Fréttablaðið - 23.05.2013, Page 2
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Helgi, ertu þá orðinn lögsögu-
maður Íslendinga?
„Það veit ég ekki, en ég get allavega
„gædað“ menn um vegi rétt-
vísinnar.“
Helgi Jóhannesson er nú bæði leiðsögu-
maður og lögmaður á Lex eftir að hafa lokið
námi við Leiðsöguskólann.
DANMÖRK Frank Jensen, yfir-
borgar stjóri Kaupmanna hafnar,
vill að borgin fái heimild til að
selja hass. Hann telur að með
þessu megi auka tekjur borgarinn-
ar um mörg hundruð milljónir á
hverju ári. Þetta kemur fram á vef
dagblaðsins Jyllands Posten.
Peningana vill Jensen meðal
annars nota til að efla forvarnar-
starf gegn fíkniefnum. Minnihlut-
inn í borgarstjórn gagnrýnir tillög-
una og telur að með því að lögleiða
hass aukist fíkniefnavandinn. - hks
Ný tekjulind fyrir Köben:
Borgarstarfs-
menn selji hass
SPURNING DAGSINS
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
... ný bragðtegund
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
- 1
1-
05
09
H
VÍ
TA
H
Ú
SSI
Ð
/
SÍ
A
- 1
1-
05
09
Ný bragðtegund
með
pizzakryddi
Ný viðbót í ...
... baksturinn
... ofnréttinn
... brauðréttinn
... súpuna
eða á hrökkbrauðið
PÓLLAND, AP 33 ára gamall Pólverji fékk grætt á sig nýtt andlit aðeins
þremur vikum eftir að hann lenti í alvarlegu vinnuslysi sem eyðilagði
andlit hans. Aldrei mun hafa liðið svo skammur tími milli slyss og
ágræðslu á andliti.
Venjulega tekur mánuði eða ár að undirbúa svo umfangsmiklar
aðgerðir eins og andlitságræðslu. Læknar sögðu hins vegar að ástandi
mannsins hefði hrakað svo hratt að ágræðsla hafi verið eina bata vonin.
Hann gat hvorki andað né nærst sjálfur vegna skemmda á munni og
beinum.
Aðgerðin var gerð 15. maí og tók 27 klukkustundir. „Við gerum ráð
fyrir því að aðgerðin geri sjúklingnum kleift að eiga eðlilegt líf á ný,“
sagði skurðlæknirinn Adam Maciejewski um batahorfurnar. Þó er enn
mikil hætta á að hann fái sýkingar, og er hann því í einangrun. - þeb
Pólverji fékk nýtt andlit og bein þremur vikum eftir slys:
Aldrei sneggri við andlitságræðslu
NÝTT ANDLIT Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur en spítalinn sendi fjöl-
miðlum þessa mynd í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Kennslanefnd
ríkislögreglustjóra lauk í gær
störfum sínum við rannsókn
mannabeina sem fundust við
Kaldbaksvík á Ströndum.
Maðurinn hét Gunnar
Gunnars son og var fæddur árið
1962. Gunnar féll útbyrðis af
Múlabergi SI-22, djúpt út af
Húnaflóa þann 12. desember
2012.
Ættingjum Gunnars var
tilkynnt um niðurstöðu
rannsóknar innar í gær. - mlþ
Maðurinn sem fannst látinn:
Féll útbyrðis af
Múlabergi SI-22
DÓMSMÁL „[S]tefna máls þessa
er sögð hafa verið birt á heimili
stefnda klukkan 21.18 að kvöldi
föstudagsins 5. október 2012 fyrir
einhverjum Gunnari Birkissyni,
sem er sagður hafa verið staddur
þar. Stefndi kannast ekkert við
þennan Gunnar Birkisson.“
Svo segir í greinargerð Sigur-
jóns Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, í
máli slitastjórnar bankans gegn
honum og tveimur öðrum fyrr-
verandi starfsmönnum, Stein-
þóri Gunnarssyni og Yngva Erni
Kristinssyni.
Í málinu, sem Fréttablaðið
sagði frá í gær, er þremenning-
unum stefnt til að greiða þrota-
búi Landsbankans 1,2 milljarða
vegna kaupa bankans á bréfum
í bankanum sjálfum, Eimskipum
og Straumi frá nóvember 2007 og
fram í júlí 2008.
Sigurður G. Guðjónsson, lög-
maður Sigurjóns, byggir meðal
annars á því í greinargerð sinni
vegna málsins að krafan sé í
raun fyrnd,
enda hafi stefn-
an ekki verið
birt Sigurjóni
með lögmætum
hætti síðasta
haust.
Fram kemur
á birtingarvott-
orði stefnunnar
að áðurnefndur
Gunnar Birkis-
son hafi tekið við stefnunni á
heimili Sigurjóns að Granaskjóli.
Sigurjón kveðst sem áður segir
ekki kannast við manninn, sem
hafi aukinheldur ekki haft sam-
band við hann til að koma á hann
stefnunni.
Þá segir í greinargerðinni
að Sigurjón hafi verið erlend-
is ásamt fjölskyldu sinni þegar
stefnan eigi að hafa verið birt,
húsið mannlaust og að af upptök-
um úr öryggismyndavélum að
dæma hafi enginn komið að hús-
inu þennan dag.
- sh
Sigurjón Þ. Árnason fullyrðir að stefna slitastjórnar Landsbankans hafi verið birt óviðkomandi manni:
Stefndi kannast ekkert við þennan Gunnar
SIGURJÓN Þ.
ÁRNASON
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmenn stærstu líf-
eyrissjóða landsins eru svartsýnir á að
það takist að afnema gjaldeyrishöftin á
næstu árum. Einungis um tólf prósent
forsvarsmanna lífeyrissjóða telja að
þeir fái á ný heimild til erlendra fjár-
festinga á næstu fimm árum.
Um þetta var fjallað í Markaðs-
punktum greiningardeildar Arion
banka í gær. Sagði greiningar deildin
þar frá niðurstöðum könnunar sem
framkvæmd var meðal forsvarsmanna
lífeyrissjóðanna í nóvember í tengslum við
meistaraverkefni Elvars Inga Möller, starfs-
manns greiningardeildarinnar, frá viðskiptafræði-
deild Háskóla Íslands.
Leiddi könnunin í ljós að forsvarsmenn
stærstu lífeyrissjóða landsins, sem saman-
lagt ráða yfir um 85% af hreinni eign
sjóðanna, telja mjög ólíklegt að þeir fái
að nýju heimild til erlendra fjárfestinga.
Þóttu um 4% líkur á því að heimildin
fengist á næstu þremur árum, um 12%
líkur á því að heimildin fengist á næstu
fimm árum og tæplega 45% líkur á því
að heimildin fengist á næstu tíu árum.
Mikilvægt er fyrir lífeyrissjóði að
geta fjárfest erlendis út frá áhættu-
dreifingarsjónarmiðum en hlutfall erlendra
eigna lífeyris sjóðanna hefur lækkað jafnt og þétt
eftir að gjaldeyrishöftin voru sett á.
- mþl
Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna telja ólíklegt að höftin verði losuð næstu ár:
Svartsýnir á brátt afnám hafta
REYKJAVÍK „Það liggur fyrir að
við erum með einkaleyfi á vöru-
merkinu Loft og það stendur. Við
erum ekki búin að ákveða hversu
hart við göngum fram til að sækja
rétt okkar en við viljum eðli máls-
ins samkvæmt halda nafninu fyrir
okkur,“ segir Sigríður Ólafsdóttir,
rekstrarstjóri Farfugla í Reykja-
vík sem eiga Loft Hostel í Banka-
stræti.
Farfuglaheimilið opnaði fyrir
skömmu og hefur að sögn Sig-
ríðar einkarétt á nafninu „Loft“
innan veitingageirans. Í miðborg
Reykjavíkur eru tveir aðrir stað-
ir með „Loft“ í nafni sínu, það eru
barinn Loftið við Austurstræti og
menningarstofan Harbour Loft í
Hafnar stræti, sem er í eigu Val-
geirs Guðjónssonar tónlistar-
manns og eiginkonu hans, Ástu
Kristrúnar Ragnarsdóttur.
Þau vildu ekki tjá sig um málið
að öðru leyti en að þeim þætti
krafa farfuglaheimilisins fáránleg
og ekki stæði til að breyta nafni
staðarins.
Steinbergur Finnsson er lög-
maður eigenda Loftsins. Hann
segir einnig að krafan sé furðu-
leg og tæplega svaraverð. Loftið
hyggist ekki skipta um nafn. „Það
eru engin rök sem gætu réttlætt
þessar hugmyndir þeirra. Þetta
er væntanlega gert á grundvelli
ruglingshættu en Loft og Loftið
eru ekki einu sinni sama orðið.
Hvað eru þau hrædd við, að fólk
sem ætli að gista hjá þeim komi
óvart og fái sér kokkteil hjá
Loftinu í staðinn? Ég skil eigin-
lega ekkert í þessu,“ segir Stein-
bergur.
Einkaleyfi eru gerð til að
vernda tæknilega útfærslu á
hugmyndum, búnaði og afurðum
en einnig aðferðum eða notkun
þeirra. Með einkaleyfi frá Einka-
leyfastofu er hægt að vernda upp-
finningar í allt að 20 ár. Einka-
leyfaréttur gefur eiganda rétt til
þess að banna öðrum að fram-
leiða, flytja inn og selja uppfinn-
ingu sem vernduð er með einka-
leyfi.
Sigríður segir það ekki ósann-
gjarna kröfu að Loftið og
Harbour Loft breyti nafni sínu.
„Miðbærinn er lítill og við
megum ekki rugla kúnnann. Það
er ekki að ástæðulausu að við
sóttum um þetta á sínum tíma
og við höfum gert hlutaðeigandi
grein fyrir málum. Því hefur
ekki verið svarað svo nú könnum
við stöðu okkar gagnvart þeim,“
segir Sigríður. maria@frettabladid.is
Deila um Loft í 101
Eigendur Loft Hostel í Bankastræti segjast eiga einkarétt á nafninu Loft. Þeir eru
ósáttir við að Loftið og menningarstofan Loft Harbour noti einnig nafnið. Þeir fara
fram á breytingu hjá hinum stöðunum. „Fásinna“ segir lögfræðingur Loftsins.
LOFTIÐ Barinn er í Austurstræti. Lög-
fræðingur Loftsins segir að ekki standi
til að skipta um nafn.
FARFUGLAHEIMILI Loft Hostel var opnað fyrir skömmu og á rétt á nafninu Loft.
HARBOUR LOFT Menningarstofa í eigu hjónanna Valgeirs Guðjónssonar og Ástu
Kristrúnar Ragnarsdóttur.