Fréttablaðið - 15.08.2013, Blaðsíða 18
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
1Semdu um vextina. Vextir í bönkum
eru ekki náttúrulögmál
heldur samningsatriði.
Athugaðu hvort bankinn
geti boðið þér hærri
vexti á innlánum og
lægri vexti á útlán-
um.
2 Borgaðu á réttum tíma. Ekki draga það
að borga reikninga ef þú
kemst hjá því. Dráttar-
vextir leggjast á kröfuna
eftir eindaga og mikill
innheimtukostnaður
leggst á ef reikningur-
inn liggur lengi
ógreiddur.
3 Sparaðu papp-írinn. Það kostar
aukalega að fá greiðslu-
seðla senda og er óum-
hverfisvænt.
4 Stundaðu rafræn viðskipti. Það
kostar ekkert að athuga
stöðuna og millifæra
í netbanka. Bankar
innheimta gjald fyrir
ýmsa þjónustu sem er
ókeypis í netbanka.
5 Borgaðu niður yfirdráttinn. Það
er oftast skynsamlegast
að borga niður skuldir
sem fyrst, því vextir á
útlánum bankanna eru
yfirleitt mun hærri en
innlánsvextir.
6 Safnaðu fyrir því sem þig langar í.
Ef þú sérð nýjan flat-
skjá sem þig langar í
skaltu forðast í lengstu
lög að kaupa hann á
lánum. Lán eru dýr og
það borgar sig margfalt
að safna fyrir hlutum
sem mann langar í.
7 Veldu réttan hrað-banka og notaðu
debetkortið. Bankar
innheimta gjald fyrir
peningaúttektir í hrað-
bönkum samkeppnis-
aðilanna. Notaðu því
heldur hraðbankann
hjá bankanum þínum.
Peningaúttektir með
kreditkortum geta líka
verið dýrar, svo notaðu
heldur debetkortið.
8 Láttu skuldfæra sjálfkrafa. Bankar
innheimta lægra gjald
ef lánin eru skuldfærð
sjálfkrafa af reikningi í
viðkomandi banka.
9 Hugsaðu fram í tímann. Það er
mikilvægt að eiga ein-
hvern varasjóð til að
mæta skakkaföllum.
Það liggur fyrir að hús
og bíll þarfnast viðhalds
svo ekki sitja uppi með
dýrt lán þegar þar að
kemur vegna þess að
þú gleymdir að gera ráð
fyrir þessu.
Besti
sparnaðurinn
er yfirleitt að
greiða upp
yfirdráttinn.
Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytenda-
samtakanna
SPARNAÐARRÁÐ
„Fólk á að reyna að semja um betri kjör,
sérstaklega ef það er með langa og góða
sögu í viðkomandi banka,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytendasamtak-
anna.
„Það má líka gera ýmislegt annað til
að koma betur út úr viðskiptum sínum
við bankana. Flestir eru nú komnir með
heimabanka en það er töluvert ódýrara
að nota hann heldur en að láta bankann
sjálfan sjá um millifærslur og gefa upp
stöðu á reikningum og fleira, sem hann
innheimtir gjald fyrir.“
Hann segir þó mikilvægast að reyna
að skulda sem minnst, því það sé alltaf
kostnaðarsamt að borga vexti af lánum.
„Besti sparnaðurinn er yfirleitt að
greiða upp yfirdráttinn. Hann er fljótur
að telja og það er skynsamlegt að gera sér
einhverja áætlun til að greiða hann upp
sem fyrst,“ segir Jóhannes Gunnarsson.
johanness@frettabladid.is
Vextir ekki náttúrulögmál
Formaður Neytendasamtakanna segir ýmislegt hægt að gera til að draga úr kostnaði í viðskiptum við banka.
Margir geri sér ekki grein fyrir því að vextir séu umsemjanlegir auk þess sem bankarnir rukki ýmis gjöld.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
„Við segjum aldrei made in Ice-
land,“ segir Ágúst Þór Eiríks-
son, framkvæmdastjóri Drífu,
sem framleiðir útivistarfatnaðinn
Icewear og Norwear.
Neytendastofa úrskurðaði í gær
að fyrirtækið væri brotlegt gegn
lögum um eftirlit með viðskipta-
háttum og markaðssetningu. Föt
fyrirtækisins, meðal annars lopa-
húfa og vettlingar, voru merkt með
íslenska fánanum.
Vörurnar voru framleiddar
meðal annars í Kína en engar
merkingar var að finna um upp-
runa þeirra að öðru leyti. Neyt-
endastofa telur þessa framsetningu
villandi fyrir kaupandann, en stór
hluti þeirra er ferðamenn sem telja
sig vera að kaupa íslenskar vörur.
„Við erum búin að breyta
þessu,“ segir Ágúst Þór en fyrir-
tækið hefur þegar brugðist við
athugasemdum Neytendastofu.
Aðspurður hvort þeir muni þá að
auki merkja vöruna með fram-
leiðslulandi svarar Ágúst: „Það er
ekki skylda að gera slíkt. En við
leggjum áherslu á að þarna er um
íslenska hönnun að ræða.“ - vg
Villandi merkingar á fatnaði:
Útivistarfatnað-
urinn frá Kína
ÁGÚST ÞÓR EIRÍKSSON Brugðist hefur
verið við ábendingum Neytendastofu.