Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 2
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNMÁL „Það er ekki enn búið
að finna lausn á því hvernig eigi
að fækka körlum í Íslandsdeild
Evrópuráðsþingsins,“ segir Einar
K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Evrópuráðsþingið gerði í
sumar alvarlegar athugasemdir
við skipan nefndarinnar og sagði
hana ekki samræmast reglum um
kynjakvóta. Í nefndinni sitja Karl
Garðarsson, Brynjar Níelsson og
Ögmundur Jónasson.
Verulegur kynjahalli er í
sumum nefndum Alþingis. Einar
segir að ekki hafi komið fram
neinar hugmyndir um að jafna
kynjahlutföll í öðrum nefndum.
- jme
Ísland og Evrópuráðsþingið:
Enn þrír karlar
í nefndinni
SAMFÉLAGSMÁL „Þetta er umhugs-
unarvert auðvitað,“ segir Hörður
Már Harðarson, formaður Lands-
bjargar, en björgunarsveitin
Mannbjörg í Þorlákshöfn lét börn
á fermingaraldri stökkva ofan í
höfnina án þess að klæða þau í
flotbúninga. Um æfingu var að
ræða á svokölluðu strumpanám-
skeiði fyrir unglinga sem vilja
komast í björgunarsveitina. Til-
gangur æfingarinnar var sá að
leyfa börnunum að finna fyrir
kulda sjávar en börnin stukku
ofan í sjóinn á þriðjudagskvöldið
var.
Niðurstaðan varð þó sú að eitt
barnið, þrett-
án ára stúlka,
gleypti sjó og
átti erfitt með
andardrátt
vegna kuld-
ans. Stúlkunni
var ekið til for-
eldra sinna eftir
atvikið en henni
varð ekki meint
af volkinu.
Annað foreldri hafði samband
við fréttastofu og gagnrýndi að
börnin hefðu ekki verið í flot-
göllum, þótt þau hefðu verið í
björgunarvestum þegar þau
stukku út í sjóinn. Eitt foreldri
meinaði meðal annars barni sínu
að taka þátt í æfingunni. Þá stað-
festir formaður björgunarsveitar-
innar í Þorlákshöfn, Ásgeir Guð-
mundsson, að leiðbeinendur hefðu
verið í flotgöllum. Aðspurður
hvers vegna börnin fóru ekki líka
í flotgalla svaraði hann: „Ef það
hefðu verið til gallar á þau hefðu
þau auðvitað farið í þá.“
Ásgeir útskýrði fyrir frétta-
manni að æfingin væri ekki
óeðlileg. Hann benti einnig á að
leiðbeinendur hefðu gætt að börn-
unum á meðan þau stukku ofan í
sjóinn, auk þess sem teppi hefðu
verið á bakkanum. Hann sagði
mikilvægt að börnin áttuðu sig
á aðstæðum, „svo hafa þau bara
gaman af þessu,“ bætti hann við.
Hörður Már segir mikilvægt
að það komi fram að börnin hafi
stokkið ofan í sjóinn af fúsum og
frjálsum vilja. „Og þarna voru
menn við fullkomnar aðstæður,
björgunar sveitar maður var í sjón-
um og fleiri fylgdust með,“ bendir
Hörður á.
Spurður um áhyggjur foreldra
svarar hann: „Ég skil afstöð-
una, við viljum auðvitað forðast
að stefna fólki í óþarfa hættu og
höfum sérstakar siðareglur hvað
það varðar.“
Hörður telur þó atvikið hafa
verið innan marka. „En við
munum auðvitað skoða verkferla
og málið verður kannað gaum-
gæfilega,“ bætir hann við. - vg
Leiðbeinendur í flot-
galla en börnin ekki
Foreldri barns á fermingaraldri gerði athugasemdir við æfingu björgunarsveitar-
innar í Þorlákshöfn. Börnin stukku ofan í sjó án flotgalla en leiðbeinendurnir voru
í galla. Þrettán ára stúlka gleypti sjó og átti erfitt með andardrátt.
HÖRÐUR MÁR
HARÐARSON
ÞORLÁKSHÖFN Krakkarnir stukku út í sjóinn á þriðjudaginn var. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Þrítugur karl maður
játaði vörslu á miklu magni
af barnaklámi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Maðurinn var ákærður fyrir
kynferðisbrot með því að hafa
haft í sinni vörslu yfir fimm þús-
und ljósmyndir sem sýndu börn
á kynferðislegan hátt. Þá hafði
hann einnig undir höndum tíu
stuttar kvikmyndir sem einnig
sýndu börn á klámfenginn hátt.
Maðurinn játaði sök skýlaust
og var málið dómtekið í gær og
er þess einnig krafist að tölva
mannsins, auk myndefnisins,
verði gerð upptæk.
- vg
Með fimm þúsund myndir:
Játaði vörslu
barnakláms
Ástrós, ætlar þú að taka þetta
skref fyrir skref?
„Já, svo lengi sem bakhöndin
klikkar ekki.“
Ástrós Erla Benediktsdóttir hefur verið
ráðin skólastjóri NN Make up School. Hún
aðstoðaði við gerð bókarinnar „Förðun, skref
fyrir skref“.
VERÐLAUN Elma Rún Benediktsdóttir tók í gær við
verðlaununum fyrir sigur í ljósmyndasamkeppni
Fréttablaðsins, sem bar yfirskriftina „Náttúra“.
Mynd Elmu af tófu með marhnút í kjaftinum þótti
skara fram úr.
Elma segist hafa stundað ljósmyndun í um fimm ár
og að áhuginn hafi kviknað við að skoða fuglamyndir
frá öðrum. Fyrst hafi hún notað myndavél sem mað-
urinn hennar á, en fljótlega fjárfest í betri tækjum.
„Þetta vatt svo upp á sig,“ segir Elma sem ein-
beitir sér að mestu að því að mynda flækingsfugla,
sem getur oft verið mikil þolinmæðisvinna. „Ég var
til dæmis einu sinni í fimm tíma að eltast við hettu-
söngvara í tíu stiga frosti, en maður finnur ekkert
fyrir kuldanum í svoleiðis aðstæðum.“
Varðandi sigurmyndina segir Elma að hún hafi
ekki þurft að sitja lengi um tófuna. Þau hafi verið
í útilegu í Veiðileysufirði á Hornströndum þar sem
þau sáu tófuna vera að rótast í fjörunni. Elma var svo
fljót að grípa myndavélina þegar hún sá lágfótu koma
aftur upp og náði þessu sérstaka augnabliki.
Næsta ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins er
þegar hafin. Hun ber yfirskriftina „Útivist“ og
stendur til miðnættis 2. október. Þátttakendur geta
hlaðið upp myndum á ljosmyndakeppni.visir.is og á
Facebook-síðu Fréttablaðsins. - þj
Áhugaljósmyndarinn Elma Rún Benediktsdóttir hlýtur verðlaun:
Sigraði í ljósmyndasamkeppni
MEÐ SIGURLAUNIN Elma Rún Benediktsdóttir varð hlut-
skörpust í ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins. Hún hlaut að
launum glæsilega Nikon-myndavél frá Heimilistækjum sem
hún tekur hér á móti frá Ólafi Þ. Stephensen ritstjóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KIRKJUMÁL Bandaríski predikar-
inn Franklin Graham kom ásamt
fylgdarliði sínu við á biskups-
stofu í gær þar sem hann heils-
aði stuttlega upp á Agnesi M. Sig-
urðardóttur biskup.
Hún segir frá þessu á vefsíðu
kirkjunnar og skýrir frá við-
ræðum þeirra.
Meðal annars segist hún hafa
tekið eftir því að auglýsinga-
herferð fyrir hina umdeildu
Hátíð vonar, sem haldin verður í
Laugar dalshöll um helgina, hefur
verið afar áberandi undanfarið:
„Ég tjáði honum að ég væri óvön
slíkum auglýsingaherferðum á
sviði kirkjumála,“ segir biskup.
Hún uppfræddi Graham enn
fremur um afstöðu kirkju sinnar
til samkynhneigðra, en Graham
hefur ítrekað lýst því yfir að
samkynhneigð sé að hans mati
syndsamleg. Trúfélög geti því
ekki lagt blessun sína yfir sam-
kynhneigð án þess að rísa gegn
guði.
„Kirkjan hefur tekið skýra
afstöðu með samkynhneigðum,
réttindabaráttu þeirra, fjöl-
skyldum og hjónabandi,“ segir
Agnes og minnir á að fjölskyldu-
form á Íslandi séu af ýmsu tagi
í dag: „Þjóðkirkjan vill standa
vörð um fjölskyldurnar allar,
hvert svo sem form þeirra er, og
einnig stuðla að og standa vörð
um velferð þeirra.“
Agnes var töluvert gagnrýnd
fyrir það í sumar að ætla að
ávarpa hátíðina en ítrekar að
hún hafi þegið boð um það fyrir
mörgum mánuðum og muni gera
það á laugardagskvöldið.
- gb
Predikarinn Franklin Graham leit í heimsókn til Agnesar M. Sigurðardóttur á biskupsstofu:
Biskup lýsti stuðningi við samkynhneigða
FRANKLIN
GRAHAM
AGNES M.
SIGURÐARDÓTTIR
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
MENNING Leikhópur Húss Bernhörðu Alba færði sig í gærmorgun um
set því að þrátt fyrir að Borgarleikhúsið setji sýninguna upp verður hún
sýnd í Gamla bíói. „Þetta er sögufrægt hús og ótrúlega fallegt,“ segir
Maríanna Clara Lúthersdóttir en hún fer með eitt hlutverkanna í sýning-
unni. „Það er rosalega góður hljómburður þarna og ég hef aldrei leikið
þarna áður,“ útskýrir hún. Um 40 konur taka þátt í sýningunni, þar af 20
söngkonur úr kórnum Vox feminae.
Ástæðan fyrir því að verkið er flutt í Gamla bíó er plássleysi en Stóra
sviðið er nú upptekið vegna sýninga á Mary Poppins og Músum og
mönnum. Hús Bernhörðu Alba verður frumsýnt 18. október. - nej
Æfingar hafnar á Húsi Bernhörðu Alba í Gamla bíói:
40 konur fluttar vegna plássleysis
KÁTAR KONUR Söng- og leikkonur í verkinu Hús Bernhörðu Alba láta plássleysi í
Borgarleikhúsinu ekki á sig fá. MYND/GVA
SPURNING DAGSINS
Höfum bæ
tt við hús
næði.
Einnig up
plagt gey
mslupláss
fyrir bíla
og báta.
Upplýsingar í síma 458 8269 eða
á ferdavagnageymsla@gmail.com
Bjóðum upp á góða ferðavagnageymslu yfir
veturinn, í upphituðu húsnæði miðsvæðis í
Reykjavík. Svæðið er girt af og vaktað.
Við geymum vagninn í vetur
Ég skil afstöðuna, við
viljum auðvitað forðast að
stefna fólki í óþarfa hættu
og höfum sérstakar siða-
reglur hvað það varðar.
Hörður Már Harðarson,
formaður Landsbjargar.