Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 9
ALMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Lýkur á morgun 16. apríl 2013.
Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með almennu útboði á 60% hlut
í Vátryggingafélagi Íslands hf., en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 70%.
Fjárfestum eru boðnar þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Seljandi óskar eftir áskriftum
á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut í tilboðsbækur A og B, en allir hlutir sem seldir verða í þeim
bókum verða á sama verði. Framangreint verðbil samsvarar því að heildarandvirði hlutafjár í VÍS sé
16,9–19,9 milljarðar króna. Seljandi óskar eftir áskriftum í tilboðsbók C á lágmarksverði 6,75 krónur
á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í þessari tilboðsbók útboðsins verður úthlutað á því gengi sem
viðkomandi fjárfestir býður.
Stefnt er að því að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og geri félaginu kleift að
uppfylla lágmarksskilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár hjá félögum sem fá hlutabréf
tekin til viðskipta í Kauphöllinni. Markmið seljandans er jafnframt að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína.
10% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði 100.000–50.000.000 kr. Fjár-
festar skila áskrift rafrænt á vef Arion banka, www.arionbanki.is. Til þess notar fjárfestir notandanafn
sitt og lykilorð að netbanka Arion banka, eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á
áskriftarvefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka sinn hjá hvaða íslenska viðskipta-
banka sem er.
30,1% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði meira en 50 milljónir króna.
Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingar-
bankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og
lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn.
Fjárfestum boðnir fjórir 2,475% eignarhlutir, samtals 9,9%. Fjárfestar eru beðnir að hafa
samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingarbankasviðs Arion banka og
skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í
netbanka sinn.
Auk þessarar grunnskiptingar verður 10–20% hluta ráðstafað í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og
magn eftirspurnar gefur tilefni til.
ÚTHLUTUN
Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða áskriftir í tilboðsbók A skertar
um allt að 75% (utan áskriftir 100–500 þús.kr. og áskriftir starfsmanna VÍS að hámarki 3 milljónir kr.) og þurfi að koma til
frekari niðurskurðar verða hæstu áskriftir lækkaðar frekar. Úthlutun til fjárfesta í tilboðsbókum B og C verður samkvæmt
einhliða ákvörðun seljanda, sem taka mun mið af markmiðum útboðsins.
ÁSKRIFTARTÍMABIL OG ÞÁTTTAKA
Áskriftartímabil stendur frá föstudeginum 12. apríl klukkan 10.00 til þriðjudagsins 16. apríl klukkan 16.00.
Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkun-
um sem kunna að leiða af lögum. Það þýðir m.a. að erlendir aðilar, skv. skilgreiningu 1.mgr. 1.gr. laga um gjaldeyrismál nr.
87/1992, skulu sýna fram á að þeim sé heimilt að fjárfesta í verðbréfunum sem boðin eru í útboðinu, sbr. 13.gr.m og
13.gr.b. í gjaldeyrislögunum.
Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2013. Stefnt er að því að 24. apríl 2013 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti VÍS
á Aðalmarkaði Kauphallarinnar.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að
kynna sér vel upplýsingar um VÍS og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu VÍS dagsettri 27. mars 2013 sem gefin er
út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vis.is/fjarfestar og
arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum VÍS að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Arion banka í
Borgartúni 19 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um útboðið má nálgast á arionbanki.is, svo og með tölvupósti á visipo2013@arionbanki.is eða
í síma 444 7000 milli kl. 9.00 og 20.00 meðan áskriftartímabilið stendur yfir.
TILBOÐSBÓK A
TILBOÐSBÓK B
TILBOÐSBÓK C