Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 14
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þessi hópur er skemmtilegur að því
leytinu til að þetta eru ekki nein-
ir fræðingar eða vitringar, við erum
bara venjulegt fólk í umferðinni,“
segir Eygló Yngvadóttir, aldursforseti
starfshópsins. „Upphaflega hugmyndin
hjá lögreglunni og Umferðarstofu var
að búa til boðorð í umferðinni. Ekki
reglur heldur boðorð sem hver og
einn setti sér sjálfur: Ég ætla að gera
þetta, ég ætla að gera hitt, til þess að
umferðin gangi betur, skilurðu? Þeir
ákváðu að það væri sniðugt að láta
almenning búa boðorðin til og völdu
fjórtán manns, sjö karla og sjö konur,
í starfshóp. Markmiðið er að boðorðin,
eða sáttmálinn eins og við köllum það
núna, verði tilbúin um miðjan maí.“
Hvernig hafið þið unnið þetta? „Við
skiptum okkur upp í smærri hópa. Einn
hópurinn sinnti hjólreiðafólki, annar
gangandi vegfarendum og sá þriðji
ökumönnum. Aðalatriðið er að þetta
átak fjallar ekki um umferðarmann-
virki, vegi eða bíla og ekki um annað
fólk. Þetta fjallar um tillitssemi, til-
hliðrun og kurteisi okkar sjálfra. Þetta
snýst ekki um það sem ég ætlast til að
hinir geri, heldur það sem ég ætla mér
að gera sjálf. Við erum ekki þarna til
að ala hina upp, fólk á að finna þörfina
fyrir að bæta umferðina hjá sjálfu sér,
sáttmálinn er bara til leiðbeiningar.“
Og hvernig hefur starfinu miðað?
„Við erum búin að búa til tuttugu til
þrjátíu setningar sem við eigum síðan
eftir að skera niður í tíu til tólf sem
allir eru sammála um að fjalli um
mikil vægustu atriðin.“
Þú ert búin að vera í umferðinni ansi
lengi, ekki satt? „Ég er búin að vera
með bílpróf síðan í vinstri umferðinni,
tók það ári áður en hægri umferðin
skall á. Þá var einmitt notað slagorðið
„Brosum í umferðinni“ og maður tók
það bókstaflega, gerði alls konar vit-
leysu en bara setti upp sparibrosið og
þá var allt í lagi. Svo tók ég reyndar
meirapróf og rútupróf þegar ég var
tuttugu og átta ára, en ég hef aldrei
nýtt mér það.“ fridrikab@frettabladid.is
Frumkvæði að bættri
umferð komi innan frá
Samstarfshópur á vegum Umferðarstofu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu situr nú
sveittur við að semja sáttmála um betri umferðarmenningu. „Við erum ekki þarna til að
ala fólk upp,” segir aldursforseti hópsins. „Sáttmálinn er bara til leiðbeiningar.”
ALDURSFORSETINN Eygló Yngvadóttir hefur verið bílstjóri síðan vinstri umferðin var við lýði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN RAFN GUÐMUNDSSON
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 7. apríl, verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
16. apríl kl. 13.00.
Kristín Jóhannsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Ludwig H. Gunnarsson
Rannveig Jónsdóttir Þórður Óskarsson
Ragnar Jóhann Jónsson Anna María Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskulega
KARLS VALDIMARSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu-
deildar Landspítalans í Fossvogi fyrir
kærleiksríkt viðmót og umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurður Vigfússon
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Kær bróðir minn,
GUÐFINNUR ERLENDSSON
Austurbrún 6, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 2. apríl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hlíf Erlendsdóttir
Þetta er verkefni sem við hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fórum af stað með
eftir áramótin í samvinnu við Umferðarstofu og unnum mest í gegnum Facebook-
síðu lögreglunnar,“ segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. „Þar auglýstum við eftir fólki til að taka þátt í þessu
verkefni sem í stuttu máli gengur út á það að búa til eins konar boðorð til að fara
eftir í umferðinni.“
Gunnar segir viðbrögðin hafa verið góð og þótt búið sé að velja fjórtán manns í
starfshópinn geti fólk enn sett fram hugmyndir að boðorðum á Facebook-síðunni
Gerum það saman. „Mér skilst að nokkur hundruð manns hafi tekið þátt í verk-
efninu á Facebook og það er alltaf pláss fyrir fleiri hugmyndir.“
Hugmyndabanki á Facebook
HÓPVINNA Gunnar Rúnar ásamt hluta samstarfshópsins um umferðarsáttmála.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Almannavarnir boðuðu skyndirýmingu á
bæjum í nágrenni Markarfljóts síðdegis
þennan dag árið 2010, vegna hættu á
stóru flóði. Eldgos hafði hafist í Eyja-
fjallajökli daginn áður og því fylgdi stórt
hlaup í Markarfljóti sem tók af veginn í
kringum brúna.
Jarðeðlisfræðingar sem voru á flugi yfir
jöklinum þennan dag sáu hlaup koma
með miklum látum niður jökulinn og
fólk var beðið að hlaupa upp í hlíðar til
að tryggja öryggi sitt. Rúmlega 700 íbúar
sveitanna undir jöklinum yfirgáfu heimili
sín í skyndi.
Þegar til kom reyndist hlaupið dreifa
mun meira úr sér en hlaupið daginn áður
og þegar það kom í Markarfljót hafði
dregið mikið úr kraftinum. Rýmingu var
aflétt að hluta til á tíunda tímanum um
kvöldið. Þó var henni viðhaldið á tuttugu
bæjum.
ÞETTA GERÐIST 15. APRÍL 2010
Skyndirýming á fl óðasvæði
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MERKISATBURÐIR
1803 Reykjavík verður sérstakt lögsagnarumdæmi.
1955 Fyrsti McDonalds-veitingastaðurinn opnar í Illinois,
Bandaríkjunum.
1967 Um 250 þúsund Bandaríkjamenn mótmæla Víetnamstríð-
inu í New York.
1970 Stórbruni verð-
ur í verkstæðisbyggingu
Strætisvagna Reykjavíkur.
1977 Jón L. Árnason verð-
ur Íslandsmeistari í skák
aðeins sextán ára gamall.
1990 Mikið hættuástand
skapast þegar eldur kemur
upp í ammoníakstanki
Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi.
1997 Hæstiréttur kemst
að þeirri niðurstöðu að
ekki séu lagaskilyrði fyrir
endurupptöku Guðmund-
ar- og Geirfinnsmála.
1999 Nýja Bláa lónið í
Svartsengi er formlega
tekið í notkun.