Fréttablaðið - 27.09.2013, Page 13

Fréttablaðið - 27.09.2013, Page 13
FÖSTUDAGUR 27. september 2013 | FRÉTTIR | 13 SÝRLAND Þrettán hópar sýr- lenskra íslamista afneita í sam- eiginlegri yfirlýsingu öllum tengslum við Sýrlenska þjóðar- bandalagið, samtök sýrlenskra stjórnarandstæðinga sem Vestur lönd hafa stutt. „Engir hópar sem stofnaðir voru erlendis og hafa ekki snúið aftur til landsins eru fulltrúar okkar,“ segir í yfirlýsingunni. Þeir hvetja sýrlenska upp- reisnarmenn jafnframt til að sameinast undir merkjum íslams. Herskáir íslamistar hafa orðið æ meira áberandi meðal upp- reisnarmanna í Sýrlandi og eru nú taldir skipta tugum þúsunda. Sumir þeirra eru með tengsl við Al-Kaída. - gb Íslamistahópar í Sýrlandi: Hafna Þjóðar- bandalaginu VOPNAEFTIRLIT SNÝR AFTUR Mun hafa umsjón með eyðingu efnavopna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Beatrice Ask, dóms- málaráðherra Svíþjóðar, hefur beðið rómafólk afsökunar fyrir hönd Svíþjóðar vegna gagna- grunnsins sem lögreglan á Skáni hélt yfir fjögur þúsund einstaklinga á öllum aldri. Sænskir fjöl- miðlar greina frá því að ráð- herrann ætli að funda á mánu- daginn með fulltrúum róma- fólks. Beatrice Ask sagði í við- tali í gær að það væri mat sitt að kynþáttahatur lægi að baki gagnagrunninum. Hún kvaðst líta brot lögreglunnar mjög alvarlegum augum og tók fram að hún hefði fullan skilning á líðan rómafólks vegna málsins. -ibs Fundar með rómafólki: Dómsmálaráð- herrann biðst afsökunar BEATRICE ASK LONDON, AP Fyrirhugaðar breyt- ingar á nafni þorps eins í suður- hluta Wales hefur framkallað sannkallað fýlukast meðal íbúa. Talsmenn þess að staðinn sé vörður um velska tungu hafa lagt til að nafninu Varteg verði breytt í Y Farteg, í samræmi við velskan rithátt, enda er Varteg enskur ritháttur. Íbúar óttast hins vegar að þorpið verði aðhlátursefni. Einn þorpsbúanna, Sioned Jones, sagði í samtali við Wales Online: „Ímyndaðu þér bara að hafa „fart“ í þorpsnafninu.“ Bæjarstjórnin sagði fyrr í vikunni að velska tungumála- stofnunin hefði stungið upp á nýja nafninu og að engar breyt- ingar yrðu gerðar án samþykkis íbúanna. - þj Íbúar þorps eins í Wales: Í fýlukasti vegna Y Farteg Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is 2014 S ki Íslandskort í Garm in GP tæ Routeable TOPO Ic eland for Garmin G PS Landakort fyrir Gar min GPS tæ ásamt götukorti af bæjarfélögum me ð heimilisföngum, 40.000 örnef áhugaverðum stöð um, landlíkani (DE M) og hæðarlínum með 20 metra mil libili. Topographic map o f Iceland for Garm in GPS units with r outable roads and street maps of cities and towns with addres ses, 40.000 geogra phic points, over 5 .000 Points of Interest a nd elevation lines every 20 meters. ki með leiðsöguhæ fum vegakortum fy rir allt landið num, yfir 5.000 GPS Kort NÝTT ÍSLANDSKORT FYRIR GARMIN GPS TÆKI OKTÓBER TILBOÐ Allir sem eiga GPS Kort geta uppfært í október, sama hversu gamalt það er! Frítt fyrir þá sem keyptu GPS Kort 2012 eftir 1. ágúst. Fullt verð: 12.900 Uppfærsluverð: 7.900 Nýtt í 2014: Nýjar hæðarlínur á jöklum. Lengd vega og slóða eykst um 272 km. Lengd gönguleiða og stíga eykst um 2.008 km. 1.497 nýir áhugaverðir staðir (POI). Nýtt vatnafar, lagfærðar hæðarlínur, hæðarlíkan og strandlína. Rafmagnslínur og margt fleira. Sjá nánar á www.garmin.is ENGLAND Snarpar umræður urðu um endurheimtur úr þrotabúum íslensku bankanna á sveitar- stjórnar fundi Wyre Forest í Worces- terskíri á Englandi á miðvikudag. Á fréttavef The Shuttle kemur fram að Nigel Knowles, fulltrúi Verkamannaflokksins, hafi hart deilt á John Campion, sveitar- stjórnarformann og oddvita Íhaldsflokksins. Sakaði hann Cam- pion um værukærð þegar kæmi að heimtum úr þrotabúunum. Þessu hafnaði Campion og sagðist taka á málinu persónulega ábyrgð. Í yfirferð hans kom fram að Wyre Forest hefði fyrir hrun lagt níu milljónir punda (1,7 milljarða króna) inn í íslenska banka. Þrjár milljónir voru lagðar inn í Lands- bankann, fimm í Kaupthing Singer & Friedlander og ein í Heritable- bankann (sem Landsbankinn átti). Þegar hefðu verið endurheimtar 6,45 milljónir punda (tæplega 1,3 milljarðar króna), eða rétt undir 72 prósentum. Vonir stæðu til að megnið af innstæðum sveitar- félagsins fengjust endurgreiddar. - óká SEÐLAR Sum sveitarfélög í Bretlandi eru illa brennd af viðskiptum við íslenska banka. NORDICPHOTOS/AFP Wyre Forest í Bretlandi hefur endurheimt 72 prósent innstæðna sinna: Oddviti sakaður um værukærð ÍTALÍA Líkamsleifar hafa fundist um borð í ítalska skemmtiferða- skipinu Costa Concordia, sem strandaði við strendur Toskana- héraðs í Ítalíu í byrjun síðasta árs. Kafarar fundu tvö lík í gær og nú verður kannað hvort þarna séu komin lík þeirra tveggja far- þega sem saknað hafði verið frá því skipið strandaði. Alls fórust 32 með skipinu, sem brátt verður dregið burt og rifið í brotajárn. Skipstjóri skipsins er nú fyrir dómi, sakaður um van- rækslu á skyldum sínum. - gb Leit í Costa Concordia: Kafarar fundu tvö lík í viðbót

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.