Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 8
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 2013 Tuttugu og sjö nýir þingmenn taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Það þýðir nær helmings endurnýjun á næsta þingi. Flestir nýliðanna eru úr Framsóknarflokknum, eða tólf, en næstflestir úr Sjálfstæðisflokknum, eða átta. María Lilja Þrastardóttir maria@frettabladid.is ÞESSI ERU LÍKA NÝ Á ÞINGI Aldur: 30 Menntun: B.A.-próf í sálfræði frá HÍ. M.Sc í mannauðs- stjórnun frá Há- skólanum í Lundi. Og bráðum vonandi klára ég M.Sc.-próf í heilsuhagfræði í HÍ. Grunar samt að ég verði svolítið upp- tekin næstu fj ögur ár. Búseta: Í 101 Reykjavík en ávallt með annan fótinn í heimahögunum að Torfa- stöðum í Biskupstungum. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. BJÖRT ÓLAFSDÓTTIR (A) Aldur: 44 Menntun: Er með B.A.-gráðu í við- skiptatungumálum frá háskólanum í Óðinsvéum, leið- söguréttindi og lærði innanhússhönnun í Perugia á Ítalíu. Búseta: Bý á Akur- eyri. Ég vona að okkur beri gæfa til að vinna vel saman í þinginu þvert á flokka. Ég er bjartsýn á það takist. BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR (A) Aldur: 37 Menntun: Ég er grunnskólakennari að mennt og út- skrifaðist frá Kenn- araháskóla Íslands 2005, með B.ed.-próf í grunnskólakennara- fræðum. Búseta: Ég bý á Akranesi en ólst upp í Stóra-Lambhaga í Hvalfj arðarsveit, á Akranesi og Höfn í Hornafi rði. Með jákvæðni og virðingu meðal þingmanna tel ég að Alþingi verði góður staður til að vinna á. ELSA LÁRA ARNARDÓTTIR (B) Aldur: 25 Menntun: Húsa- smiður og stúdent frá FSu. Er núna á þriðja ári í um- hverfi s- og bygg- ingaverkfræði. Búseta: Bónda- sonur frá bænum Urriðafossi, en bý í Reykjavík. Hef mikið gaman af íþróttum og er í frjálsum. Búinn að æfa í fimm ár og er Íslandsmeistari í 60 metra hlaupi. „Vilji er allt sem þarf.“ HARALDUR EINARSSON (B) Aldur: 33 Menntun: Menntun mín er nær alfarið af internetinu en ég var í sex grunnskólum, minnir mig. Annars sjálfl ærður í öllu sem ég geri. Búseta: Ég ólst upp í Hafnarfi rði, Kópa- vogi og undir Austur- Eyjafj öllum og bý nú í Reykjavík. Jafnvel biluð klukka hefur rétt fyrir sér tvisvar á dag. HELGI HRAFN GUNNARSSON (Þ) Aldur: 21 Menntun: Búfræð- ingur frá Bændaskól- anum á Hvanneyri. Fyrri störf: Bóndi og ýmis þjónustu- störf. Búseta: Látur, Mjóa- fi rði, Ísafj arðardjúpi. Skilaboð til unga fólksins: Við getum látið til okkar taka, aldur er afstæður. JÓHANNA MARÍA SIGMUNDSDÓTTIR (B) Aldur: 36 Menntun: Stúdent frá MR. Misseri í heimspeki og hátt í þrjú misseri í við- skiptafræði við HÍ. Búseta: Bergstaða- stræti, 101 Reykjavík. Ég vil gera orð Ásgeirs Trausta að mínum: „Oft er dýrð í dauðaþögn.“ JÓN ÞÓR ÓLAFSSON (Þ) Aldur: 48 Menntun: Líff ræð- ingur með kennslu- réttindi. Búseta: Fáskrúðs- fj örður. Ég er spennt og þakklát og auðmjúk. Ég er viss um að þetta verður erfitt og krefjandi en tekst á við þetta með opnum hug. LÍNEIK ANNA SÆVARSDÓTTIR (B) Aldur: 55 Búseta: Grindavík. Menntun: Vél- fræðingur með skip- stjórapróf. Af 63 þingmönnum er lágmark að sé að minnsta kosti einn sem þekkir sjávarútveginn af eigin raun. Það hefur verið ráðist á menn úr mínum geira úr ýmsum áttum og ég á alveg eins von á óvæginni gagnrýni. Ég verð samt bara ég sjálfur áfram, hef allavega ekki fundið fyrir breytingu. PÁLL JÓHANN PÁLSSON (B) Aldur: 39 Menntun: B.A.-próf í sagnfræði frá Há- skóla Íslands. Búseta: Innri- Njarðvík. Þjóðin stendur á tíma- mótum. Í framtíðinni felast ótal möguleikar og tækifærin blasa við. Ég hlakka til að taka sæti á Alþingi og fá að taka þátt í að móta framtíð Íslands. SILJA DÖGG GUNNARSDÓTTIR (B) Fimmtán karlar og tólf konur Aldur: 57 Menntun: B.A.-próf í íslenskum fræðum, kennslu- og upp- eldisfræði, diplóma í stjórnun og ýmis starfstengd nám- skeið. Búseta: Bý á Laugum. Ég er alin upp á lands- byggðinni og vil því auka veg hennar. Hef unnið að mennta- málum og vil einnig beita mér þar. Fyrir mér er mikilvægt að hlusta á kröfur fólksins. Ég hlakka til að taka þátt. VALGERÐUR GUNNARSDÓTTIR (D) Aldur: 30 Búseta: Fæddur og uppalinn í Skagafi rði. Flutti árið 2008 til Grindavíkur. Menntun: Hyggst ljúka B.A.-prófi við lagadeild Háskól- ans í Reykjavík í ár, ökukennararétt- indi, útskrifaðist úr Lögregluskóla ríkisins árið 2006 og lauk stúdentsprófi af viðskipta- og hagfræðibraut við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2004. Ég hlakka til að vinna með þjóðinni að því að byggja hér upp enn betra samfélag þar sem landsbyggðin og höfuð- borgin munu styðja hvor aðra. VILHJÁLMUR ÁRNASON (D) Aldur: 47 Menntun: Gagn- fræðingur frá Skógaskóla, nám í markaðsfræðum og hef stundað kúrsa í mannauðsstjórnun. Búseta: Bý í Garði en er frá Vestmanna- eyjum. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við nýtt starf. Ætla að gera þetta á minn hátt, setja á starfið mitt fingrafar. Þó að ég segi sjálfur, þá er ég afkastamikill morgunhani. Vinnan mín er mitt áhugamál. ÁSMUNDUR FRIÐRIKSSON (D) Aldur: 59 ára Menntun: Diplóma- próf í opinberri stjórnsýslu og diplóma í rekstrar- og viðskiptafræðum. Búseta: Bý á Sel- tjarnarnesi og hef gert í 15 ár. Ég hef nýlega tekið þátt í að gefa út öll tónverk Sigfúsar Halldórssonar á nótum ásamt æviágripi, í félagi við nokkra æskufélaga úr Kópavoginum. Er forfallinn ástríðukokkur og er að leita að útgefanda að uppskriftunum mínum. ÞORSTEINN SÆMUNDSSON (B) Aldur: 49 Menntun: Grunn- skólakennari. Búseta: Hauksstaðir í Vopnafi rði. Ég hef fulla trú á landi og þjóð og veit að við getum haft það gott í þessu landi. Ég er hvorki stressuð né kvíðin fyrir því sem fram undan er. ÞÓRUNN EGILSDÓTTIR (B) SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR (B) fyrrv. borgarfulltrúi. FROSTI SIGURJÓNSSON (B) rekstrarhagfræðingur. BRYNJAR NÍELSSON (D) hæstaréttarlögmaður og formaður Lögfræðinga- félagsins. ELÍN HIRST (D) fyrrverandi fréttastjóri. ÓTTAR PROPPÉ (A) borgarfulltrúi og tónlistarmaður. KARL GARÐARSSON (B) fyrrverandi fréttastjóri. HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR (D) borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks. HARALDUR BENEDIKTSSON (D) formaður Bændasamtaka Íslands. BJARKEY GUNNARSDÓTTIR (V) varaþingmaður Vinstri grænna. WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON (B) knattspyrnuþjálfari. VILHJÁLMUR BJARNASON (D) framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta. Aldur: 51 Menntun: Grunn- skólakennari. Búseta: Grindavík. Meist- arar verða ekki til í leikfimi- salnum. Meistarar verða til úr því sem býr dýpst í þeim sjálfum; ástríðu, draumi, hugsjón. Þeir þurfa að hafa bæði leikni og vilja. En viljinn verður að vera sterkari en leiknin. – Muhammad Ali PÁLL VALUR BJÖRNSSON (A)

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.