Fréttablaðið - 23.09.2013, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGGólfefni MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 20138
ÞURRKAÐU AF FÓTUNUM
Upp á ensku er dyramotta oft
kölluð „welcome mat“ eða motta
sem býður fólk velkomið. Það
er ekki skrítið þar sem mottan
er yfirleitt það fyrsta sem mætir
gestum þegar komið er á
heimilið.
Dyramottur eru auk þess besti
vinur þess sem sér um þrifin á
heimilinu þar sem stór hluti af
sandi og skít verður eftir í grófu
mynstri mottunnar.
Dyramottur má fá í hinum
ýmsu útgáfum með mismunandi
og oft fyndnum áletrunum og
jafnvel með myndum af því sem
einkennir húsráðendur, til dæmis
hundum og hestum.
Árið 1995 fann Ralph Baer upp
dyramottuna Chat-Mat en með
henni er hægt að taka upp skila-
boð sem eru spiluð þegar stigið
er á mottuna. Skemmtileg leið til
að taka á móti gestum.
SKÍNANDI HREINT
Ekki er sama hvernig parkett
er þrifið en huga þarf að því af
hvaða gerð parketið er.
Lakkað parkett er best að sópa
og rykmoppa eftir þörfum. Gólfið
skal þvo með mildu sápuvatni en
best er að þurrvinda moppuna.
Varast ber að láta vætu liggja á
lökkuðu parkettgólfi. Nota má
vatnsuppleysanlegt bón eða
vaxbón en ekki er gott að bóna
slík gólf oft. Ef lakkið er orðið slitið
þarf að pússa gólfin upp og lakka
að nýju.
Olíu- eða vaxborið parkett er
gott að rykmoppa reglulega.
Best er að nota grænsápu, þar til
gerða parkettsápu eða sápu sem
er feit, því fitan mettar gólfborðin.
Nauðsynlegt er að olíu- eða
vaxbera gólf nokkuð reglulega,
annars vilja þau þorna og verða
mislit.
Plastparkett má ekki bleyta of
mikið. Ef þarf að skúra á að nota
volgt vatn en þurrka það jafn-
óðum. Best er að strjúka yfir með
þurri moppu eða ryksuga.
VATNSSKYNJARI GÓÐ LAUSN
Það er óskemmtilegt að verða fyrir vatnstjóni. Vatnsskynjarar
hafa bjargað mörgum frá miklu tjóni. Gott er að hafa þá á gólfi
í þvottahúsi, eldhúsi og baðherbergi, sérstaklega ef niðurfall er
ekki til staðar. Hægt er að tengja vatnsskynjara við öryggiskerfi.
Vatnsskynjari er ekki dýrt stykki en ákaflega góð öryggisvörn.
Í flestum nýrri húsum eru niðurföll í baðherbergjum og
þvottahúsum en þeim þarf að halda hreinum til að koma í veg
fyrir tjón. Ef niðurfallið stíflast gerir það lítið gagn ef flæðir á
gólf. Ástæður vatnstjóna geta verið margar, lagnir geta gefið
sig eða fólk gleymir óvart að skrúfa fyrir krana. Á veturna getur
gert asahláku með þeim afleiðingum að það flæðir inn í hús.
Óhöppin gera sjaldnast boð á undan sér og því er mjög gott
að vera vel varinn. Ekki er gott að gleyma að skrúfa frá krana.
Nánar um átakið og upplýsingar um sölustaði á
aallravorum.is og facebook.com/aallravorum.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
SÖFNUNARSÍMI
Hringdu í síma 903 1000
og gefðu 1000 kr.
Hringdu í síma 903 3000
og gefðu 3000 kr.
Hringdu í síma 903 5000
og gefðu 5000 kr.
Í ár ætlar Á allra vörum að hjálpa þeim sem eiga við geðræn vandamál að stríða og
safna fyrir nýrri geðgjörgæsludeild á Landspítalanum með aðstoð þjóðarinnar.
Með því að hringja í söfnunarnúmerin eða kaupa Á allra vörum gloss frá Dior leggur
þú þitt á vogarskálarnar.