Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 1
ÖRYGGISMÁL Bilunin í þyrlu Land- helgisgæslunnar TF-GNA virðist ekki eins alvarleg og fyrst var talið. Allt útlit er fyrir að viðgerð ljúki fyrr en ætlað var og þyrlan verði jafnvel klár strax á morgun. Þá hefur Gæslan aftur tvær þyrlur tiltækar. Eins og greint hefur verið frá var björgunargeta Gæslunnar skert eftir að bilun kom upp í útkalli hjá Gná á fimmtudag. Þyrlan var stödd um tuttugu sjó- mílur frá landi þegar bilunin kom upp og var flogið til lands án tafar og lent á túni við bæinn Kvísker í Öræfum. Þyrlan var um helgina flutt með flutningabíl til Reykja- víkur þar sem ekki var unnt að gera við hana fyrir austan. Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs Gæsl- unnar, segir gælt við það að Gná verði komin í gagnið á morgun, en fyrir er TF-SYN. Til stóð að hraða skoðun á þriðju þyrlunni TF-LIF, en allt bendir til að þess gerist ekki þörf. - shá FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur 16 FUGLAR OG BLÓMSpennandi dagskrá verður í Grasagarðinum í vikunni. Á fimmtudaginn kl. 20 verður fjallað um aðferðir og vandamál við ræktun. Á sunnudag kl. 11 verður fjöl- skrúðugt fuglalíf skoðað á göngu um garðinn. Sjá nánar á www.grasagardur.is. NOTALEGT Það getur verið frábært að slappa af í sund-laugargarðinum. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara MEÐ AL SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 1. maí 2013 101. tölublað 13. árgangur Tvö þúsund í Silfru Aðsókn að köfun í gjánni Silfru í mars og apríl var miklu meiri en áætlað var áður en ákveðið var að innheimta gjald fyrir köfun. 2 Brotið á fötluðum Fatlaðar konur eiga frekar á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi en aðrar konur. 6 27 nýliðar Fimmtán karlar og tólf konur taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn eftir þingkosningarnar á laugardag. 8 Áfellisdómur Fangelsun fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu byggir ekki á lagalegum grunni að mati Mann- réttindadómstóls Evrópu. 10 SKOÐUN Samspil menntunar og vinnumarkaðar er lykilatriði segir for- maður BHM. 17 MENNING Sindri Snær Jensson fær allt að 4.000 heimsóknir á dag á herratískubloggið sitt. 42 SPORT Atvinnumannaskórnir eru komnir upp í hillu hjá Heiðari Helgu- syni eftir fimmtán ár erlendis. 36 VIÐSKIPTI Íslenska sprotafyrirtækið CLARA ehf. hefur verið selt bandaríska hugbúnaðar- fyrirtækinu Jive Software Inc. fyrir sem svarar um einum milljarði króna. Jive er skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í New York. Upplýst er um kaupin í ársfjórðungs- uppgjöri Jive. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins keypti fyrir um ári 18 prósenta hlut í CLARA. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur sjóðurinn með sölu fyrirtækisins tvöfaldað fjárfestingu sína á einu ári. CLARA, sem stofnað var í Reykjavík árið 2008, sérhæfir sig í að greina mikið magn af texta og draga út upplýsingar sem auðvelda viðskiptavinum að fá yfirsýn yfir umræðu sem myndast um fyrirtæki, vöru- merki og einstaklinga. Jive, sem stofnað var árið 2001 og er með aðsetur í Palo Alto í Kísildalnum í Banda- ríkjunum, framleiðir hins vegar sérsmíð- aða læsta samfélagsmiðla, sem starfsmenn stórra fyrirtækja nota í samskiptum við vinnufélaga sína. Að baki Jive standa svo fjárfestingafyrir- tækin Kleiner Perkins Caufield & Byers og Sequoia Capital. Þau eru þekkt fyrir fyrri fjárfestingar í tækniheiminum, svo sem í fyrirtækjum á borð við Apple, Instagram, Yahoo, Linkedin, Netscape, Amazon og Google. CLARA opnaði sölu- og markaðsskrif- stofu í Kísildalnum í Kaliforníu í mars árið 2011 og var þá í sama húsnæði og Google var í þegar það var nýstofnað. Félagið var þá fyrsta íslenska tæknifyrirtækið til að hefja starfsemi þar og eftir því sem næst verður komst fyrsta íslenska fyrirtækið sem bandarískt fyrirtæki úr Kísildalnum kaupir. - óká Sprotafyrirtæki selt á milljarð Sprotafyrirtækið CLARA er fyrsta íslenska fyrirtækið sem selt er til Kísildalsins í Bandaríkjunum. Kaupandinn er fyrirtæki skráð á Nasdaq í Bandaríkjunum og í eigu þekktra fjárfesta sem sérhæfa sig í tæknifyrirtækjum. Upplýsingatæknifyrirtækið CLARA var stofnað árið 2008 en á sínum tíma hættu stofnendur þess í námi í Háskóla Íslands til að stofna fyrirtækið. Frumkvöðl- arnir að baki CLARA eru Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, sem er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, og Jón Eðvald Vignisson. Gunnar Hólmsteinn er nýorðinn 27 ára gamall og Jón Eðvald er á 29. ári. Samkvæmt Creditinfo eiga Gunnar Hólmsteinn og Jón Eðvald hvor um sig 15 prósenta hlut í fyrirtækinu og ættu því að fá í sinn hlut um og yfir 150 milljónir vegna sölunnar til Jive Software. HÆTTU Í SKÓLA TIL AÐ STOFNA FYRIRTÆKIÐ JÓN EÐVALD VIGNISSON GUNNAR HÓLMSTEINN OPIÐ Í DAG 1. MAÍ FRÁ KL. 1000 TIL 2200 fyrir lifandi heimili – – Aðeins í dag Ekki missa af þessu 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Í HÖLLINNI SÓFAR | SVEFNSÓFAR | HÆGINDASTÓLAR | ELDHÚSSTÓLAR | BORÐSTOFUSTÓLAR | ELDHÚSBORÐ | BORÐSTOFUBORÐ | SÓFABORÐ | LAMPAR | PÚÐAR | GLERVARA OG FALLEG SMÁVARA OPIÐ Í DAG 1. MAÍ FRÁ KL. 1000 TIL 2200 fyrir lifandi heimili – – VINNAN Verkalýðsforinginn á Húsavík Með Vaðlaheiðargöngum og upp- byggingu á Bakka verður svæðið frá Akureyri til Þórshafnar orðið öflugt mótvægi við höfuðborgarsvæðið. 14 Íslenskur matvörumarkaður Af hverju gerir ASÍ verðkannanir? Er nauðsynlegt að hafa 18 matvöru- verslanir á höfuðborgarsvæðinu sem opnar eru allan sólarhringinn? 4 1. maí minning Sorteringarvélin í barnshöfðinu kom því heim og saman að gangan niðri í miðbæ 1. maí væri af hinu góða af því að henni var á einhvern dularfullan hátt beint gegn fyrirbærinu fátækt. 12 1. tölublað · 62 árgangur · Vor 2013 Tímarit Alþýðusambands Íslands VINNAN FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Viðgerð á Gná lýkur bráðum: Tvær þyrlur til- tækar fljótlega Bolungarvík -1° N 6 Akureyri -1° NV 8 Egilsstaðir -1° NNV 7 Kirkjubæjarkl. 1° NA 2 Reykjavík 2° NA 7 Svalt í dag Norðlægar áttir ríkja í dag, víða gola eða stinningsgola. Nokkuð bjart sunnan- og suðvestanlands en stöku él við norðurströndina. 4 Bjarni Benediktsson segist ekki taka þátt í viðræðum við Fram sóknar- flokkinn um myndun ríkisstjórnar á meðan Framsókn ræðir við aðra. Hann vill enn tveggja flokka stjórn en segir að verið sé að ýta sér út í viðræður við aðra flokka. „Ég er ekki í neinum viðræðum,“ segir Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, spurður út í gang stjórnarmyndunar- viðræðna. „Ég ræði ekki við menn um myndun nýrrar ríkis- stjórnar sem eru á sama tíma í viðræðum við aðra flokka.“ Spurður hvort Fram- sókn ráði ekki ferð- inni segir Bjarni: „Stjórnarmyndunar- umboðið nær bara svo og svo langt. Ef menn vilja halda öllu galopnu, þá er einfaldlega allt galopið. Ef menn vilja hefja alvöru viðræður, þá hefja menn alvöru viðræður.“ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti í gær Sigmundi Davíð umboð til stjórnarmyndunar. Sig- mundur sagðist ætla að hitta formenn allra flokka sem náðu mönnum á þing. - kóp / sjá síðu 4 Bjarni Benediktsson segist ekki ræða við þá sem eru einnig að ræða við aðra: Ýtt út í viðræður við aðra flokka 2013 BJARNI BENEDIKTSSON ÚTLITIÐ GOTT Flugvirkjar unnu hörðum höndum að viðgerð björgunarþyrlunnar TF-GNA í gær. Flestallir varahlutir eru í hendi og þeir síðustu væntanlegir í kvöld. Þess er vænst að strax á morgun hafi Landhelgisgæslan því tvær þyrlur til umráða, sem er fyrr en von var á. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.