Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 18

Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 18
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18 Í aðdraganda kosninga snerist umræða um heil- brigðismál að mestu um afstöðu framboða til bygg- ingar nýs Landspítala. Að byggja eða ekki byggja. Flest framboðin eru fylgj- andi þeirri stefnu sem alið hefur verið á síðustu ár, að þjóðin þurfi nýjan Land- spítala. Slagorð tilvonandi framkvæmdar eru fyrir nokkru orðin mantra þjóð- arinnar: Úreltur tækja- kostur og Landspítal- inn er starfræktur á 17 stöðum, þar af leiðandi þarf þjóðin nýjan Land spítala af þegar skilgreindri stærðargráðu. Heilbrigðisþjónust- an þarf á innspýtingu að halda. Það geta allir verið sammála um, hvaða flokk sem þeir styðja. Hins vegar hafa aðrir valmöguleikar við nýjan Landspítala ekki verið settir fram og engu líkara en laga eigi heil- brigðisþjónustu þjóðarinnar í eitt skipti fyrir öll með þeirri stöku framkvæmd. Heilbrigðisstarfsmenn eru því í erfiðri stöðu þegar þeim er boðin þessi stóra framkvæmd eftir ára- tugalangt svelti. Það segir því eng- inn „nei takk“ því það eru engir aðrir valmöguleikar settir fram. Er bygging þarfasta framkvæmdin? En er bygging nýs Landspítala þarfasta framkvæmdin í eflingu heilbrigðisþjónustunnar? Tækja- kostur íslenskrar heilbrigðis- þjónustu er síst minni en annarra OECD-landa og sömuleiðis er notk- un þessara tækja meiri en þekk- ist meðal viðmiðunarþjóða okkar innan OECD. Starfsstöðvafjöldi Landspítalans er einnig hluti af möntrunni um nauðsyn bygging- ar nýs spítala. Í því samhengi væri fróðlegt að bera það saman við aðrar stofnanir eins og t.d. Háskóla Íslands – hvað ætli hann sé rekinn á mörgum stöðum? Það þarf ekki endilega að vera slæmt. Ein rökin sem nefnd hafa verið fyrir byggingu nýs Landspítala er að eftirstríðskynslóðirnar stóru, sem sprengdu grunn-, framhalds- og háskólana á sínum tíma, þurfi nú stærri spítala þar sem þær þurfi nú á vaxandi heilbrigðis- þjónustu að halda. Aldrað fólk þarf ekki lækningu á spítala, þó þörf þess fyrir heilbrigð- isþjónustu aukist. Aldr- aðir þurfa fyrst og fremst grunnheilbrigðisþjónustu sem undirbúa þarf með eflingu heilsugæslunnar og félagsþjónustunnar, sem og fjölgun hjúkrunar rýma. Ofuráhersla á byggingu Gildandi lög um heilbrigðismál og heilbrigðisáætlun velferðarráðu- neytisins sem mótar framtíðarsýn og setur markmið í heilbrigðis- málum fram til ársins 2020, und- irstrika að tryggja eigi grunnheil- brigðisþjónustu, sem hérlendis er byggð upp af heilsugæslustöðvum. Ofuráhersla á byggingu nýs spít- ala til að koma heilbrigðisþjón- ustu þjóðarinnar til bjargar hefur réttilega verið kallað stefnurek (e. policy drift) heilbrigðisþjónust- unnar, þar sem lagasetning og heil- brigðisáætlun taka mið af trygg- ingu grunnheilbrigðisþjónustu en framkvæmdaþátturinn stang- ast hins vegar á við það og miðast fyrst og fremst að því að styrkja sérhæfða heilbrigðisþjónustu með byggingu nýs Landspítala. Í fullkomnum heimi gætum við gert hvort tveggja, ráðist í stórar framkvæmdir til að styrkja bæði sérhæfða heilbrigðisþjónustu og grunnheilbrigðisþjónustu, því þörfin er vissulega fyrir hendi á báðum stöðum. En það er því miður ekki veruleiki okkar, síst af öllu í hægu bataferli eftir efnahagslegt hrun. Hætt er við því að ekki verði meira til skiptanna fyrir eflingu heilbrigðisþjónustu í fjárlögum næstu ára, ef af þessari dýru fram- kvæmd verður. Sú framtíðarsýn er uggvænleg fyrir grunnheilbrigðis- þjónustu sem þegar þarf sárlega á styrkingu að halda. Því hljótum við að verða að spyrja okkur, er bygging nýs Land- spítala þarfasta framkvæmdin í eflingu heilbrigðisþjónustunnar? Að byggja eða ekki byggja nýjan Landspítala Á Íslandi hefur náðst markverður árangur í að vinna úr því efna- hagshruni sem varð árið 2008. Helstu hagvísar eru til sannindamerk- is um þessa breytingu. Vextir eru 6%, verð- bólga um 3%, hagvöxtur nálægt 2%, ríkissjóð- ur nær hallalaus, gengi krónunnar hefur styrkst og ríkið getur fjármagn- að sig á erlendum mörk- uðum. En þó að þjóðin sé komin langan veg frá því hruni og góður grunnur lagð- ur að lífskjarasókn standa eftir mörg óleyst verkefni, sem munu hafa áhrif á hversu vel okkur mun farnast. Langstærsta verkefni næsta kjörtímabils er að ná árangri í afnámi gjaldeyrishafta til að ljúka megi því efnahagslega uppgjöri sem varð við fall stóru viðskiptabankanna. Umfang þess er stjarnfræðilegt hvernig sem á það er litið en hagkerfi þrotabúanna losar líklega um 2.700 milljarða króna, sem er rúmlega ein og hálf landsfram- leiðsla. Ekki er bráð hætta af umfangi þessa hagkerfis og hluti þess er erlendar eignir. Töf veldur þrýstingi á krónu Aftur á móti vex stór hluti eign- anna og býr sífellt til nýjar „aflandskrónur“ innan hafta eða krónur sem vilja rata aftur til erlendu eigenda sinna og skapa því þrýsting á gengi krónunnar. Því lengur sem það tekur að afnema höftin því meira vex þessi krónueign, sem þýðir að enn meiri þrýstingur skapast á gengi krónunnar. Fyrir utan þessa sístækk- andi krónueign eru fram undan gjalddagar orku- fyrirtækja í erlendri mynt, afborganir ríkis- sjóðs og sveitarfélaga á erlendum lánum. Erf- itt er að sjá þegar allir þessir þættir leggjast saman að afgangur af vöruskiptum dugi til að standa undir útgreiðslum sem og er gert ráð fyrir að inn- flutningur eigi eftir að aukast. Ríkt hagsmunamál Ef illa tekst til við afnám hafta mun það hafa afdrifaríkar afleið- ingar fyrir íslenskt efnahagslíf. Of mikill þrýstingur á krónuna vegna útgreiðslna í erlendri mynt myndi þýða fall hennar. Fyrir heimilin í landinu þýddi fall hennar mikla lífskjaraskerðingu vegna þess verðbólguskots sem fylgdi í kjölfarið. Viðlíka vaxta- hækkun við slíkt verðbólguskot, eins og ráðist var í í hruninu, myndi að öllum líkindum endan- lega kæfa hagkerfið. Þessi dökka mynd er ekki sett fram til að vekja ótta hjá neinum heldur ein- ungis til að útskýra hversu ríkt hagsmunamál það er að vel takist til við afnám gjaldeyrishafta. Samstillt átak tryggir árangur Það er líka full ástæða til að ætla að með samstilltu átaki geti náðst farsæl niðurstaða í afnámi hafta. Í dag starfar þverpólitísk nefnd um afnám hafta en innan þeirrar nefndar hefur verið rík samstaða um þau markmið sem skal hafa að leiðarljósi við ferlið. Þau eru að höftin verða ekki afnumin nema heildræn lausn finnist sem tryggi hags- muni þjóðarbúsins fyrst og síð- ast. Slíkt gæti m.a. þýtt samn- inga við kröfuhafa um skilmála útgreiðslna þar sem krónueignir eru verðfelldar eða skattlagn- ingu við útgreiðslu. Allavega er ljóst að kröfuhafar eru ekki í forgangi þegar kemur að afnámsferlinu heldur einungis það sem tryggir hér fjármála- og gengisstöðugleika. Afnáms- ferli sem gjaldfellir krónur hér innanlands til að tryggja kröfu- höfum útgreiðslur er misheppn- að afnámsferli. Skilningur á þessu atriði tryggir þá nauðsyn- legu samstöðu sem þarf til að ná árangri. Samstaða um afnám gjaldeyrishafta ➜ Þjóðin þarf á öðru að halda en því sem oft er kallað „sterk stjórn“ fyrir það eitt að vera meirihluta- stjórn… GJALDEYRIS- HÖFT Huginn Freyri Þorsteinsson situr í nefnd um afnám gjaldeyrishaft a ➜ Of mikill þrýstingur á krónuna vegna útgreiðslna í erlendri mynt myndi þýða fall hennar. Fyrir heimilin í landinu þýddi fall hennar mikla lífskjaraskerðingu vegna þess verðbólguskots sem fylgdi í kjölfarið. Af því tilefni að friðun dýrmætra útivistarsvæða borgarbúa er til umfjöll- unar skorar undir rituð, íbúi í Reykjavík, á þig, kæri borgarstjóri, að snúa leiftursnöggt við mark- vissum lögbrotum á hinni einstöku útivistarperlu Úlfarsfelli. Úrskurðar- nefnd umhverfis- og auð- lindamála felldi úr gildi byggingarleyfi fyrir fjar- skiptamöstrum á toppi fellsins fyrir rúmu hálfu ári með þeim rökum að engin lagastoð hefði verið fyrir leyfinu. Úlfarsfell er skilgreint óbyggt svæði til útivistariðkunar og ólög- legt að byggja þar nema í mesta lagi göngustíga að gefnum ströng- um skilyrðum samkvæmt gild- andi aðalskipulagi. Þrátt fyrir það sýnir starfsfólk Reykjavíkurborg- ar engin merki þess að gera Voda- fone að fjarlægja hin ólöglegu mannvirki, þvert á móti. Í því ljósi er undarlegt að ræða friðun mikil- vægra útivistarsvæða borgarinn- ar eins og Öskjuhlíðar og Elliða- árdals á meðan staðið er að því að fórna stórfenglegri náttúruperlu innan borgarmarka í þágu hags- muna stórfyrirtækis. Við hljótum að gera þá kröfu að starfsmenn borgarinnar, launþegar hjá mér og þér, vinni starf sitt af heilind- um og heiðarleika og fari að lands- lögum án undantekninga. Byggingarfulltrúi, borgar- fulltrúar og skipulagsstjóri hafa um mánaða skeið komið fram við íbúa og félagasamtök sem láta sig framtíð Úlfarsfells varða á þann hátt að þeim sé það í sjálfsvald sett að hlíta opinberum úrskurð- um og ályktunum; barið höfði við stein andspænis þeirri stað- reynd að engin lög heimiluðu afhendingu umrædds bygging- arleyfis til aðila sem fóru fram með gríðarlegu jarð- og náttúru- raski á kórónu einhverrar vinsæl- ustu útivistarperlu höfuðborgar- svæðisins. Almennum borgurum var hvergi gefinn kostur á lýð- ræðislegri aðkomu vegna leyfis- veitingarinnar, eins og lög gera ráð fyrir, sem er alvarlegt umhugsunarefni og ástæða til að spyrja hvers vegna meðvitað og markvisst var sneitt hjá lögbundnu ferli. Framganga Vodafone Starfsmenn Vodafone sem fóru fyrir framkvæmdum á Úlfarsfelli voru ekki til viðræðu við fólk um þær varanlegu eyðileggingar á hlíðum og tindi fellsins sem fyrirtækið stóð fyrir með fjölda stórvirkra vinnuvéla, eða þá staðreynd að fegursti tindur fells- ins yrði vegna ójónaðrar geislun- ar girtur af og ekki ætlaður fólki í framtíðinni. Í stað þess að sýna umhyggju fólks fyrir umhverfi sínu skilning og virðingu var talað í niðurlægjandi tóni til almennra borgara og yfirverkstjóri sýndi af sér slíkan hroka að milljóna aug- lýsingar fyrirtækisins nú í öllum fjölmiðlum og strætóskýlum um góð samskipti, virðingu og þolin- mæði hljóma eins og loftsteina- drífa. Þolinmæði var ekki til að dreifa þegar starfsmenn hlógu að þeim sem bentu á að skynsamlegra væri að fyrirtækið hinkraði með óafturkræft jarðrask á útivist- arperlu meðan kæra væri í ferli varðandi lögmæti þess. Efstihnúkur á heimsmælikvarða Efstihnúkur sem nú hefur verið höggvinn sundur er útsýnispallur á heimsmælikvarða og líklega fá dæmi um annað eins víðsýni í höf- uðborg. Af hnúknum ber m.a. fyrir augu: Snæfellsjökul, Snæfells- nes, Akranes, Akrafjall, Botnsúl- ur, Esju, Ármannsfell, Kistufell, Skálafell, Hrafnabjörg, Kálfs- tinda, Dyrfjöll, Hengil, Hengils- svæði, Húsmúla, Skarðsmýrar- fjall, Bláfjöll, Keili, Suðurnes, Reykjavík, sund, eyjar, Geldinga- nes, Mosfellsdal, Reykjadal, Úlf- arsárdal, Hafrafell, Hafravatn, Reynisvatn, Hólmsheiði … Orð Guðbjargar Thoroddsen um ætlun Gríms Norðdal, fyrr- verandi eiganda jarðarinnar Úlf- arsfells og Efstahnúks, lýsa vel hug og hugsjónum þeirra sem best til þekkja: „Grímur var hug- sjónamaður sem unni mannfólkinu fyrst og fremst. Hann gaf Reykja- lundi í Mosfellsbæ Efstahnúk fyrir mörgum árum og sagði hann mér ánægður frá því að hann hefði látið það fylgja gjöfinni að gerður yrði akfær vegur upp á Efstahnúk til að fatlaðir kæmust þangað upp til að sjá það einstaka og stórkostlega útsýni sem þaðan er. […] Nú eftir að Reykjavík kaupir þetta svæði er engin virðing og lítið um hugsjón- ir fyrir utan þá einu sem er „hver á auðinn og völdin“ og það skal ráða för. Væri nú ekki skárra að gera þarna eitthvað fallegt í anda Gríms sáluga og láta mastur […] eitthvert annað þar sem ekki er náttúruperla?“ Úlfarsfell er óumdeilanlega í sérflokki vegna víðsýnisins en á sama tíma lífræn heild þar sem einstakar fuglategundir eiga aðsetur, þar á meðal sjaldgæfar uglur. Engan þarf því að undra þann fjölda fólks sem fjallið laðar að dag hvern. Borgin leiðrétti lögbrot Brotalöm í stjórnsýslu borgar- innar sem opinberast með þeim hætti að embættismenn og borg- arfulltrúar hampa stórfyrirtæki á kostnað réttlætis og lýðræðis og reyna að fengnum dómi að sveigja reglugerðir að röngum ákvörðun- um eftir á tilheyrir ekki heiðar- legri og skemmtilegri stjórnsýslu af því tagi sem þú stendur fyrir og vilt skapa, kæri borgarstjóri. Lögbrot eru ekki valkvæð í opin- berum störfum heldur kalla á leið- réttingu. Kæri Jón, friðum Úlfarsfellið! HEILBRIGÐIS- MÁL Guðlaug Einarsdóttir ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur NÁTTÚRU- VERND Þórdís Hauksdóttir framhaldsskóla- kennari ➜ Úlfarsfell er óumdeilan- lega í sérfl okki vegna víðsýnisins en á sama tíma lífræn heild þar sem ein- stakar fulglategundir eiga aðsetur, þar á meðal sjald- gæfar uglur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.