Fréttablaðið - 23.05.2013, Page 32

Fréttablaðið - 23.05.2013, Page 32
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4 Sýningin Nordic Design Today var hluti af framlagi Hönnunarsafns Íslands á HönnunarMars í vor en sýningin kemur frá hönnunarsafni Svía, Röhsska. Sýningunni lýkur nú á sunnu- daginn og verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna klukkan 14 á sunnudag. Sex norrænir samtímahönnuðir eiga verk á sýningunni og eiga það sameiginlegt að hafa hlotið hin virtu hönnunarverðlaun Torsten och Wanja Söderbergspris. Verðlaunin eru veitt einu sinni á ári til hönnuðar á Norður- löndunum sem þykir skara fram úr og er verðlaunaféð 20 milljónir króna. Þeir hönnuðir sem eiga verk á sýningunni eru Front hönnunarteymið frá Svíþjóð sem hlaut verðlaunin árið 2010, Harri Koskinen frá Finnlandi en hann hlaut verðlaunin árið 2009, Henrik Vibskov frá Danmörku, verðlaunahafi ársins 2011, Sigurd Bronger frá Noregi sem hlaut verðlaunin árið 2012 og íslensku hönnuðirnir Steinunn Sigurðardóttir og Sigurður Gústafsson. Steinunn hlaut verðlaunin árið 2008 en Sigurður árið 2003. Árið 1999 voru veitt verðlaun fyrir umfjöllun um hönnun og hlaut þau Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur og þá safnstjóri Hönnunarsafns Íslands. Hönnuðirnir á sýningunni starfa á sviði fatahönnunar, skartgripahönnunar og vöru- og húsgagnahönnunar. ■ heida@365.is NORRÆN HÖNNUN SÍÐUSTU FORVÖÐ Sýningunni Nordic Design Today á Hönnunarsafni Íslands lýkur á sunnudag. Þar sýna sex norrænir hönnuðir sem allir hafa hlotið hin virtu verðlaun Torsten och Wanja Söderbergspris. Meðal sýnenda eru Stein- unn Sigurðar dóttir fatahönnuður, Sigurður Gústafsson húsgagnahönnuður og sænska hönnunar teymið Front. Leiðsögn verður um sýninguna á sunnudaginn. SÍÐUSTU FORVÖÐ Sýningunni lýkur á sunnudag í Hönnunar- safni Íslands. Boðið verður upp á leiðsögn klukkan 14. MYNDIR/ANNA MARÍA SIGUR- JÓNSDÓTTIR HENRI VIBSKOV Skófatnaður eftir danska hönnuðinn Henri Vibskov. STEINUNN Sigurðardóttir fatahönnuður hlaut Söderbergverðlaunin árið 2008. FRONT Sænska hönnunarteymið Front hlaut verðlaunin árið 2010. SIGURD BRONGER Skartgripahönnuðurinn Sigurd Bronger fer óhefð- bundnar leiðir í hönnun sinni. Hann hlaut verðlaunin árið 2012. ■ ÁRANGUR Margar konur velta því fyrir sér hvenær best sé að byrja að nota svokölluð hrukkukrem. Amy Eisinger, ritstjóri heimasíðu AOL, segir að hún hafi byrjað að nota hrukkukrem þegar hún var 23 ára, nú sé hún 28. Hún ber á sig slíkt krem áður en hún fer í háttinn á kvöldin. Tekið er eftir því hversu falleg húð hennar er. Margir sérfræðingar segja að ekki eigi að nota slík krem undir 35 ára. Mikilvægara sé að nota alltaf góða sólarvörn. HRUKKUKREM Á ÞRÍTUGSALDRI Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein – eða ertu starfandi í ferðaþjónustu? Kynntu þér spennandi nám sem býður upp á mörg tækifæri og möguleika Innritun lýkur 31. maí STARFSTENGT FERÐAFRÆÐINÁM Ferðamálaskólinn sími: 594 4020 Ævintýralegur starfsvettvangur FERÐAMÁLA SKÓLINN WWW.MK.IS Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.