Fréttablaðið - 23.09.2013, Blaðsíða 56
23. september 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 28
Pepsi deildin 2013
KR 20 16 1 3 47-23 49
FH 21 13 5 3 43-22 44
Stjarnan 21 13 4 4 34-21 43
Breiðablik 21 10 6 5 34-25 36
Valur 21 7 9 5 40-31 30
ÍBV 21 8 5 8 25-26 29
Keflavík 21 7 3 11 31-44 24
Fylkir 21 6 5 10 30-32 23
Fram 21 6 4 11 25-35 22
Þór 21 5 6 10 29-43 21
Víkingur Ó. 21 3 8 10 21-30 17
ÍA 20 2 2 16 25-52 8
D-vítamínbættur
Mörkin: 0-1 Gary Martin (15.), 0-2 Gary Martin
(26.), 1-2 Jonas Grönner, sm (30.).
Valur (5-4-1): Fjalar Þorgeirsson 6 - Jónas Tór
Næs 6 Arnar Sveinn Geirsson 5 (72. Matthías
Guðmundssonm 5), Magnús Már Lúðvíksson 6,
Stefán Ragnar Guðlaugsson 5 (83. Haukur Ás-
berg Hilmarsson -), Matarr Jobe 4, Sigurður Egill
Lárusson 5 - Kristinn Freyr Sigurðsson 6, Andri
Fannar Stefánsson 5, Lucas Ohlander 4 - Indriði
Áki Þorláksson 4.
KR (4-4-2): Hannes Þór Halldórsson 7 - Haukur
Heiðar Hauksson 6, Grétar Sigfinnur Sigurðsson 6,
Jonas Grönner 5, Guðmundur Reynir Gunnarsson
6 - Atli Sigurjónsson 7 (66. Brynjar Björn Gunnars-
son 6), Bjarni Guðjónsson 7, Jónas Guðni Sævars-
son 5, Óskar Örn Hauksson 6 - Gary Martin 8 *
(76. Kjartan Henry Finnbogason -), Emil Atlason
(78. Þorsteinn Már Ragnarsson -).
Skot (á mark): 2-9 (2-6) Horn: 6-3
Varin skot: Fjalar 4 - Hannes 2
Aukaspyrnur: 1-3
2-1
Hlíðarendi
Guðmundur
Ársæll (7)
Mörkin: 0-1 Tómas Óli Garðarsson (9.), 1-1 Veigar
Páll Gunnarsson (21.), 2-1 Halldór Orri Björnsson
(24.), 3-1 Halldór Orri Björnsson (34.), 3-2 Árni
Vilhjálmsson (48.).
Stjarnan (4-3-3): Ingvar Jónsson 6 - Jóhann
Laxdal 7, Martin Rauschenberg 6, Daníel Laxdal
7, Hörður Árnason 6 (81. Tryggvi Bjarnason) -
Michael Præst 6, Robert Johann Sandnes 7, Veigar
Páll Gunnarsson 8 - Ólafur Karl Finsen 5 (33.
Kennie Knak Chopart 5), *Halldór Orri Björnsson
8, Garðar Jóhannsson 6.
Breiðablik (4-4-2): Gunnleifur Gunnleifsson 6 -
Þórður Steinar Hreiðarsson 6 (45. Viggó Kristjáns-
son 5), Elfar Freyr Helgason 5, Sverrir Ingi Ingason
6, Kristinn Jónsson 6(79. Olgeir Sigurgeirsson)
- Gísli Páll Helgason 5, Finnur Orri Margeirsson 6,
Andri Rafn Yeoman 5, Tómas Óli Garðarsson 7 -
Ellert Hreinsson 4 (45. Elfar Árni Aðalsteinsson 6),
Árni Vilhjálmsson 7.
Skot (á mark): 9-13 (7-5) Horn: 5-8
Varin skot: Ingvar 3 - Gunnleifur 3
Aukaspyrnur: 11-15
2-3
Samsungvöllur
1273 áhorfendur
Þorvaldur
Árnason (8)
FÓTBOLTI KR varð í gær Íslands-
meistari í Pepsi-deild karla eftir,
2-1, sigur á Val á Vodafone-vell-
inum. Liðið hefur því tryggt sér
titilinn fyrir lokaumferðina en
KR-ingar eru með 49 stig. Vestur-
bæjarveldið á samt sem áður tvo
leiki eftir af tímabilinu og geta
því farið vel yfir 50 stiga múrinn.
Þetta var í 26. skipti sem KR verð-
ur Íslandsmeistari í knattspyrnu
karla.
Gary Martin gerði bæði mörk
KR í leiknum og komu þau í fyrri
hálfleiknum.
„Það var í raun aðeins meiri ró
yfir liðinu í dag, meira stress fyrir
leikinn gegn Blikum á fimmtudag-
inn,“ segir Rúnar Kristinsson,
þjálfari KR, eftir að liðið hafði
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
„Liðið lék virkilega vel í fyrri
hálfleiknum í dag og lagði grun-
inn að þessum sigri þá. Ég var
ekki sáttur þegar Valsmenn
minnkuðu muninn og þetta stóð
nokkuð tæpt á tíma, þar sem Vals-
menn voru sterkari aðilinn í síðari
hálfleiknum.“
KR hefur verið með besta liðið
í allt sumar og sýnt á köflum frá-
bæra spilamennsku. Liðið er vel
mannað og hefur Rúnar gríðar-
lega breiðan hóp leikmanna.
Mögnuð liðsheild
„Það sem leggur grunninn að
þessum titli er ótrúleg liðsheild.
Menn eru alltaf tilbúnir að fórna
sér hver fyrir annan. Það þurfa
alltaf einhverjir góðir leikmenn
að sitja á varamannabekknum
og fá færri tækifæri en aðrir og
menn þurfa bara að bíta í það
súra epli. Það hefur alveg komið
upp að leikmenn verði pirraðir en
svona breiður hópur er að skila
KR Íslandsmeistaratitlinum í ár.“
„Það verður að segjast alveg
eins og er að þetta er mjög góð til-
finning,“ segir Atli Sigurjónsson,
leikmaður KR, eftir leikinn.
„Síðari hálfleikurinn hjá okkur
var alls ekki nægilega góður og
við náðum ekki að spila okkar
leik. Valsmenn áttu alveg mögu-
leika á því að jafna en sem betur
fer hafðist það ekki.“
KR-ingar voru í raun lakari
aðilinn í síðari hálfleiknum og
heppnir að Valsmenn náðu ekki
að jafna.
„Liðið byrjaði strax í nóvember
að búa sig undir þetta tímabil og
markmiðin voru skýr, við ætluð-
um okkur Íslandmeistaratitilinn.“
„Það sem kemur fyrst upp í
huga manns er mikill léttir,“
segir Grétar Sigfinnur Sigurðar-
son, leikmaður KR, eftir sigurinn
í gær.
KR gat með sigri á Breiðablik á
fimmtudaginn tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn en liðið tapaði illa
3-0 fyrir Kópavogsliðinu og þurfti
því að hafa sig allt við til að landa
titlinum í gær.
„Það var virkilega pirrandi að
tapa svona illa gegn Blikum á
fimmtudaginn og við ætlum svo
sannarlega að gera betur í dag.“
KR og Valur hafa í gegnum ára-
tugina verið miklir erkifjendur og
því var ekki leiðinlegt fyrir KR-
inginn að klára Íslandsmeistara-
titilinn á þeirra heimavelli.
„Það er auðvitað alltaf gaman
að klára svona titil en KR og
Valur eru miklir erkifjendur og
því sérstaklega gaman hér.“
stefanp@365.is
KR Íslandsmeistari í 26. sinn
KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í gær eft ir sigur á Val 2-1. Liðið á enn tvo leiki eft ir af tíma-
bilinu og geta leikmenn liðsins nú andað léttar. Gary Martin gerði bæði mörk KR í leiknum.
MEISTARAR Bjarni Guðjónsson fer hér í gegnum ákveðna athöfn eftir alla sigurleiki. Stemningin var mögnuð eftir leik KR og
Vals í gær. Íslandsmeistarar árið 2013 dönsuðu sigurdans með stuðningsmönnum Vesturbæinga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Þetta er alveg ný til-
finning fyrir mig og ótrúlega sætt
að vinna þennan titil,“ segir Gary
Martin, leikmaður KR, eftir sigur-
inn í gær.
KR varð Íslandsmeistari í Pepsi-
deild karla eftir flottan útisigur á Val,
2-1, í gær og gerði Englendingurinn
bæði mörk KR í leiknum.
„Þetta er fyrsta heila tímabilið
mitt hjá félaginu og þvílíkt tímabil.
Það er erfitt að lýsa þessari til-
finningu. Eftir alla þessu vinnu og
hvernig liðið hefur alltaf staðið
saman sem ein heild er ótrúlegt að
ná loks markmiðum sínum.“
Martin hefur verið magnaður
undanfarnar vikur og hefur nú skorað
11 mörk fyrir KR-inga á þessu Ís-
landsmóti.
„Við lögðum alla þessa vinnu
á okkur fyrir þetta andartak. Mér
fannst við vera besta liðið á Íslandi á
síðustu leiktíð en náðum að kasta frá
okkur titlinum. Núna er hann okkar
og við verðum að njóta þess.“
Framherjinn telur að reynsla og
liðsheild hafi skilað þessum titli.
„Við fengum Brynjar Björn [Gunn-
arsson] fyrir tímabilið og hann er
sennilega einn mesti reynsluboltinn í
íslenskum fótbolta.“ - sáp
Unnum fyrir þessu andartaki
SÁTTIR Gary Martin fagnar hér ásamt
Hannesi Þór. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stjörnumenn gulltryggðu farseðil í Evrópukeppni á næsta ári
með 3-2 sigri á Blikum á Samsung-vellinum í gær.
„Þetta er stórkostlegt, við settum okkur markmið að
ná Evrópusæti og við náðum því. Við unnum Blika sem
Stjarnan hefur verið í basli með undanfarið,“ sagði
Logi Ólafsson, þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn.
„Við höfum unnið bug á ýmsum draugagangi
sem hefur verið í Garðabæ, bæði hjá okkur og
gegn öðrum liðum. Þetta er vonandi búið í
bili og það er frábært.“
Þetta var þriðja árið í röð sem liðin
mætast undir lok móts upp á Evrópusæti.
„Ég vill ekki kalla þetta hefndarhug, við för-
um í alla leiki til að vinna og menn nálguðust
þetta af miklum eldmóði. Við héldum þetta út
og erum ánægðir með það.“
Stjarnan loksins í Evrópukeppnina
SPORT