Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 38
Við opnun Vísindavöku verður veitt
viðurkenning Rannís fyrir vísinda-
miðlun. Illugi Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra, af hendir
viðurkenninguna fyrir hönd Rannís
og fer afhendingin fram í aðalsal
Háskólabíós kl. 17.00 á föstudaginn
27. september. Vísindavakan er ein-
mitt kjörinn vettvangur fyrir þá sem
stunda rannsóknir og nýsköpun til að
miðla þekkingu sinni og uppgötvun-
um til gesta á lifandi og auðskiljan-
legan hátt, en góð vísindamiðlun
snýst oft um að gera flókna hluti ein-
falda og tengja þá við daglegt líf.
Viðurkenning fyrir vísinda miðlun
er veitt stofnun, fyrirtæki, einstak-
lingi, samtökum eða verkefni sem
þykir hafa staðið ötullega að því að
miðla vísindum og fræðum til al-
mennings á áhugaverðan hátt. Skal
vísindamiðlunin hafa stuðlað að
bættum skilningi almennings, barna,
ungmenna og fullorðinna á vís indum
og fræðum og á mikilvægi þeirra
fyrir íslenskt samfélag. Einnig skal
vísindamiðlunin hafa vakið athygli á
starfi vísindamanna og á mikilvægi
rannsókna og nýsköpunar í íslensku
samfélagi.
Háskólalestin hlaut viðurkenn-
ingu Rannís á síðasta ári fyrir vís-
indamiðlun, en lestin hefur ferðast
um landið, heimsótt bæi og staðið
fyrir vísindamiðlun sem ætlað er að
fræða alla landsmenn um hin ýmsu
svið vísinda og fræða.
Viðurkenning fyrir vísindamiðlun
■ FJÖLBREYTT VIÐFANGS
EFNI RANNSÓKNASETRA HÍ
Á LANDSBYGGÐINNI
Viðfangsefni rannsóknasetra Háskóla
Íslands á landsbyggðinni mótast af
umhverfi á hverjum stað fyrir sig og
á Vísindavöku að þessu sinni verður
hægt að kynnast rannsóknum sem
fara fram á Suðurnesjum og á Snæ-
fellsnesi. Rannsóknasetrið í Sandgerði
býður gestum að kynna sér landnám
grjótkrabba við Ísland og fræðast um
það hvernig kræklingur er notaður
sem mælitæki við mengunarrann-
sóknir á norðurslóðum.
Grjótkrabbinn er nýr landnemi en allt
frá 2007 hefur hann verið rannsak-
aður og fylgst með framvindu hans
hér við land. Kræklingurinn hefur
hins vegar verið notaður undanfarin
ár til rannsókna á mengun sjávar
en hann hentar einstaklega vel sem
mælitæki við slíkar rannsóknir.
Rannsóknasetrið á Snæfellsnesi
leggur hins vegar áherslu á rann-
sóknir á framleiðni grágæsa og veltir
upp spurningum eins og hvernig
hægt sé að skjóta fjörutíu þúsund
grágæsir ár eftir ár úr stofni sem
telur aðeins um 110 þúsund fugla
að hausti. Með því að rannsaka
mismunandi búsvæði sem standa
undir veiðinni er vonast til þess að
hægt verði að greina hver þeirra eru
mikilvægust fyrir verndun og viðhald
grágæsarstofnsins. Kynnt verða
rannsóknargögn um breytileika í
varpárangri milli mismunandi bú-
svæða og landshluta með myndum,
myndböndum og spjalli við sjálfan
rannsakandann Helga Guðjónsson.
Háskólalestin hlaut viðurkenningu
Rannís fyrir vísindamiðlun á Vísinda-
vöku 2012.
Lifandi
vísindamiðlun
á sviði Háskólabíós
föstudaginn 27. september kl. 17:00 - 22:00
Salur 1:
Stóri salur:
27. SEPTEMBER 2013 4 ● Vísindavaka Rannís FÖSTUDAGUR