Fréttablaðið - 15.08.2013, Side 6

Fréttablaðið - 15.08.2013, Side 6
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 6.000 krónur er sú upphæð sem Íslendingar sögðust eyða daglega í neyslu um miðjan síðasta mánuð. Þar eru ekki talin með kaup t.d. á húsnæði eða bifreiðum. Þetta er mjög svipað og á sama tíma síðustu ár. Ekki ætti að koma á óvart að eyðslan nær hæstu hæðum um jól ár hvert (um 7.600 kr. síðustu jól) og lægstu lægðum í lok janúar. Heimild: Capacent EFNAHAGSMÁL Styrking krónu frá ársbyrjun og lækkun á hrávöruverði á erlendum mörkuðum hefur ekki skilað sér hér í lægra matvöruverði. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun greiningardeildar Arion banka. Í ljósi þess að spáð er áfram- haldandi verðlækkun á korni næstu 12 mánuði er í umfjöllun- inni ekki talið útilokað að svig- rúm verði hér fyrir lækkun mat- vöruverðs á komandi misserum, takist Seðlabankanum að halda gengi krónunnar stöðugu. Í umfjölluninni eru þrjár ástæður sagðar helstar fyrir því að styrking krónu og lægra hrávöruverð hafi ekki þegar skilað sér í lægra matar- verði. Mögulega taki fyrirtæki þann pól í hæðina að styrking krónu sé tímabundin en veikingin varanleg. Þá er bent á að kjarasamningar hafi haft áhrif á launakostnað, sem þrýst hafi á hærra matvöruverð, og að framleiðendur kunni að vera að sækja til baka framlegðartap sem þeir hafi mátt þola á árunum 2011 og fram til 2012. - óká KORN Áframhaldandi verðlækkun á korni gæti síðar skilað sér í lægra matarverði hér. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Betri kjör vegna krónu og ódýrari aðfanga hafa ekki skilað sér í matarverði: Lægra matarverð ekki útilokað EFNAHAGSMÁL Á öðrum árs- fjórðungi voru að meðaltali 12.900 manns í atvinnuleit, 6,8 prósent vinnuafls. Atvinnulausum fækk- aði um 400 manns frá öðrum árs- fjórðungi árið 2012 og starfandi fólki fjölgaði um 3.300 manns. Langtímaatvinnuleysi hefur minnkað umtalsvert það sem af er ári, það er atvinnuleysi þeirra sem sem hafa verið án vinnu í 12 mánuði hið minnsta. Um 2.000 manns voru atvinnulausir til langtíma á öðrum ársfjórðungi þessa árs. - le Tæp sjö prósent án vinnu: Atvinnuleysi dregst saman VIÐSKIPTI Alls var 845 leigu- samningum þinglýst á landinu öllu í júlí. Það er níu prósentu- stiga aukning frá því í júlí í fyrra. Langflestum leigusamningum var þinglýst á höfuðborgar- svæðinu, eða 557. Er það 13,4 prósentustiga aukning milli mánaða. Fæstum leigusamningum var þinglýst á Vestfjörðum, eða fimm samningum. Það er þó 150 prósentustiga aukning frá júlí á síðasta ári en einum samningi færri en í júní 2013. -nej Fæstir leigja á Vestfjörðum: Alls 845 samn- ingum þinglýst BORGARMÁL Reykjavíkurborg hefur haft samband við öll nágrannasveitarfélög sín á höfuðborgarsvæðinu í því skyni að stemma stigu við hraðri útbreiðslu kanína. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið kemur fram að til stendur að funda með sveitarfélögunum um málið næsta haust og að hingað til hafi verið vel tekið í erindi borgarinnar um grisjun stofnsins. Þá kemur fram að engar kanínur hafi verið veiddar af hálfu borgarinnar síðan und- anþága var gefin fyrir veiðum. - vg Sveitarfélög skoða veiðar: Fundað um kanínur í haust AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ SKEIFUNNI | KRINGLUNNI | SPÖNGINNI Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Hæg norðaustlæg átt. RIGNINGIN ER GÓÐ Heldur vætusamt víða á landinu í dag en fer svo að draga úr vætu á morgun. Skúrir einkum norðan- og vestanlands en léttir til suðaustanlands. Á laugardag snýr hann sér í hæga norðanátt með kólnandi veðri fyrir norðan. 12° 4 m/s 12° 5 m/s 12° 4 m/s 12° 8 m/s Á morgun 3-8 m/s. Gildistími korta er um hádegi 12° 9° 12° 9° 8° Alicante Basel Berlín 30° 24° 23° Billund Frankfurt Friedrichshafen 21° 25° 23° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 20° 20° 30° London Mallorca New York 24° 30° 25° Orlando Ósló París 32° 21° 27° San Francisco Stokkhólmur 21° 22° 13° 4 m/s 12° 6 m/s 15° 6 m/s 15° 3 m/s 14° 4 m/s 15° 4 m/s 6° 5 m/s 13° 10° 14° 16° 14° MENNTUN Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmála- ráðherra, og Ólafur Þór Jóhanns- son, formaður stjórnar Fisk- tækniskóla Íslands í Grindavík, undirrituðu nýlega samning til eins árs um kennslu í fisktækni í tilraunaskyni. Frá þessu segir á vef Víkurfrétta. Um er að ræða kennslu í fisk- vinnslu, fiskveiðum og fiskeldi. Í samningnum er einnig gert ráð fyrir að skólinn þrói námsbrautir á sviði fisktækni og standi að kynningum á námi í fisktækni víða um land. 30 nemendur munu stunda nám við skólann í haust, en um 1.500 manns hafa sótt námskeið á vegum skólans frá stofnun hans vorið 2010. - þj Skólinn þróar námsbrautir: Fisktækninám fram haldið í ár STJÓRNSÝSLA Á vef forsætisráðu- neytisins hefur verið komið upp svæði þar sem almenningi er boðið að koma á framfæri hug- myndum og ábendingum til hagræðingar- hóps ríkis- stjórnarinnar um hluti sem betur mega fara í rekstri ríkisins. Á heimasíðu ráðuneytis- ins segir að markmiðið sé að hagræðingar hópurinn leggi fram tillögur sem miða að því að auka framleiðni í rekstri ríkis- ins umtalsvert. Einnig er hægt að senda hugmyndir og ábendingar til hópsins á netfangið hagraed- ing@for.stjr.is. -vg Hagræðingarhópur vill hjálp: Vilja tillögur frá almenningi ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON KANÍNA Engin ákvörðun hefur verið tekin um kanínuveiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL „Ég var ekki að hóta í þessu viðtali, eins og allir geta hlustað á og heyrt,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar Alþingis, um viðtal sem hún fór í við Ísland í bítið á Bylgjunni í gærmorgun. Viðtalið hefur vakið hörð viðbrögð og sumir fullyrt að í því hafi Vigdís haft í frammi lítt dulbúna hótun um niðurskurð hjá Ríkis útvarpinu vegna fréttaflutnings sem er henni ekki þóknanlegur. Spurð hvers vegna hún hafi nefnt það í kjölfarið umræðu um meinta hlutdrægni frétta- stofunnar að hún sæti í sérstökum hagræðingarhópi stjórnvalda segir Vigdís: „Því er til að svara að það er allur ríkisreksturinn þarna undir. Það verð- ur að skoða þetta í samhengi allt saman hvað á að gera til framtíðar hér á landi.“ Hún segir að skoðun hennar, og eftir atvikum annarra í hagræð- ingarhópnum, á fréttaflutningi fréttastofu Ríkisútvarps- ins muni engin áhrif hafa á það hvaða tillögur hópurinn muni koma með um niðurskurð. „Að sjálfsögðu ekki. Þetta kemur fréttaflutningi ekkert við. Upphafið að þessu við- tali var það að Ríkis sjónvarpið flutti ranga frétt þar sem mér voru lögð orð í munn. Síðan hefur þetta undið upp á sig með þessum hætti og við því er ekkert að gera. Það er ekkert nýtt fyrir mér að það sé verið að rangtúlka það sem ég segi og snúa út úr því.“ Í kjölfar viðtalsins í gær var hafin undirskrifta- söfnun á vefnum þar sem skorað var á Vigdísi að segja af sér formennsku í fjárlaga- nefnd og víkja úr hagræð- ingarhópnum. Í gær- kvöldi höfðu yfir 1.500 manns skrifað undir. „Fólki er frjálst að setja af stað undirskrifta- safnanir eins og það v i l l u m hin ýmsu málefni. Ég hef svo sem ekkert um það að segja,“ segir Vigd í s . Hú n muni hins vegar ekki verða við áskoruninni. „Að sjálfsögðu ekki.“ Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, vill ekki ganga svo langt að segja að Vigdís eigi að segja af sér. „Fólk verður bara að taka þær ákvarðanir sjálft. Það er ekki pólitískra andstæðinga að benda á það. En mér finnst að formaður fjárlaganefndar eigi allavega ekki að tala svona. Það er alveg á hreinu.“ Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra sagði í samtali við RÚV í gær að aldrei væri viðeigandi að tengja saman fjárframlög til RÚV og frammistöðu fréttastofunnar. Vigdís hefði hins vegar skýrt mál sitt. stigur@frettabladid.is Vigdís neitar því að hafa haft í hótunum Formaður fjárlaganefndar minnti á setu sína í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar í umræðum um meinta hlutdrægni fréttastofu RÚV. „Þetta kemur fréttaflutningi ekkert við,“ segir hún um niðurskurðarvinnuna. Hún hyggst ekki segja af sér. Vigdís: „Er það eðlilegt að ríkisstofnun eins og RÚV, sem tekur til sín fjóra milljarða á ári af skattfé, auk auglýsingatekna, í samkeppni við kannski einkastöðvar eins og við erum hér stödd á í dag, fari fram með þessum hætti?“ Heimir Karlsson: „Þess vegna spyr ég aftur: Muntu taka það mál eitt- hvað lengra?“ Vigdís: „Ég er náttúrlega í þessum hagræðingarhópi. Það liggur allt undir. Mér finnst óeðlilega mikið fjármagn fara í rekstur RÚV, sérstaklega þegar þeir standa sig ekki betur en þetta í fréttaflutningi. Og ég er ekki að tala um mig persónulega heldur almennt hvernig þeir beita sér í almennum fréttaflutningi og eru hlynntir ákveðinni stefnu í landinu.“ Úr viðtalinu umdeilda KATRÍN JAKOBSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.