Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 50
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 Verk eftir nær 100 listamenn MENNING ÚTGÁFUGLEÐI! Verið velkomin að fagna útgáfu bókar okkar Markþjálfun, í dag 23. maí kl. 17 í Eymundsson Austurstræti, 3. hæð. Léttar veitingar Útgáfutilboð á bókinni Allir velkomnir Hlökkum til að sjá ykkur Matilda Gregersdotter Arnór Már Másson Haukur Ingi Jónasson og starfsfólk Forlagsins 1 kr. sendingagjald í takmarkaðan tíma! Frá árinu 2010 hafa myndlistar- konurnar og systurnar Sara og Svan- hildur Vilbergsdætur lagt stund á svo- nefnda dúettmálun, sem felur í sér að þær mála tvíhent á striga. Þær taka þátt í tveimur sýningum á Listahátíð í Reykjavík í ár sem báðar verða opn- aðar á laugardag: portrett-samsýning- unni Augliti til auglitis í Listasafni ASÍ og útisýningunni Undir berum himni í Þingholtunum og á Skólavörðuholti. Verk þeirra á síðarnefndu sýning- unni er líkan af húsi Sólons í Slunka- ríki (1860 til 1931), sveitunga þeirra systra á Ísafirði. „Sólon var skemmtilegur furðukarl sem vildi hafa húsið sitt úthverft, það er að segja veggfóðrið og skrautið átti að snúa svo allir gætu notið þess en báru- járnið var innandyra,“ segir Sara en þær systur voru í óðaönn að setja upp líkanið við Skólavörðustíg 35 þegar Fréttablaðið hitti á þær. „Á efri árum hrinti Sólon þessari hugmynd sinni í framkvæmd en entist ekki ævin til að ljúka henni; bárujárnið var komið upp að innan en það átti eftir að veggfóðra húsið að utan og setja upp skrautmuni.“ Sara segir að þeim systrum hafi þótt hugmyndin of skemmtileg til að fylgja henni ekki eftir og um leið halda minn- ingu Sólons á lofti. „Maður verður ekki mikið var við svona fólk nú til dags, ætli það sé ekki bara haft inni á stofnunum.“ Systurnar gerðu ekki bara líkan af húsi Sólons, heldur húsráðandan- um sjálfum, sem verður inni í húsinu ásamt ýmsum munum. Vegfarendur á Skólavörðustíg munu því geta gægst inn um gluggann og virt hann fyrir sér. En óttast þær ekki að húsið verði fyrir skemmdum? „Nei, við trúum ekki að nokkur mann- eskja leggi í það, Sólon var heljarmenni að burðum, gat unnið á við fjóra og hann situr inni í skúrnum! Vei þeim sem reynir að raska ró hans. Vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir líka.“ Systurnar vona að líkanið að Slunka- ríki sé aðeins vísirinn að stærra verkefni. „Draumurinn er að geta einn daginn byggt hús í fullri stærð eins og Sólon sá það fyrir sér. Það væri dásamlegt að geta klárað verkið sem hann byrjaði á en auðnaðist ekki að ljúka því.“ bergsteinn@frettabladid.is Vei þeim sem raskar ró Sólons í Slunkaríki Sólon í Slunkaríki hreiðrar um sig á Skólavörðustíg í sumar í innsetningu systranna Söru og Svanhildar Vilbergsdætra. Þær hafa lagt stund á dúettmálun síðan 2010 og dreymir um að endurgera Slunkaríki Sólons í fullri stærð. SARA OG SVANHILDUR Systurnar eru í þann mund að koma Sólon fyrir í húsi sínu við Skólavörðustíg. Þar ætlar hann að hafast við fram í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Portrett af Stefáni frá Möðrudal, Stórval, verður framlag þeirra Svan- hildar og Söru Vilbergsdætra á samsýningunni Augliti til auglitis, sem verður opnuð í Listasafni ASÍ á laugardag. Á sýningunni, sem stendur til 23. júní, eru portrett eftir eldri listamenn sem og samtímalistamenn, þekkta og lítið þekkta. Þar eru sýnd öndvegisverk og önnur sem hafa lifað skuggatilveru í geymslum og skúmaskotum, hefðbundin hvítflibbaportrett og sam- tímalegir útúrsnúningar. Verkin sýna öll nafngreinda einstaklinga í ýmsum birtingar- myndum; málverkum, teikningum, þrívíðum verkum, myndbands- verkum og hljóðverkum. Sýningarstjórar eru Steinunn G. Helgadóttir og Kristín G. Guðnadóttir. Dúósystur mála Stórval „Baráttumál, starfsaðstæður og langur og strangur ævi ferill ljós- móður eru viðfangsefni sýning- ar sem opnuð verður í Húsinu á Eyrarbakka á morgun, 24. maí og nefnist Ljósan á Bakkanum. Sýningin fjallar um líf og störf Þórdísar Símonar dóttur, ljós- móður á Eyrarbakka 1883-1926. Þar eru líka ýmsir munir frá henni sjálfri sem Eiríkur Guð- mundsson í Hátúni á Eyrar- bakka gaf safninu fyrir ári,“ lýsir Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga, en sýningin er samstarfsverkefni byggðasafnsins, Brúarsmiðjunn- ar og Eyrúnar Ingadóttur, sagn- fræðings og höfundar bókarinn- ar Ljós móðirin. Sýningin er í borðstofu Húss- ins á Eyrarbakka, hinu gamla og virðulegu kaupmannssetri, byggðu 1745, og er opin alla daga frá 11 til 18 fram til 15. september. - gun Líf og störf Ljósunnar á Bakkanum Sýningin Ljósan á Bakkanum verður opnuð á morgun í Húsinu á Eyrarbakka. Þar er brugðið ljósi á æviferil Þórdísar Símonardóttur ljósmóður. SÝNINGARGRIPIR Í kistu Þórdísar Símonardóttur ljósmóður eru blóðtökusett og stólpípur. MYND/LÝÐUR PÁLSSON Undir berum himni er útisýning nær eitt hundrað innlendra og erlendra listamanna í almannarýminu í Þingholtunum og Skólavörðuholtinu. Sýningin spannar þverskurð af íslensku listalífi og býður tækifæri til að berja augum afurðir margra af þekktari mynd list ar mönnum þjóð ar innar og nokkurra sem eru að stíga fyrstu skrefin. Aldrei hafa fleiri mynd list armenn sýnt saman á úti sýningu hér á landi. INNBÚ EÐA ÚTBÚ? Sara og Svanhildur útbjuggu líka líkan af Sóloni, sem hefst við inni í húsinu í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.