Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 41
 | FÓLK | 3HEIMILI Hjólreiðar eru á allan hátt ákjósanlegar fyrir alla aldursflokka. Fyrir utan útiveru og hreyfingu sem hjólreiðamenn fá stuðla þær að hreinna lofti. Að hjóla í vinnu eða skóla er þar fyrir utan sparnaður fyrir þá sem annars færu akandi. Nú er sá tími að renna upp þegar hjólreiðamönnum fer fjölgandi. Þeim sem ætla að hjóla lengri vegalengdir er bent á þessa sniðugu geymslu á hjólið en það er Art&Design-síða á Facebook sem bendir á þessa einföldu lausn. Lítill skápur er smíðaður inn í grind reið- hjólsins en í honum er hægt að geyma nesti til fararinnar. Þegar skápurinn er opnaður er hann fyrirtaks borð fyrir diska og glös. Þeir sem eru laghentir ættu að geta útbúið þetta sjálfir. Reiðhjól eiga sér langa sögu og stöðugt verða þau fullkomnari. Á árum áður voru sendlar verslana á reiðhjóli með grind að framan fyrir vörur. Sendlarnir hjóluðu þá með vörur úr versluninni heim til viðskipta- vina en slík var þjónustan í þá daga. Allir sem hjóla þurfa að muna að nota hjálm. Einnig er mikilvægt að eiga góðan lás á hjólið. SNIÐUGUR SKÁPUR Í REIÐHJÓLINU VORVERKIN SÍVINSÆLU Það styttist í sumardaginn fyrsta og óhætt að segja að vorið sé að koma, að minnsta kosti á suðvesturhorni lands- ins. Vorið er, hvort sem fólki líkar það betur eða verr, tími hreingerninga og þrifa á heimilum landsins. Með hækkandi sól og birtu er ekki lengur hægt að fela rykið og draslið. Huga þarf að gróðr- inum og trjánum í garðinum og hreinsa allt ruslið sem safnast hefur saman þar yfir veturinn. Séu svalir eða pallur á heimilinu þarf að sópa rykið og öskuna eftir veturinn. Gott er að huga að ástandi grillsins tímanlega og hvort lakka þurfi húsgögn sem eiga að standa úti yfir sumartímann. Vorið er tíminn til að hreinsa úr bíl- skúrnum og hjólageymslunni, enda safnast þar oft óþarfa drasl yfir veturinn, auk þess sem huga þarf að skipulagn- ingu upp á nýtt. Sleðarnir og vetrardekkin fara til hliðar og hjólin og garðverkfærin eru dregin úr dimmum skotum. Gluggar heimilisins eru líka oft skítugir eftir veturinn og því tilvalið að þvo þá á næstu vikum svo sólargeislar nái óáreittir að skína inn á heim- ilið. ■ MIKILVÆGT 1. Þvoið hendur og fjarlægið skartgripi af fingrum fyrir matseld. 2. Hemjið sítt hár í tagli. 3. Notið svuntu. 4. Ekki dýfa smakkskeiðinni aftur í matinn. 5. Þvoið grænmeti fyrir mat- seld. 6. Notið mismunandi lit skurð- arbretti til að forðast kross- mengun. 7. Vinnið á hreinum fleti. 8. Hnerrið ekki yfir pottana. 9. Ekki geyma kjöt of lengi við stofuhita. 10. Haldið áhöldum og vaski hreinum. 11. Tæmið ruslið oft. 12. Haldið gólfinu hreinu. www.wiki.answers.com HREINLÆTI Í ELDHÚSINU HREINT OG KLÁRT Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 • Laugardaga kl. 11-15 Þvottahús Úrvalið er hjá okkurFataskápar Sérsmíði Baðherbergi Góðar hirslur Innbyggðar uppþvottavélar Pottaskápar Allar útfærslur friform.is INNRÉTTINGAR GLÆSILEGAR DANSKAR Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS VIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM FYRIR ÞIG Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. ÞITT ER VALIÐ Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM, GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.