Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 51

Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 51
MÁNUDAGUR 15. apríl 2013 | SPORT | 23 s Jóns HANDBOLTI Íslendingaliðið Team Tvis Holstebro komst í dag í úrslit EHF-bikarsins þrátt fyrir tap, 23-17, gegn Midtjylland um helgina. Holstebro vann fyrri leikinn með sjö marka mun og skreið því inn í úrslitaleikinn með eins marks mun. Landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir léku báðar með Holstebro í leikn- um. Þ órey Rósa skoraði þrjú mörk en Rut lét sér eitt mark nægja að þessu sinni. L iðið mun mæta Metz frá Frakk- landi í úrslit- um. Komnar í úrslit EHF-bikarsins FORMÚLA 1 Ferrari-ökuþórinn Fernando Alonso vann kínverska kappaksturinn í Sjanghæ í gær eftir að Ferrari-liðið stillti upp frábærri keppnisáætlun. Finn- inn Kimi Raikkönen varð annar í Lotus-bílnum. Keppnin var spennandi alveg til enda og leiddu fjölmargir mótið á mismunandi tímum. Dekkin skiptu miklu máli enda voru mýkri dekk- in nánast ónothæf vegna þess hve hratt þau eyddust. Sebastian Vettel og Jenson Button ásamt Nico Hul- kenberg ræstu því á harðari gerð- inni og það gerði þá alla á mismun- andi tímapunktum að mögulegum sigurvegurum. Ferrari-bílarnir tveir náðu frá- bæru starti og komust á undan Raikkönen fyrir fyrstu beygju. Startið hjá Finnanum var lélegt en hann hélt þó fjórða sætinu fyrstu hringina. Hamilton þurfti svo fljótlega að víkja úr fyrsta sætinu fyrir Alonso og Massa. Hamilton varð á endanum þriðji en þurfti að hafa fyrir því á síð- asta hring þegar Vettel sótti hart að honum. Aðeins sekúndubrot skildu þá að þegar yfir endalín- una var ekið. Jenson Button varð fimmti fyrir McLaren og Felipe Massa sjötti. Daniel Ricciardo í Toro Rosso varð sjöundi eftir að hafa átt stór- koslegar tímatökur á laugardag og staðið sig vel í gær. Paul di Resta náði að sigla Force India-bílnum í höfn í áttunda sæti á undan Roma- in Grosjean og Nico Hulkenberg. Vettel leiðir enn stigabaráttuna með 52 stig en Kimi Raikkönen er nú með 49 og Alonso 43. Það lítur því út fyrir að titilbaráttan verði jöfn og skemmtileg í ár. - bþh Alonso var hraðastur í Sjanghæ Spánverjinn Alonso upp í þriðja sætið í stigakeppninni eft ir keppnina í Kína. FAGNAÐ Hamilton sprautar hér kam- pavíni yfir Alonso í gær. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Manchester United er vinsælasta enska knattspyrnu- liðið á meðal Íslendinga samkvæmt könnun Þjóðarpúls Capacent. Úrtakið var 1.422 Íslendingar en svarhlutfallið var 60 prósent. Samkvæmt könnuninni halda 19 prósent Íslendinga með Man- chester United en Liverpool er næstvinsælasta liðið. 17 prósent Íslendinga halda með Liverpool. Arsenal er þriðja vinsælasta liðið á landinu en 7,6 prósent styðja Skytturnar. 46,2 prósent svarenda héldu ekki með neinu sérstöku liði í ensku úrvalsdeild- inni. Manchester United og Liverpool eru sigursælustu lið sögunnar á Englandi. United hefur hampað enska meistaratitlinum 19 sinnum en Liverpool 18 sinnum. - sáp Man. Utd er vinsælast

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.