Fréttablaðið - 23.05.2013, Qupperneq 8
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
NISSAN X-TRAIL SE
Nýskr. 08/08, ekinn 41 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.750 þús.
Rnr.289999.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/11, ekinn 60 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 6.790 þús.
Rnr.270247,
Frábært úrval af notuðum
bílum á frábæru verði
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
HYUNDAI SANTA FE METAN
Nýskr. 02/13, ekinn 3 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Rnr. 120181
TOYOTA PRIUS HYBRID EXE
Nýskr. 05/08, ekinn 43 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.890 þús.
Rnr.270225.
RANGE ROVER SPORT SE
Nýskr. 06/08, ekinn 77 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.590 þús.
Rnr.270266.
HYUNDAI i30 COMFORT
Nýskr. 01/08, ekinn 104 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.190 þús.
Rnr.120165.
NISSAN PATROL SE
Nýskr. 02/08, ekinn 91 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.820 þús.
Rnr.201135.
METAN BÍLL kr.
5.490 þús.
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!
ÍTALÍA, AP Skipstjóri Costa Con-
cordia skemmtiferðaskipsins, sem
strandaði við eyjuna Giglio við
Ítalíustrendur í byrjun síðasta árs,
verður sóttur til saka fyrir mann-
dráp, að valda strandinu og að hafa
yfirgefið skipið á meðan farþegar
og starfsfólk var þar enn.
Dómari samþykkti þessa kröfu
saksóknara í málinu í gær, en
verjandi mannsins vildi semja án
réttar halda. Skipstjórinn Fran-
cesco Schettino á því yfir höfði
sér allt að tuttugu ára fangelsi ef
hann verður sakfelldur. Saksókn-
arar segja að Schettino hafi stýrt
skipinu hættulega nálægt landi að
kvöldi 13. janúar 2012. Það strand-
aði og 32 létust.
Hann segist hins vegar vera
saklaus og að hann sé gerður að
blóraböggli í málinu. Rifið sem
skipið strandaði
á hafi ekki verið
merkt inn á sjó-
kort skipsins.
Þá segist hann í
raun vera hetja,
hann hafi með
kunnáttu sinni
stýrt skipinu
eins nálægt höfn
og hægt var til
þess að auðveld-
ara væri að bjarga farþegunum.
Lögfræðingur hans fór fram á
að ákæru fyrir að hafa yfirgefið
skipið yrði vísað frá. Þessu hafnaði
dómarinn. Fimm aðrir sakborning-
ar í málinu hafa samið um mála-
lyktir utan dómstóla.
Farþegar hafa greint frá því að
brottflutningur þeirra frá skipinu
hafi gengið hægt og verið óskipu-
lagður. Ekki var hægt að nota alla
björgunarbáta þar sem skipið fór
nánast alveg á hliðina. Margir
þurftu að stökkva af skipinu og
synda í land í niðamyrkri.
Sérfræðingar sem dómstólar
hafa kallað til segja að Schett-
ino beri ábyrgð á skipsskaðanum.
Þeir segja þó einnig að starfsfólk
og fyrirtækið sem átti skipið hafi
brotið öryggisreglur sem hafi átt
þátt í slysinu. Starfsfólk hafði ekki
nægilega mikla þjálfun til að tak-
ast á við slys.
Skipið liggur enn á strandstað,
tæpu einu og hálfu ári eftir strand-
ið. Áform um að fjarlægja það
hafa dregist á langinn, en til stóð
að það yrði farið áður en ferða-
mannastraumur sumarsins kæmi
til eyjar innar Giglio.
thorunn@frettabladid.is
Réttarhöld yfir skip-
stjóra hefjast í júlí
Skipstjóri Costa Concordia, sem strandaði við Ítalíu í byrjun síðasta árs, verður
sóttur til saka fyrir manndráp. Hann hefur líka verið ákærður fyrir að valda skip-
skaðanum og að yfirgefa skipið. Hann á allt að tuttugu ára fangelsi yfir höfði sér.
ENN Á STRANDSTAÐ Costa Concordia liggur enn við eyjuna, tæpu einu og hálfu ári eftir skipskaðann. Aðstandendur fóru að
skipinu og minntust látinna þegar ár var liðið frá slysinu í janúar síðastliðnum. NORDICPHOTOS/AFP
FRANCESCO
SCHETTINO
KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld vilja
reyna að hætta alfarið að nota líffæri úr
látnum föngum á næstu árum og hafa
hafið aðgerðir til að ná fram breyting-
um. Nánast allar líffæragjafir koma frá
föngum sem eru teknir af lífi.
Öðru fólki sem velur að gefa líffæri
fjölgar, en það gerist þó hægt. Nú er líf-
færagjafakerfi landsins þannig að fjöl-
skyldur þurfa að gefa leyfi sitt fyrir líf-
færagjöf, jafnvel þótt gjafinn hafi veitt
leyfi sitt.
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra
landsins, Huang Jiefu, segist þó telja
litlar líkur á því að kerfið breytist í
bráð, en Huang er hönnuður kerfisins.
Hefðin í landinu sé sú að fjölskyldan sé
sterkari einstaklingnum. Mótmæli frá
jafnvel aðeins einum fjölskyldumeð-
limi gætu komið í veg fyrir líffæragjöf.
Huang segir þó að honum þyki núver-
andi kerfi drifið áfram af gróðavon. Það
sé bæði ósiðlegt og brjóti gegn mann-
réttindum. Gagnrýnendur þessa fyrir-
komulags hafa löngum sagt að fyllsta
öryggis sé ekki gætt í þessum málum,
og fangar séu oft beittir óeðlilegum
þrýstingi. - þeb
Kínversk stjórnvöld vilja breytingar en fyrrverandi ráðherra er efins:
Hætta að taka líffæri úr föngum
VIÐSKIPTI Tafir urðu á endur-
bótum á lofthreinsibúnaði álvers-
ins í Straumsvík þar sem pípur
sem álverið hafði pantað frá Kína
reyndust gallaðar þegar þær komu
til landsins.
„Málningunni á talsverðum
hluta af þeim búnaði sem fer í
loftræstistöðvarnar var ábótavant.
Við þurftum því að láta endurmála
búnaðinn hér heima,“ segir Ólafur
Teitur Guðnason, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Alcan á
íslandi.
Ólafur Teitur segir að þetta hafi
kostað álverið talsverða peninga
en var ekki tilbúinn til að gefa upp
nákvæma upphæð. Þá sagði hann
ekki komna niðurstöðu í það hvort
álverið fái kostnaðinn bættan.
Umfangsmiklar framkvæmdir
hafa staðið yfir í Straumsvík upp
á síðkastið. Munar þar mestu um
að auka á framleiðslugetu álvers-
ins úr 190 þúsund tonnum á ári í
205 þúsund tonn. Þá á að efla loft-
hreinsibúnað og auka rekstrar-
öryggi.
Kostnaðurinn við þessar fram-
kvæmdir var áætlaður ríflega 60
milljarðar króna og hefur ríflega
50 milljörðum þegar verið varið í
verkefnið, þar af 17 milljörðum í
fyrra. - mþl
Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir við álverið í Straumsvík:
Fengu gallaðar pípur frá Kína
STRAUMSVÍK Grænu pípurnar sem
umlykja kerskála álversins í Straumsvík
eru hluti af lofthreinsibúnaði álversins.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
5.009 lifrar-
og nýrnaígræðslur
voru gerðar í fyrra
með líff ærum úr
látnum föngum.
7.882 lifrar- og
nýrnaígræðslur voru
gerðar í heildina.