Fréttablaðið - 15.04.2013, Page 4
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
211,8293
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,58 119,14
182,28 183,16
154,83 155,69
20,764 20,886
20,700 20,822
18,598 18,706
1,1945 1,2015
178,37 179,43
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
12.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Ranghermt var í frétt blaðsins á
laugardag að Alþýðufylkingin sé í hópi
framboða sem bjóði bara fram í einu
kjördæmi. Hún býður fram í báðum
Reykjavíkurkjördæmunum.
Rangt var farið með nafn Hlyns
Tryggvasonar í frétt blaðsins um
tilnefningar til Samfélagsverðlauna
sem birt var á laugardag. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
MANNRÉTTINDI Þrátt fyrir að
heildar fjöldi dauðarefsinga á
heimsvísu sé lítt breyttur og fjöldi
ríkja sem beiti dauðarefsingum sé
sá sami, má greina jákvæða þróun
í þessum málaflokki milli áranna
2011 og 2012. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu Amnesty Inter-
national.
Alls er vitað til þess að 682 ein-
staklingar hafi verið teknir af lífi
í 21 ríki í fyrra, sem er tveimur
meira en árið áður. Það sem skekk-
ir þá mynd er að nokkur ríki sem
hafa ekki tekið fólk af lífi um hríð,
meðal annars Japan, Indland og
Pakistan, framkvæmdu aftökur í
fyrra.
Það sem helst er til vitnis um
jákvæða þróun í þessum málum er
að nokkuð færri dauðadómar voru
kveðnir upp í fyrra en árið áður,
1.722 samanborið við 1.923, og í
færri ríkjum en áður, úr 63 í 58.
Samkvæmt staðfestum tölum biðu
þó enn 23.386 einstaklingar aftöku
eftir dauðadóm í árslok 2012.
Þá afnam Lettland dauðarefsing-
ar úr lögum og verður þar með 97.
ríkið til að gera slíkt, en alls hafa
140 ríki afnumið dauðarefsing-
ar eða hætt að beita þeim. Hvíta-
Rússland er eina Evrópuríkið þar
sem dauðarefsingar tíðkast enn.
Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir
staðfestar tölur um aftökur í Kína
gerir Amnesty fastlega ráð fyrir
því að þar í landi skipti aftökur
hundruðum árlega. Annað sætið á
þessum lista skipar Íran með 314
aftökur hið minnsta, Írak er í þriðja
sæti með 129 aftökur, sem er tvö-
földun frá fyrra ári, og Sádi-Arabía
er í fjórða sæti með 79 aftökur.
Jákvæð teikn á lofti með
færri dauðadómum í fyrra
Að minnsta kosti 682 voru teknir af lífi í í fyrra, að því er fram kemur í skýrslu Amnesty International. Heildar-
fjöldinn er svipaður og árið áður, en þó fjölgar enn í hópi ríkja sem hafa afnumið dauðarefsingar með lögum.
23.386
Í árslok 2012 biðu tæplega
24 þúsund manns aft öku
eft ir dauðadóm. Í fyrra voru
uppkveðnir dauðadómar
201 færri en árið áður.
Fullnusta dauðarefsinga 2012
Sameinuðu arab.
Furstadæmin 1
Kína
1000+ ?
Íran
314+
Írak 129+
Sádi-Arabía 79+
Bandaríkin 43
Jemen 28+
Súdan 19+
Afganistan 14
Gambía 9
Japan 7
N-Kórea 6+
Sómalía 6+
Palestína (Gaza) 6
Taívan 6
Hvíta-Rússland 3+
Botsvana 2
Banglades 1
Suður-Súdan 5+
Indland 1
Pakistan 1
Ríki sem
kváðu upp
dauðadóma
Ríki sem
frömdu
aft ökur
Ríki sem
hafa afnumið
dauðarefsingar
63 58 28 21 80 67
■ 2003
■ 2012
■ 2003
■ 2012
Staðfestar
aft ökur
Dauða-
dómar á
heimsvísu
1.146 682 2.756 1.722
Áætlun vegna dauðarefsinga í Kína var
inni í tölunum árið 2003, en ekki 2012.
GRAFÍK/JÓNAS
Bandaríkin eru í fimmta sæti
með 43 aftökur og eina ríkið á vest-
urhveli þar sem slíkt tíðkast. Þetta
er sami fjöldi og var árið áður en
aðeins níu ríki Bandaríkjanna tóku
fólk af lífi í fyrra, samanborið við
þrettán ríki árið áður. Þá afnam
Connecticut-ríki dauðarefsing-
ar með lögum í fyrra og varð þar
með sautjánda ríkið af fimmtíu til
að gera slíkt.
Í skýrslu Amnesty segir að fátt
bendi til þess að dauðarefsingar
leiði til færri morða og annarra
alvarlegra afbrota. Þeim sé víða
beitt í pólitískum tilgangi meðal
annars til skoðanakúgunar, jafn-
vel fyrir afbrot sem teljast ekki til
alvarlegra glæpa, eða glæpa yfir-
höfuð, samkvæmt alþjóðlegum við-
miðum.
thorgils@frettabladid.is
NÁTTÚRA Loftgæði í Fljótshverfi,
austan Kirkjubæjarklausturs, og
í Reykjavík mældust langt yfir
meðaltali í gær. Á vef Umhverf-
isstofnunar sýndu mælar að
svifryksmengun væri sautján-
falt yfir viðmiðunarmörkum í
hádeginu í gær. Við Grensásveg
í Reykjavík var mengunin nærri
fjórfalt yfir sömu viðmiðunar-
mörkum.
Mengun mælist svo há í sér-
stökum veðurskilyrðum. Í gær
stóð vindur úr norðaustri og blés
ryki og öskuögnum ofan af jökl-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni hefur svifryks-
mengun mælst mikil í slíkum
veðrum síðan í eldgosunum síð-
ustu ár. - bþh
Sérstök veðurskilyrði:
Svifriksmengun
mældist mikil
GJÓSKUGOS Mikið öskufall varð í eld-
gosinu í Eyjafjallajökli 2010. Gætir þess
enn þegar vindur blæs ofan af heiðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Miðvikudagur
Fremur hægur vindur víðast hvar.
DÁLÍTIL ÚRKOMA verður á landinu næstu daga, snjókoma eða él norðanlands en
skúrir eða jafnvel slydduél sunnan til. Inn á milli sést til sólar því það verður bjart með
köflum að minnsta kosti um hluta landsins.
-3°
8
m/s
0°
10
m/s
5°
8
m/s
5°
7
m/s
Á morgun
Strekkingur NV-lands og allra austast
annars hægri vindur.
Gildistími korta er um hádegi
3°
-2°
1°
-3°
-3°
Alicante
Aþena
Basel
23°
19°
21°
Berlín
Billund
Frankfurt
22°
16°
24°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
23°
13°
13°
Las Palmas
London
Mallorca
22°
16°
23°
New York
Orlando
Ósló
14°
30°
10°
París
San Francisco
Stokkhólmur
20°
14°
7°
8°
5
m/s
6°
11
m/s
2°
5
m/s
2°
9
m/s
1°
6
m/s
1°
7
m/s
-2°
7
m/s
6°
0°
6°
1°
1°
LEIT Enn hefur ekkert spurst til
Önnu Kristínar Ólafsdóttur sem
hefur verið leitað síðan á fimmtu-
dagskvöld. Um 50 manns leituðu
hennar í gær en fundað verður
um framhald leitarinnar í dag.
Um helgina var Önnu Kristín-
ar meðal annars leitað á fjórum
bátum auk þess sem notast var
við þyrlu Landhelgisgæslunnar
og kafbát. Engar vísbendingar
hafa enn fundist um ferðir henn-
ar en síðast sást til hennar í Vest-
urbæ Reykjavíkur. - mþl
Engar vísbendingar fundist:
Enn leitað að
Önnu Kristínu
SAMGÖNGUR Tvær rútur festust
í miklu fannfergi á leið ofan af
Öxnadalsheiði á þjóðvegi 1 í gær
og runnu út í vegkant. Engum varð
meint af en björgunarsveit var
kölluð til aðstoðar. Um var að ræða
rútu og strætisvagn í áætlunarferð
á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Stórhríð gerði nyrðra og varð
víða ófært eða þungfært. Þá var
Ólafsfjarðarmúla lokað vegna
snjóflóðahættu í gærkvöldi.
Undir snjónum var mikil hálka
og því illfært fyrir óútbúna bíla.
Björgunarsveitin Súlur á Akureyri
greip því til þess ráðs að hleypa
bílum í litlum hópum á heiðina
svo allt gengi greiðlega fyrir sig.
Þá voru bílstjórar flutningabíla
og hópbíla beðnir um að leggja á
heiðina með keðjur á dekkjunum.
„Það er fljúgandi hált í brekkunni
og bílar á sumardekkjum eiga ekk-
ert erindi þangað,“ segir Magnús
Viðar Arnarson, formaður Súlna. Í
dag spáir Veðurstofa Íslands áfram-
haldandi snjókomu í Eyjafirði og
norðan kuli eða golu. - bþh
Björgunarsveitin Súlur á Akureyri hjálpaði ökumönnum á Öxnadalsheiði:
Bílum hleypt í hollum á heiðina
SJÓMOKSTUR Vetrartíð er enn á Norð-
urlandi og Vestfjörðum. Kalla þurfti til
björgunarsveitir í gær til að hjálpa fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN