Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 30
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
BAKÞANKAR
Svavars
Hávarðssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. mats, 6. samtök, 8. besti árangur,
9. hár, 11. fíngerð líkamshár, 12.
fáni, 14. högg, 16. í röð, 17. skrá, 18.
prjónavarningur, 20. átt, 21. einsöngur.
LÓÐRÉTT
1. blað, 3. hljóm, 4. grasplanta,
5. arinn, 7. kviknakinn, 10. gums, 13.
hola, 15. útungun, 16. spíra, 19. ætíð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dóms, 6. aa, 8. met, 9. ull,
11. ló, 12. flagg, 14. spark, 16. áb, 17.
tal, 18. les, 20. sa, 21. aría.
LÓÐRÉTT: 1. lauf, 3. óm, 4. melgras, 5.
stó, 7. allsber, 10. lap, 13. gat, 15. klak,
16. ála, 19. sí.
Sælir
stórnefur!
Hvað í ...!
Eitthvað
gott í glas
takk fyrir!
Ég ætla ekki
að hræða þig
en þú ert með
íkorna fastan við
hausinn á þér!
Ertu að tala um
þetta? Þetta er
bara eitthvað
sem ég gerði
til að gleðja
Kamillu!
Stærra
tagl?
Hún var komin
með leið á
þessu litla!
Týpískt konur,
stærðin
skiptir máli!
Já, ég vissi alltaf
að það var nefið
sem heillaði
konuna þína!
Viltu að ég
láti þig fá
þennan?
Í
alvörunni!
Herbergið þitt er
eins og tjaldbúðir
í eyðimörkinni
mínus kamel-
dýrið!
Sniff! Sniff!
Ég tek þetta til baka...kameldýrið
hlýtur að vera hérna
einhvers staðar líka.
Ég sagði þér að ég
myndi fara í sturtu
á morgun!
Ósýnilegi
maðurinn
Ég skil ekki
þetta stærð-
fræðidæmi.
Við skulum nota
þetta nammi til
að skilja betur.
Ég set tíu nammi fyrir framan þig og
bið svo um sex til baka, hvað eru þá
mörg eftir?
Ekkert.
Allt í lagi, prufum þetta
með brokkólí...
Nú er svo komið að í hvert sinn sem ég fer úr fötunum verður mér
hugsað til Jóhönnu Sigurðardóttur,
fráfarandi forsætisráðherra. Ég get
útskýrt.
HVERNIG nekt mín tengist þessum
ástsæla formanni jafnaðarmanna á
rætur sínar að rekja til ölæðis í þýskri
hafnarborg árið 1984. Þá taldi ég mig
vera togarajaxl. Í þeim anda ráfaði ég
inn á einhverja ömurlegustu drykkjar-
holu í gjörvallri Brimarhöfn og heimt-
aði romm – og húðflúr sem var þar
einnig í boði. Á þessari húðflúrstofu
andskotans slengdi ég horuðum
handleggnum yfir barborðið og
treysti einhverjum manngarmi fyrir
því að breyta ásýnd minni til eilífð-
arnóns. Eftirtekjan? Frekar illa
teiknuð rauð rós á löngum stilk –
ekki ósvipuð þeim sem Jóhanna
fékk í fangið fyrir framan
Stjórnarráðið á dögunum.
MAMMA hafði varað mig
við því að láta flúra mig.
Sagði að sú stund rynni upp að
ég liti á öxlina á mér og spyrði í
forundran hvern andskotann ég
hefði verið að pæla. En áður
en ég viðurkenni að hún
hafi haft rétt fyrir sér segi
ég þetta. Ég er þeirrar
skoðunar að við séum allt
of upptekin af því að flokka gjörðir
okkar í fortíðinni með neikvæðum for-
merkjum. Ef maður meiðir engan má
gera ráð fyrir því að þessi litlu atvik
séu oftar en ekki til góðs – og því algjör
óþarfi að láta þau rífa sig niður.
ÉG SÉ til dæmis ekki eftir því að hafa
sent Páli Björnssyni, formanni Sagn-
fræðingafélags Íslands, erótískan
tölvupóst sumarið sem ég var að stíga í
vænginn við konuna mína. Páll svaraði
mér um hæl – sagðist vera upp með sér
en gera ráð fyrir því að sendingin hefði
verið ætluð öðrum. Sporin inn á næsta
stjórnarfund félagsins voru vissulega
þung en þetta hafði engin teljandi áhrif
á samskipti okkar til lengri tíma litið.
ÉG LÆRÐI mína lexíu – og þannig á
maður að moða úr hverri lífsreynslu.
Síðan þetta var vanda ég mig til dæmis
alltaf sérstaklega þegar ég sendi tölvu-
póst. Því var það í textaskilaboðum í
gegnum síma sem ég bað á dögunum
Bjarna Benediktsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, að henda fyrir mig
þremur kartöflum í pott áður en ég
kæmi heim úr vinnu. Rétt eins og Páll
tók hann erindi mínu með jafnaðargeði.
EF GUÐ lofar bíður mín hins vegar
langt líf með Jóhönnu og rósinni. Mikið
er ég samt feginn að vera jafnaðar-
maður – svona eftir á séð.
Formennirnir í lífi mínu
Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is,
í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Í DAG!
#laddilengirlifid
„Laddi er e
ngum líkur
...Hann er þ
jóðargerse
mi.“
Pressan.is
„Stórkostle
g sýning!“
- Heimir Ka
rlsson, Bylg
jan
„Sprenghlæ
gileg sýning
fyrir allan a
ldur!“
- Sirrý, Rás
2
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS