Fréttablaðið - 23.05.2013, Síða 54
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Frönsku rafpoppararnir í Daft
Punk hafa komið eins og storm-
sveipur inn í tónlistarheiminn
með sinni nýjustu plötu, Random
Access Memories, heilum átta
árum eftir að síðasta hljóðvers-
plata, Human After All, kom út.
Auglýsingaherferðin til að
kynna plötuna virðist hafa geng-
ið fullkomlega upp en fyrst og
fremst var það smáskífulagið
vinsæla Get Lucky með Pharrell
Williams sem setti tóninn.
Þeir Thomas Bangalter og Guy-
Manuel de Homem-Christo úr
Daft Punk byrjuðu að prufa sig
áfram með nýtt efni er þeir voru
vinna að tónlistinni við kvik-
myndina Tron: Legacy. Þeir voru
óánægðir með prufuupptökurnar
sem þeir gerðu, þar sem hljóð-
gervlar voru áberandi, og ákváðu
í staðinn að notast við hefðbundin
„lifandi“ hljóðfæri. Til þess réðu
þeir til sín í fyrsta sinn hljóðvers-
spilara til að vinna með sér, þar
á meðal trommara. Einnig vildu
þeir takmarka notkun „sampla“
og notuðu þau eingöngu í loka-
laginu Contact. Þeir vildu búa
til heildstætt verk sem færi með
hlustandann í ferðalag og ákváðu
að sækja í sarp áttunda og níunda
áratugarins hvað varðar hljóm
og upptökutækni. Fleiri gestir
voru fengnir til að leggja sitt
af mörkum, þar á meðal Panda
Bear, Julian Casablancas úr The
Strokes, Chilly Gonzales, Paul
Williams og Nile Rodgers, auk
Pharrells Williams.
Útkoman er blanda af eldri tón-
list á borð við diskó, progg og fönk
í bland við nútímadanstónlist.
Síendurteknu taktarnir eru fjar-
verandi og í staðinn er hljómurinn
orðinn meira lifandi og mýkri en
áður og ekki eins vélrænn.
Gagnrýnendur hafa tekið
Random Access Memories fagn-
andi og greinilegt að Daft Punk
hefur snúið aftur með stæl eftir
langa fjarveru. Q gefur henni
fullt hús stiga eða fimm stjörnur
og NME gefur henni einnig fullt
hús, eða 10 af 10 mögulegum.
Pitchfork gefur henni 8,8 af 10 og
The Guardian, Rolling Stone og
The Independent fjórar stjörnur
af fimm.
Óvíst er hvort Daft Punk fari
í tónleikaferð til að fylgja plöt-
unni eftir. „Af nokkrum ástæð-
um höfum við ekki áhuga á tón-
leikaferð akkúrat núna. Við erum
nýbúnir að eyða fimm árum í
þessa plötu þar sem við reyndum
að blása lífi aftur í listina við að
hljóðrita,“ sagði umboðsmaður
þeirra, Paul Hahn, í viðtali við
BBC Radio 1. „Við viljum að þessi
plata hafi menningarleg og list-
ræn áhrif.“
freyr@frettabladid.is
Ferskir og mjúkir
vindar úr fortíðinni
Fjórða plata rafpopparanna í Daft Punk, Random Access Memories, er komin út.
DAFT PUNK Hljómsveitin Daft Punk hefur gefið út plötuna Random Access Memories. NORDICPHOTOS/GETTY
Um vélmennaútlit Daft Punk segir Thomas Bangalter í viðtali við Rolling
Stone: „Við höfum áhuga á línunni á milli skáldskapar og veruleika og að
búa til þessar skálduðu persónur sem eru til í raun og veru. Við viljum
einnig tengja tónlist Daft Punk við hið sjónræna og glyskennda popp sem
Kraftwerk, Ziggy Stardust og Kiss eru þekkt fyrir. Fólk hélt að hjálmarnir
væru markaðstæki en okkur fannst þeir frekar vera vísindaskáldskapar-
glys.“
Guy Manuel de Homem-Christo segir ágætt að vera ekki áberandi sjálfur
og því sé gott að vera með hjálmana. „Við erum ekki skemmtikraftar, við
erum ekki fyrirsætur. Mannkynið hefði ekki gaman af því að sjá útlínur
okkar en fólki finnst vélmennin áhugaverð.“
Á milli skáldskapar og veruleika
Ýmsir - This Is Icelandic Indie Music
The National - Trouble Will Find Me
Jóhann Kristinsson - Headphones
Í spilaranum
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
16.5.2013 ➜ 22.5.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
2 Justin Timberlake Mirrors
3 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
4 Robin Thicke Blurred Lines
5 Valdimar Beðið eftir skömminni
6 Eyþór Ingi Ég á líf
7 Retro Stefson She Said
8 Emmelie de Forest Only Teardrops
9 Mammút Salt
10 Imagine Dragons Radioactive
Sæti Flytjandi Plata
1 Ýmsir Eurovision Song Contest 2013:
Malmö
2 Ýmsir Pottþétt 59
3 Bubbi Morthens Stormurinn
4 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
5 Ýmsir Gleðibankinn: 25 ár í Eurovision
6 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
7 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
8 Retro Stefson Retro Stefson
9 John Grant Pale Green Ghosts
10 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
Í nokkur ár hlustaði ég á The Doors á hverjum degi. Sem krakki hafði ég
heyrt lag og lag á stangli, til dæmis Riders on the Storm, Hello, I Love You
og Break On Through (en ekki Light My Fire, ótrúlegt en satt) en aldrei lagt
mig sérstaklega eftir plötum sveitarinnar. Svo kom stóra sprengjan vorið
1991 þegar ég var nýskriðinn á táningsaldur og móttækilegur eftir því.
Bíómynd Olivers Stone um Jim Morrison (þar sem Val Kilmer söng
lögin sjálfur og komst svona líka prýðilega frá því) hratt af stað gríðarlegu
Doors-æði á Íslandi og um leið almennum áhuga á tónlistinni og menn-
ingunni frá því tveimur áratugum fyrr. Hárið síkkaði, gallabuxnaskálmarnar
víkkuðu og forljótar hippamussur tóku að stinga upp kollinum á götum
bæjarins (og í Öskjuhlíðinni, þar sem sumum þótti sniðugt að safnast
saman til að drekka landa á hlýjustu kvöldunum í veikri von um að líta
jafn töff út og Jim og félagar á sýrutrippi í eyðimörkinni). Í Hljóðfæra-
húsinu á Laugavegi var meira að segja fest upp tilkynning þess efnis að
harðbannað væri að prófa hljómborðin í búðinni með því að spila intróið
að Light My Fire, slíkar voru vinsældirnar.
Að æðinu mikla loknu stóð þó eftir að mun meira var spunnið í Doors
en flestar aðrar hljómsveitir frá sama tíma. Jim Morrison var töff og samdi
kúl og kriptíska texta en orgelleikarinn Ray Manzarek, sem lést síðastliðið
mánudagskvöld, kenndi mér og mörgum óhörðnuðum unglingnum að
mestu meistarana er oftar en ekki að finna í bakgrunninum. Manzarek,
þessi snillingur, lék bassalínurnar með vinstri meðan hann lét vaða á
orgelið með hægri! Hvernig var þetta hægt? Og hvaða örlaganornum
mútaði maðurinn til að öðlast þessa óendanlegu hæfileika? Var hann
kannski einhvers konar ofurmenni? Já, stundum saknar maður þess að
vera ekki lengur ungur, ör og laus við þá leiðinlegu vitneskju að ekkert er
nýtt undir sólinni.
En gefum okkur að Ray Manzarek sé núna rétt um það bil að tékka sig
inn á Hótel Himnaríki og klæi í fingurna að djamma með nokkrum vel
völdum nágrönnum. Nóg ætti jú að vera af hæfileikafólki þarna uppi, en
ég myndi benda honum kurteislega á að leita uppi trommarann Keith
Moon, Cliff Burton á bassann, gítarleikarana Jimi Hendrix og Mick Ronson,
söngvarann Sam Cooke, söngkonuna Ari Up og Tupac Shakur til að bösta
nokkrar rímur. Ray ætti varla að leiðast.
Maðurinn sem braut
niður dyrnar
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Amerískir með klakavél
20%
afsláttur