Fréttablaðið - 15.08.2013, Blaðsíða 20
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
„Það hefur verið markmið okkar
hjá Icelandair að auka ferða-
mannastrauminn yfir veturinn
og við erum því að byggja upp
tíðni á þeim vettvangi,“ segir
Birkir Hólm Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Icelandair.
Icelandair hefur aukið fram-
boð sitt á millilandaflugi um 17
prósent milli ára og hefur leiða-
kerfi flugfélagsins stækkað ört á
síðustu árum. „Við höfum verið
að bæta við áfangastað á hverju
ári. Aukinn straumur flugfarþega
milli Ameríku og Evrópu skapar
tækifæri fyrir nýja áfangastaði
hjá félaginu og Ísland er tilvalinn
tengistaður,“ segir Birkir og
bætir við að aukið flæði ferða-
manna yfir hafið sé stór þáttur
í auknum ferðamannastraumi.
„Það gefur augaleið að þegar
flugum og áfangastöðum fjölgar
á fyrirtækið möguleika á að fá
fleiri ferðamenn til landsins.“
Hagnaður Icelandair Group
nam 2,2 milljörðum króna á
öðrum ársfjórðungi í ár. Það er
tæplega 30 prósenta aukning
frá því á sama tímabili í fyrra.
Einnig hafa hlutabréf í félaginu
hækkað um 83 prósent frá því á
áramótum.
„Við lentum í hremmingum,
líkt og flestir, árið 2008 og
þurftum að bregðast við
minnkandi eftirspurn. Síðan þá
höfum við verið með þrettán
til átján prósenta framboðs-
aukningu á ári. Nú höfum náð að
finna staði sem gefa okkur gott
flæði ferðamanna yfir allt árið,
sem er í raun lykillinn að vel-
gengni okkar undanfarin ár.“
Birkir hefur ekki áhyggjur af
því að landið beri ekki aukinn
fjölda ferðamanna. „Ég held að
spurningin sé ekki hvort Ísland
geti tekið á móti auknum fjölda
ferðamanna heldur hvernig.“
Birkir segir að fjölgun ferða-
manna hafi aukist jafnt og þétt
síðustu 30 árin og að það sé mýta
að aukningin sé óvenju mikil nú.
„Síðan 1990 hefur ferðamanna-
fjöldi tvöfaldað sig á hverjum
tíu árum. Það komu um 150
þúsund ferðamenn árið 1990, um
300 þúsund árið 2000 og nú eru
þeir yfir 600 þúsund. Það er því
mjög líklegt og eðlilegt að ferða-
mannastraumurinn verði kominn
yfir milljón innan áratugar.“
Birkir bendir á að vissulega
séu það nokkrir staðir sem verða
fyrir átroðningi nokkra mánuði
ársins og hann tekur vel í þau
áform að fjármagn fáist við upp-
byggingu ferðamannastaða hér
á landi í gegnum gjaldtöku í ein-
hverju formi. „Við höfum verið
jákvæð á að ferðaþjónustan í
sameiningu finni leiðir til þess
að fjármagna uppbyggingu
ferðamannastaða á landinu. Ég
held að flestir ferðamenn séu
tilbúnir til þess að borga fyrir
náttúrustaði ef sá peningur fer
í uppbyggingu,“ segir Birkir en
telur þó að það sé afar mikil-
vægt að hafa kerfið skilvirkt og
einfalt.
Birkir telur hins vegar að
helsta lausnin við auknum fjölda
ferðamanna sé að dreifa ferða-
tímabilinu yfir allt árið og byggja
upp ferðamannaiðnaðinn yfir
veturinn. lovisa@frettabladid.is
Velgengnin
liggur í ferð-
um allt árið
Framkvæmdastjóri Icelandair segir að lykillinn að góðu
gengi fyrirtækisins sé aukið flæði ferðamanna yfir allt
árið. Hann telur spurninguna ekki vera hvort landið geti
tekið á móti auknum fjölda ferðamanna heldur hvernig.
LEIÐAKERFI ICELANDAIR STÆKKAR ÖRT
➜ Staðirnir sem bæst hafa við síðustu ár
2013 Anchorage í Alaska, St. Pétursborg
í Rússlandi og Zurich í Sviss.
2012 Denver í Colorado.
2011 Washington DC, Billund í Danmörku,
Gautaborg í Svíþjóð, Hamborg í Þýskalandi.
2010 Brussel í Belgíu, Þrándheimur í Noregi.
2009 Seattle í Bandaríkjunum,
Stavanger í Noregi.
47%
viðskiptavina
Icelandair á öðrum
ársfjórðungi komu
hingað til lands
einungis til þess að
millilenda á ferð
sinni milli heimsálfa.
Ég held að flestir
ferðamenn séu
tilbúnir til þess að
borga fyrir náttúru-
staði ef sá peningur
fer í uppbyggingu.
Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair
Mikilvægasti fundur atvinnuvegar síðari hluta árs // ómis-
sandi vettvangur fyrir pantanir vetra- og jólaviðskipta //
innsýn í strauma og stefnur vorsins // mikil fjölbreytni
heimilis- og gjafavara // þekktustu merkin og mikilvægustu
alþjóðlegu sölu- og viðskiptaaðilarnir // fyrir allar tegundir
viðskipta
Sími: +45 39 40 11 22 // dimex@dimex.dk
>> Hér eru 50 mikilvægustu ástæðurnar
til að heimsækja Tendence
tendence-50reasons.com
perfect date //
perfect time
new
24 –27. 8. 2013
Saturday – Tuesday