Fréttablaðið - 15.04.2013, Side 45
MÁNUDAGUR 15. apríl 2013 | MENNING | 17
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
1995 kr.bakkinn
Boeuf Bourguignon, nautakjötsréttur
p
g
y
g
1995kr.bakkinn
Marbella kjúklingaréttur
Fjölskyldum
áltíð
fyrir 2-4 m
anns
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
v
1995kr.bakkinn
Sítrónukjúklingur
1995kr.bakkinn
Kjúklingakarríréttur
NÝTT OG
SPENNANDI!
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.19:30 - 21:00
www.heilsuhusid.is
Upplýsingar & skráning í síma 616 8529 og rakel@rakelhealthyliving.com
Verð: 4.500 kr. Allir fá hollar og barnvænar uppskriftir með sér heim!
RAKEL TEKUR M.A. FYRIR Á NÁMSKEIÐINU:
• Hvar byrjar uppbygging á heilbrigði barns
• Uppbygging á ónæmiskerfi barna
• Dagleg næringarþörf
• Hverju þarf að huga að í mataræði barna
• Rétt samsett fæða sem samsvarar daglegum þörfum barna
• Nauðsynleg vítamín og steinefni fyrir vöxt barna
• Hvernig hægt er að stuðla að hollum matarvenjum barna
Með RAKEL SIF SIGURÐARDÓTTUR næringar- og heilsuráðgjafa
Mánudaginn 22. apríl
Örlagaborgin, brotabrot úr
afrekasögu frjálshyggjunnar eftir
Einar Má Jónsson kom út í maí í
fyrra og var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna í flokki
fræðibóka og bóka almenns efnis.
Í kvöld stendur Hannesarholt
menningarhús fyrir kvöldstund
um Örlagaborgina og mun höf-
undurinn sjálfur lesa upp og ræða
efni bókarinnar. „Þetta er sér-
staklega áhugavert núna í ljósi
komandi kosninga,“ segir Björg
Björnsdóttir, verkefnisstjóri í
Hannesarholti. „Þetta verður
dálítið eins og opinn leshringur,
Einar mun lesa valda kafla úr
bókinni og sitja svo fyrir svör-
um.“ Björg segir viðburðinn henta
öllum, hvort sem þeir hafi lesið
bókina eða ekki, en sérstaklega
gaman gæti verið fyrir þá sem
ósammála eru Einari að koma
og rökræða við hann. Hún nefnir
enn fremur að ákveðnar tónlist-
arlegar tengingar séu í bókinni,
en í tilefni þess mun Hilmar Örn
Agnarsson tónlistarmaður leika
á píanó í bland við upplesturinn.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
- hþó
Ræðir Örlagaborgina og
kennisetningar frjálshyggjunnar
Einar Már Jónsson, sagnfræðingur og doktor í miðaldafræðum, mun í kvöld lesa
upp og ræða tilurð bókar sinnar Örlagaborgin í Hannesarholti.
AFREKASAGA FRJÁLSHYGGJUNNAR Einar Már Jónsson lítur á aðdraganda
hrunsins, aðgerðir og aðgerðaleysi í bók sinni Örlagaborginni.
LEIKHÚS
Núna!
Höfundar: Salka Guðmundsdóttir, Kristín
Eiríksdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson.
Leikstjórn: Kristín Eysteinsdóttir.
BORGARLEIKHÚSIÐ
SVONA ER ÞAÐ ÞÁ AÐ VERA
ÞÖGNIN Í KÓRNUM ★★ ★★★
SKRÍDDU ★★★ ★★
SKÚRINN Á SLÉTTUNNI
★★★★ ★
Borgarleikhúsið frumsýndi 12. apríl
síðastliðinn þrjú ný íslensk verk
undir yfirskriftinni Núna! Höfund-
ar verkanna voru sérstaklega vald-
ir til þess að setja upp sýningu um
íslenskan veruleika. Í stað þriggja
sjálfstæðra verka í fullri lengd
eru verkin aðeins um 30 mínútur
og sýnd hvert á eftir öðru. Kristín
Eysteinsdóttir er leikstjóri sýning-
arinnar. Verkin eru ólík en líkt og
titillinn felur í sér bregða þau upp
mynd af samtímanum og er þar
unnið með ýmsar birtingarmyndir
kynbundins ofbeldis.
Fyrst var verk Sölku Guðmunds-
dóttur Svona er það þá að vera
þögnin í kórnum. Þar notar Salka
samskiptamiðilinn Facebook til að
draga fram tómleikann og skeyt-
ingarleysið sem geta skapast í sam-
skiptum nútímans þrátt fyrir aukið
aðgengi hvort að öðru. Sýningin leið
fyrir sundurleitni. Það voru margar
hugmyndir í gangi í einu án sann-
færandi tenginga og Lára Hanna
Jónsdóttir átti í erfiðleikum með
að skapa sannfærandi innsýn inn í
hugar heim nauðgunarfórnarlambs.
Skríddu eftir Kristínu Eiríksdótt-
ur gerist í lítilli reykvískri íbúð. Þar
býr víðáttufælinn karlmaður ásamt
kærustu sinni en þau reyna í sam-
einingu að komast að svörum um
ólgandi tilfinningalíf og dularfullt
atferli nágranna síns. Verkið féll
best að formi sýningarinnar, hand-
ritið var hnitmiðað og flutningur
Unnar Aspar Stefánsdóttur og Vals
Freys Einarssonar hraður og lifandi.
Skúrinn á sléttunni eftir Tyrf-
ing Tyrfingsson segir frá drykk-
felldri eldri konu sem hefur flust
frá íslensku krummaskuði til norð-
ur-amerísks smábæjar. Tyrfingur
skapar hér aumkunarverðar pers-
ónur sem dýrka Tom Jones, George
Bush og sletta á enskri tungu af
mestu snilld. Túlkun Hönnu Maríu
Karlsdóttur á íslensk/amerísku
drottningunni var frábær.
Það sem er vel heppnað við sýn-
inguna Núna! er að áhorfendum
gefst færi á að kynnast þremur
nýjum höfundum á einu kvöldi.
Sviðsmynd Helgu Stefánsdóttur
var útfærð á mismunandi vegu til
þess að reyna að skapa tengingu á
milli ólíkra verka. Hins vegar gekk
formið ekki upp í öllum tilvikum.
Það var erfitt fyrir verkin að ná
verulegi flugi og stundum virtust
þau hafa verið stytt og aðlöguð að
hinum verkunum.
Þó það sé áhugavert að Borgar-
leikhúsið geri tilraunir með sýn-
ingarformið hefði heildarútfærslan
verið sterkari ef þau hefðu treyst sér
til að veðja á einn höfund.
Sólveig Sigurðardóttir
NIÐURSTAÐA: Gott tækifæri til að
kynnast þremur nýjum höfundum á einu
kvöldi. Verkið náði þó ekki almennilegu
flugi.
Bregða upp mynd af samtímanum
ÞRJÚ
LEIKVERK
Leikverkið
Núna! eru
þrjú stutt
leikverk í
einni sýn-
ingu. Verkin
eru ólík en
fjalla öll um
samtímann.