eitthvað með okkur. Þau
þekktu Eley Kishimoto og þá kom
upp sú hugmynd að fá þau til að
endurhanna Selshaminn okkar, líkt
og Henrik Vibskov hafði gert árið
2008. Fólkið hjá Hönnunarsafninu
kom okkur saman og hjónin voru
til í þetta, sem okkur þótti mik-
ill heiður,“ segir Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir um samstarf Vík
Prjónsdóttur og hönnunartvíeykis-
ins Eley Kishimoto. Guðfinna rekur
Vík ásamt Brynhildi Pálsdóttur
og Þuríði Rós Sigurþórsdóttur, en
fyrir tækið hannar einstakar vörur
úr íslenskri ull.
Samstarfið við Eley Kishimoto
hófst í sumar og verður endur-
hannaði Selshamurinn frumsýndur
við hátíðlega athöfn í Þjóðmenning-
arhúsinu í dag. Að sögn Guðfinnu
fengu Eley Kishimoto algjörlega
frjálsar hendur við endurhönnun
hamsins. „Þau sáu alveg um þetta
og okkur fannst mjög gaman að
sjá útkomuna. Þau eru fræg fyrir
munstrin sín og hafa unnið með
þetta íkornamunstur áður. Það tók
þó sinn tíma að velja réttu litina og
tóna þá til í samstarfi við litunar-
meistara Ístex. Það var langt en
skemmtilegt ferli,“ segir hún.
Hamurinn verður hluti af nýrri
haust- og vetrarlínu Eley Kishimoto
og viðurkennir Guðfinna að það sé
ómetanleg kynning fyrir Vík. „Þau
eru vinsæl á Japansmarkaði þannig
að þetta verður ágæt kynning fyrir
okkur. Og auðvitað mikill heiður.“
Mark Eley og Wakako Kishimoto
komu til landsins í gærkvöldi á
vegum Hönnunarmars. Þau munu
halda fyrirlestur í Þjóðleikhús-
inu klukkan 14 í dag og eftir hann
verður hamurinn frumsýndur. „Við
höfum átt í díalóg með þeim síðustu
mánuði en þetta verður í fyrsta sinn
sem við hittum þau,“ segir Guðfinna
og hlær.
Guðfinna, Brynhildur og Þuríður
verða með sýningu á nýjustu vörum
Víkur í Bókasal Þjóðmenningar-
hússins í dag. Þær munu einnig
halda opinn málfund undir yfir-
skriftinni Ullin, iðnaðurinn og
framtíðin á morgun.
sara@frettabladid.is
Íslenska ullin heillar
tískuheiminn
Hönnunartvíeykið Eley Kishimoto hefur endurhannað Selsham Víkur Prjóns-
dóttur og verður hann hluti af haustlínu breska tískuhússins.
GOTT SAMSTARF Brynhildur, Þuríður og Guðfinna reka hönnunarfyrirtækið Vík
Prjónsdóttur. MYND/ARI MAGG
Hjónin Mark Eley og Wakako
Kishimoto stofnuðu hönnunar-
merkið Eley Kishimoto í London
árið 1992. Merkið er þekkt fyrir
litrík og skemmtileg munstur og
hjónin hafa til að mynda hannað
línu fyrir sænska tískumerkið
Weekday og breska skóframleið-
andann Clarks. Árið 2008 gerðust
Eley og Kishimoto aðalhönnuðir
franska tískuhússins Cacharel.
Þekkt fyrir
skemmtileg munstur
MYND/ARI MAGG