Fréttablaðið - 15.08.2013, Blaðsíða 26
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Mig langaði í síðan sumarkjól. Ég er hávaxin og það passar ekkert á mig í búðum og aldrei
til akkúrat það sem mig langar í. Ég
saumaði því kjól upp úr gömlum flíkum
og litaði,“ segir Kristína Berman, textíl-
og fatahönnuður þegar Fólk sló á þráð-
inn til hennar norður á Siglufjörð þar
sem fjölskyldan býr á sumrin. Á veturna
búa þau í Reykjavík og er Kristína með
vinnustofu á báðum stöðum.
„Þetta er svolítið rómantískt. Ég er
með bílskúrshurð á kjallaranum og get
opnað út og þá blasir fjallasýnin við.
Það er dásamlegt að vinna svona,“ segir
Kristína, en í sumar hefur hún meðal
annars litað fyrir tískumerkið Ellu. „Ég
lita reglulega silki fyrir Ellu. Yfirleitt eru
þetta um þrjátíu metrar í einu sem fara
þá í flíkur sem eiga að vera sérstakir
augnakonfektmolar í búðinni. Af því að
efnið er handlitað verða bútarnir aldrei
alveg nákvæmlega eins en við erum sam-
mála um að það sé sjarmerandi. Svo
þurrka ég silkið í siglfirska fjallaloftinu,“
segir Kristína.
Hún segir verkefnin fjölbreytt en hún
hefur meðal annars litað fyrir víkinga-
sögufélög, nemendur í fatahönnun og
fyrir leikhús. Ella er þó eina tískumerkið
sem Kristína litar fyrir enn sem komið
er en hún segist þó finna fyrir áhuga
á handlituðum efnum hjá íslenskum
fatahönnuðum. Það geti einnig verið
hagkvæmara þegar upp er staðið að láta
handlita færri metra af efni en panta í
miklu magni að utan. „Ef flíkurnar seljast
ekki og fólk situr uppi með lager af föt-
um sem ekki verða notuð er það ákveðin
sóun. Þetta er líka samviskuspurning.“
En eru þeir margir sem handlita tau á
Íslandi? „Ég veit reyndar ekki til þess en
þó kunna þetta nokkrar. Textílhönnun
er ekki kennd lengur hér á landi eftir að
Myndlista- og handíðaskólinn varð að
Listaháskólanum. En mér er umhugað
um að fleiri læri þetta handbragð og
hef haldið nokkur námskeið sjálf,“ segir
Kristína.
Þá segir hún börnin sín mjög áhuga-
söm um handbragðið svo líklega taki
þau við keflinu af henni. „Þau eru líka
mjög hrifin af hugmyndinni um endur-
nýtingu og við erum oft að búa til kjóla
og skyrtur á þau upp úr gömlu, sem þau
fá síðan að lita sjálf. Þetta endar sjálfsagt
í „fjölskyldubisness“,“ segir Kristína
hlæjandi.
Nánar má forvitnast um hönnun
Kristínu á síðunni krberman á Facebook.
ÞURRKAR SILKIÐ Í
FJALLALOFTINU
FATAHÖNNUN Kristína Berman handlitar silki fyrir tískumerkið Ellu á
vinnustofu sinni við Siglufjörð. Hún er hrifin af endurnýtingu og saumaði sér
dragsíðan sumarkjól úr gömlum flíkum og litaði hann sjálf.
LITAR FYRIR ELLU
Kristína handlitar reglu-
lega fyrir tískumerkið
Ellu og segir aukinn
áhuga fyrir handlituðum
efnum hjá íslenskum
fatahönnuðum. Silkið
þurrkar hún í norðlensku
fjallaloftinu.
MYND/KRBERMAN
Hollenskur vöruhönnuður, Anna Korshun,
hefur hannað skó þar sem hvorki lím né
saumavélar koma við sögu. Sólanum og
innlegginu er smellt saman utan um ytra
byrðið, sem er úr tilskornu leðri og sam-
skeytunum lokað með þunnu gúmmí-
lagi. Anna hannaði smellutæknina með
styrk frá SFA -hönnunarsjóði arkitekta í
Hollandi.
Í umfjöllun á Coolhunting.com lýsir
Anna því hvernig stóll eftir ísraelska
hönnuðinn Gil Sheffi varð henni inn-
blástur að skónum en ekkert lím er notað
til að halda stólnum saman. Þá fannst
henni að einfalda mætti framleiðsluferli á
skóm yfirleitt og hraða því einnig.
Skórnir eru framleiddir í Hollandi og
sem stendur einungis fáanlegir þar. Í fram-
haldinu segist Anna ætla að hanna vetrar-
stígvél með sömu tækni og þá er hún með
hugmyndir um lífræna skó úr „náttúru-
legu plasti“, unnu úr kartöflum.
Nánar má forvitnast um skóhönnun Önnu
Korshun á www.annakorshun.com.
HOLLENSK HÖNNUN
Anna Korshun vildi
nálgast framleiðsluferli
á skóm á nýjan hátt og
hannaði smellutækni við
samsetningu á skóm.
Hvorki lím né sauma-
vélar koma við sögu.
MYND/ANNA KORSHUN
ENDURNÝTING
Kristína Berman
textíl- og fata-
hönnuður saumar
mikið upp úr gömlum
fötum og litar. Hún
saumaði sér drag-
síðan sumarkjól þegar
hún fann ekkert sem
henni líkaði í búð.
MYND/KRBERMAN
SKÓR ÁN SAUMA OG LÍMS
Hollenskur vöruhönnuður hannar saumlausa og límlausa leðurskó sem
framleiddir eru í Hollandi og hafa vakið mikla athygli.
ÚTSÖLULOK
Aðeins 3 verð
Opið virka daga kl. 11–
18.
Opið laugardaga kl. 11
–16.
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Síðustu dagar
útsölunnar
50% afsláttur
af allri útsöluvöru
Flottur fatnaður á frábæru verði.
- Nýtt kortatímabil -
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslu in d nan Bella on
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is