Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 29
BARNAAFMÆLI
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2013 Kynningarblað Bíó, Gokart, Laser Tag, hoppukastalar, hópefli, veitingar og leikir.
GEYM
IÐ
BLAÐIÐ
Smárabíó er eitt glæsilegasta kvik-
myndahús landsins. Ekki er amalegt
að færa afmæli sitt þangað og horfa á
skemmtilega bíómynd með ættingjum
og vinum.
Jón Ei r í k u r Jóha n nsson rekstrar stjóri segir að sífellt fleiri nýti sér þetta skemmti-
lega form á því að halda barnaaf-
mæli. „Þetta hefur verið gríðarlega
vinsælt og þeim fer stöðugt fjölg-
andi sem koma hingað í Smárabíó
og halda veislu. Börnin hafa verið
einstaklega ánægð með svona af-
mælisveislu. Til dæmis hafa mörg
afmælisbörn komið með gesti
á hina vinsælu mynd Aulinn ég
sem við erum með í sýningu um
þessar mundir. Ég á von á því að
væntanlegar myndir á borð við
Turbo, Skýjað með kjötbollum á
köflum 2, Frozen og Risa eðlurnar,
sem eru allar á leiðinni í sýningar
hjá okkur á næstu vikum og mán-
uðum, verði sömuleiðis mjög vin-
sælar,“ segir Jón Eiríkur. Gestir
geta valið úr þeim myndum sem
eru í almennum sýningum.
Algengt er að afmælishópar séu
á bilinu 10-30 á aldrinum 5-14 ára
en mögulegt er að taka á móti enn
stærri hópum. „Við útbúum að-
stöðu hjá okkur fyrir hvern hóp
fyrir sig og leyfilegt er að koma
með afmælisköku að heiman.
Afmælisbarnið fær þá að blása
á kerti og allir syngja afmælis-
sönginn. Þar sem þarfir hvers ald-
urs geta verið ólíkar ráðleggjum
við fólki hvaða sýn ingar henta og
hvernig best verði að þessu staðið
fyrir hvern hóp. Aulinn ég hentar
til að mynda gríðar lega vel því
hún nær til breiðs aldurshóps og
er með íslensku tali, en á hverjum
tíma er nokkuð öruggt að Smára-
bíó er með í sýningu barna- og
fjölskyldumyndir sem henta vel
í alls konar afmælisveislur. Að
minnsta kosti tveir full orðnir
þurfa að koma með börnunum.
Yfirleitt kemur fólk með afmælis-
köku en síðan fylgir popp og gos
hverjum bíómiða. Veittur er sér-
stakur hópafsláttur.“
Smárabíó í Smáralind hefur
alltaf boðið upp á afmælissýn-
ingar fyrir börn en undanfarið
hefur þessi tegund afmælisveislu
orðið gríðarlega vinsæl. Sýningar
eru kl. 13 og 15 um helgar en í
miðri viku kl. 16 og 18.
Til að panta afmælissýningu
þarf að fara inn á heimasíðuna
www.smarabio.is þar sem sérstök
beiðni er útfyllt og henni er síðan
svarað innan 48 klukkustunda.
Gott er að panta að minnsta kosti
fimm dögum fyrir afmælið.
Afmælisgestum boðið í bíó
Smárabíó býður upp á skemmtilega tilbreytingu fyrir barnaafmæli. Afmælisbarnið býður gestum sínum í
bíó og allir fá popp, gos og afmælissöng. Sífellt fleiri nýta sér þennan möguleika.
Myndin Aulinn ég hefur verið afar vinsæl hjá afmælisbörnum og gestum þeirra.
Turbo á eftir að slá í gegn hjá krökkunum en hún er væntanleg í sýningu fljótlega.
Þægileg sæti eru í Smárabíói og
þar fer vel um afmælisgesti.