Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 16
FÓLK|HEIMILI
Verslunin Persía hefur um árabil
selt klassísk teppi með mismunandi
mynstrum og litum. Nýlega hóf versl-
unin að selja patchwork-teppi eða
bútasaumsteppi. Þessi teppi þykja
hentug til að tengja saman nútíma-
stíl við þann klassíska, eftir því sem
Sigurður Sigurðsson, eigandi verslun-
arinnar, segir. „Mynstur og litir klass-
ískra teppa eiga oft uppruna aftur í
aldir. Tíðarandi hverju sinni hefur þó
áhrif á vinsældir. Litirnir taka mið af
því sem er að gerast í umhverfinu og
fylgja þannig tískustraumum. Í dag eru
ljósir litir áberandi svo og hlýir litir.
Mynstur eru hins vegar eitthvað sem
breytist lítið, helst eru áherslubreyt-
ingar þannig að ein tegund er ríkjandi
einn áratuginn en önnur þann næsta.
Tabriz-mynstur (persneska stjarnan)
var til dæmis mjög vinsælt á 8. og 9.
áratugnum en í dag eru símynstruð
teppi meira áberandi.
Á hinni árlegu teppasýningu Domo-
tex í Þýskalandi, sem haldin var í
janúar, veðjuðu framleiðendur á að
patchwork-teppin með bútasaumsútlit-
inu væru þau sem koma skyldi en sala
á þeim hefur farið fram úr björtustu
vonum á þessu ári,“ segir Sigurður.
EINS OG BÚTASAUMUR
PERSÍA KYNNIR Ýmiss konar mottur urðu afar vinsælar þegar gólfefni breyttust.
Nú eru flest heimili með parket eða flísar á gólfum.
NÝR STÆLL
Sigurður Sigurðsson hjá
Persíu segir að mottur
með bútasaumsútliti
séu að ryðja sér til rúms.
MYND/GVA
Hjá Brúnás starfa sérfræðingar í eftirlíkingum náttúrulegra steina. Mig langaði til að nýta þessa
sérhæfingu og hanna vöru sem er eins
konar eftirlíking af stuðlabergi,“ segir
Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður en
hún frumsýndi á Hönnunarmars þrjú
box sem nýta má sem geymslu, borð og
kolla. Boxin hannaði hún sérstaklega
fyrir Brúnás í samstarfi við Make by
Þorpið.
„Boxin eru rétt að verða tilbúin til
framleiðslu og sölu. Við notum minni
plötur af steinlíki frá verkstæði Brúnáss
í boxin, sem venjulega eru of litlar til
að nota í borðflöt í innréttingu. Þannig
stuðla þau að betri nýtingu efniviðar-
ins,“ útskýrir Þórunn. „Stuðlarnir eru
skemmtilega geómetrískir og hafa
fallegt skuggaspil. Ég lék mér aðeins
með að raða efninu í mynstur, svo grá-
tónarnir í þeim annaðhvort ýki þrívídd-
ina eða blekki áhorfandann. Hægt er að
nýta boxin stök eða raða þeim saman
á ýmsan hátt og mynda þannig stærri
borðflöt sem spilar með augað.“
Þórunn sýndi Berg á samsýningu
Félags vöru- og iðnhönnuða sem fram
fór í Hörpu á Hönnunarmars. Hún segir
sýninguna hafa gengið vel og boxin hafa
vakið talsverða athygli.
„Þau fengu frábærar viðtökur og ég
fékk umfjöllun á nokkrum bloggsíðum,
meðal annars Disegno Daily og Dezeen,
sem eru báðar mikið lesnar síður og
vinsælar um allan heim. Það er alltaf
frábært að ná til svona miðla til að vera
sýnileg á alþjóðlegum vettvangi og auð-
vitað góðs viti þess að maður sé að
gera eitthvað áhugavert,“ segir Þór-
unn. Nánar má forvitnast um hönnun
Þórunnar á vefsíðunni www.thorunnde-
sign.com.
■ heida@365.is
NÝTA AFGANGANA
ÍSLENSK HÖNNUN Þórunn Árnadóttir hefur hannað nýja línu húsgagna fyrir
Brúnás innréttingar sem hún kallar Berg. Í línuna eru notuð efni sem annars
færu til spillis. Hún frumsýndi Berg á Hönnunarmars og hlaut góðar viðtökur.
NÁNAR
Berg er unnið í
samstarfi við Make
by Þorpið og er
hluti af stærra
samstarfsverk-
efni þar sem kost-
ir og möguleikar
til vöruþróunar og
framleiðslu á Aust-
urlandi eru kann-
aðir. Lesa má um
framgang verk-
efnisins á http://
make.is/Thorunn-
Arnadottir/.
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. apríl
Virka daga kl. 6.50 – 9
Á hraðleið inn í daginn
Heimir og Kolla
Virka daga kl. 6.50 – 9
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir