Fréttablaðið - 15.08.2013, Side 38
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
Bandaríski sálarsöngvarinn
Charles Bradley gaf í vor út
sína aðra sólóplötu, Victim of
Love. Bradley sló í gegn eftir að
heimildarmynd um hann, Soul of
America, var frumsýnd á hátíð-
inni South By Southwest í fyrra.
Hinn 65 ára Bradley átti erfiða
æsku og í raun hefur líf hans langt
í frá verið dans á rósum. Móðir
hans yfirgaf hann þegar hann var
aðeins átta mánaða og var honum
komið fyrir hjá ömmu sinni í
Flórída. Þegar hann var átta ára
tók mamma hans við honum aftur
og ól hann upp í Brooklyn í New
York. Þar bjó hann við mikla
fátækt og er hann var fjórtán ára
strauk hann að heiman og bjó á
götunni. Hann vann sem kokkur
í ríkinu Maine í áratug en eftir
það flæktist hann úr einu starfi í
annað. Meðal annars starfaði hann
sem James Brown-eftirherma á
hinum ýmsu klúbbum í Brook-
lyn, eða allt þar til Gabe Roth hjá
útgáfunni Daptone Records upp-
götvaði hann.
Fyrsta sólóplata Bradleys, No
Time For Dreaming, kom út 2011.
Hún hlaut víðast hvar mjög góða
dóma og komst inn á árslista hjá
virtum blöðum á borð við Rolling
Stone, Spin og GQ. Rapparinn Jay-Z
notaði lag af henni, I Believe In
Your Love, í laginu Open Letter á
sinni nýjustu plötu.
Eftir útkomu plötunnar spilaði
Bradley á hátíðinni South By South-
west við frábærar undirtektir
og kom einnig fram á hátíðunum
Bonnaroo, Austin City Limits, New-
port Folk Festival og Outside Lands.
Nýja platan, Victim Of Love,
hefur einnig fengið góða dóma, þar
á meðal þrjár og hálfa stjörnu hjá
Rolling Stone og fjórar af fimm
mögulegum bæði hjá tímaritinu Q
og The Guardian.
Bradley er þessa dagana í tón-
leikaferðalagi um Bandaríkin til
að fylgja plötunni eftir. Í byrjun
október ferðast hann svo um Evrópu
í einn og hálfan mánuð áður en för-
inni er aftur heitið heim til Banda-
ríkjanna. freyr@frettabladid.is
Fyrrverandi eft ir-
herma slær í gegn
Sálarsöngvarinn Charles Bradley starfaði sem James Brown-eft irherma áður en
hann sló í gegn. Önnur platan hans, Victim Of Love, hefur fengið góða dóma.
VINSÆLL Sálarsöngvarinn Charles Bradley nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
Charles Bradley er mjög þakklátur aðdáendum sínum fyrir skjótan frama
sinn. „Ég vil að þeir viti hversu mikið þeir hafa hjálpað mér að þroskast
sem söngvari,“ sagði hann, spurður út í sína nýjustu plötu. Í lokalagi
hennar, Through The Storm, lætur hann þakklæti sitt berlega í ljós, ekki
bara til aðdáenda sinna heldur einnig Guðs almáttugs og vina sinna.
„Þegar heimurinn færir þér ást þá frelsar það
sál þína,“ syngur hann.
Þakklátur aðdáendum sínum
Fyrsta platan sem ég heyrði með ensku hljómsveitinni The Cult var
Electric frá 1987 sem ég gróf upp úr vínilplötusafni bróður míns. Hún
var tíður gestur í græjunum lengi á eftir og lög á borð við Wild Flower,
Lil´Devil og Love Removal Machine hljómuðu hreint út sagt stórkostlega.
The Cult fylgdi Electric, sem sjálfur Rick Rubin tók upp, með annarri
flottri plötu, Sonic Temple, með slögurum á borð við Sun King, Fire Woman
og Sweet Soul Sister.
Á þessum tíma vissi ég
lítið sem ekkert um The
Cult. Seinna komst ég að
því að áður en Electric
kom út hafði hún verið
svokölluð gothic-rokksveit,
eða síðpönksveit og slegið
í gegn í heimalandinu með
plötunni Love og smáskífu-
laginu She Sells Sanctuary.
Með næstu plötu á eftir,
Electric, tók hljómsveitin
meðvitaða stefnu í átt að
örlítið harðara rokki og
stærri markaði. Electric og
Sonic Temple lögðu grunninn
að vinsældum The Cult í
Bandaríkjunum, sem þó urðu
minni en til stóð af ýmsum
ástæðum.
Svo fór að hljómsveitin
hætti störfum árið 1995
en sneri aftur þremur
árum síðar. Síðan Sonic Temple kom út hefur The Cult á síðustu tveimur
áratugum gefið út fimm plötur sem hafa fengið heldur blendnar viðtökur
og í raun hefur ferill hljómsveitarinnar fjarað hægt og sígandi út.
Þess vegna var það óvænt ánægja að frétta af núverandi tónleikaferðalagi
sveitarinnar, Electric 13, sem mætti alveg rata hingað til Íslands. Á fyrri
helmingi tónleikanna spilar hún Electric í heild sinni en síðari hlutinn fer
í „best-of“. Fyrir gamlan „Költara“ hljómar þetta gríðarlega spennandi en
hvort forsprakkarnir Ian Astbury og Billy Duffy hafi enn yfir að ráða gömlu
töfrunum er aftur á móti spurning.
Gömlu goðin spila
Electric í heild sinni
Emilíana Torrini - Tookah
Skepna - Skepna
Himnalaya - Himnalaya
Í spilaranum
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
8.8.2013 ➜ 14.8.2013
1 Avicii / Aloe Blacc Wake Me Up
2 Nýdönsk Iður
3 Olly Murs Dear Darlin’
4 John Newman Love Me Again
5 Naughty Boy / Sam Smith La La La
6 Dr.Gunni og Friðrik Dór Glaðasti hundur í heimi
7 Tom Odell Another Love
8 Pink / Lily Allen True Love
9 Dikta Talking
10 Robin Thicke / T.I. / Pharrell Blurred Lines
1 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
2 Sigur Rós Kveikur
3 Samaris Samaris
4 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
5 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
6 Ýmsir Inspired by Harpa
7 Retro Stefson Retro Stefson
8 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
9 Skálmöld Börn Loka
10 Ýmsir Yndislega eyjan mín
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason