Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 20
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Svo lengi sem við komumst út fyrir
frosti og snjó er ekki of seint að
undirbúa garðinn fyrir veturinn,“ segir
Þuríður Backman, fyrrverandi alþingis-
maður og formaður Garðyrkjufélags
Íslands. Þuríður er einlæg áhugamann-
eskja um garðrækt og því fengum við
hana til að gefa ráð um haustverkin í
garðinum.
„Á haustin er um að gera að koma
sér upp safnkassa til moltugerðar, safna
gróðurafgöngum, visnuðum plöntum,
laufi og slíku en undirstaðan í garðrækt
er góð gróðurmold. Ef enginn safnkassi
er til staðar er hægt að safna gróðuraf-
göngum í haug eða grafa í smá holum í
beðum. Það ætti að vera þumalfingurs-
regla að nýta allt sem til fellur í garð-
inum aftur í garðinn, horfa á gróðurinn
og moldina sem hringrás,“ segir Þuríður.
„Haustið er einnig tíminn til að setja nið-
ur lauka og trjáplöntur í pottum, meðan
frostlaust er, og ráð að nýta sér haustút-
sölurnar. Háar trjáplöntur sem plantað
er á haustin þurfa stuðning og sumum
plöntum þarf að skýla yfir veturinn, til
dæmis með striga eða laufi úr garðinum.
Vandasamara er að flytja eldri runna og
tré til í garðinum, haustið getur verið
góður tími til gróðursetn ingar hnaus-
plantna, en það er rétt að leita ráða við
gróðursetningu stærri trjáa og runna
svo meiri líkur séu á að plantan vaxi
við bestu skilyrði. Ræktun og umhirða
gróðurs er ólík eftir tegundum, þó eru
ákveðin grunngildi sem lærast fljótt og
því um að gera að fallast ekki hendur,
hefja ræktun og fegrun umhverfisins,
hvort heldur í eigin garði eða þar sem
tækifæri bjóðast. Það er gott að læra af
reynslunni en það er hægt að komast
hjá mörgum áföllum í garðræktinni með
því að leita sér þekkingar t.d. hjá fag-
mönnum eða reynsluboltum.
Ætti að slá blettinn og klippa runna
fyrir veturinn? „Ekki ætti að fara í form-
klippingu eða mikla grisjun á haustin en
flesta runna má snyrta til allt árið. Síðla
vetrar má svo klippa runna sem á að
þétta alveg niður, grisja tré og runna og
saga stærri greinar af trjám. Ef blettur-
inn fer kafloðinn inn í veturinn kemur
sina í garðinn að vori. Það þarf þó að
horfa til langtímaveðurspár áður en
bletturinn er sleginn í síðasta sinn fyrir
veturinn. Ef veturinn virðist ekki ætla
að skella á þeim mun fyrr með frost-
hörkum og snjó ætti að slá grasið en þó
ekki alveg niður í svörð. Þá finnst mér
alltaf mjög gott að vinna mér í haginn
fyrir næsta vor með því að hreinsa allan
arfa og illgresi úr beðum á haustin, svo
garðurinn fari tiltölulega hreinn undir
veturinn. Mér finnst gott að strá trjá-
kurli yfir beðin, það sparar bæði tíma
og mikla vinnu að vori. Það er nefnilega
mikilvægt að hafa meiri ánægju af garð-
inum en erfiði.“
■ heida@365.is
EKKI OF SEINT AÐ SLÁ
HELGIN Þuríður Backman þingmaður er einlæg áhugamanneskja um garð-
rækt og er formaður Garðyrkjufélags Íslands. Hún gefur hér góð ráð um haust-
verkin í garðinum.
Þuríður kurlar greinar og stráir yfir beðin að hausti.
„Það ætti að vera
þumalfingurs-
regla að nýta allt
sem til fellur í
garðinum aftur í
garðinn.“ Þuríður
dreifir laufum í
beðin á haustin
þar sem þau
verða að mold.
Trjáplöntum í pottum
er hægt að planta á
haustin.
Sögusagnir herma að ofurfyrir-
sætunni Naomi Campell hafi
verið boðinn eigin spjallþáttur
hjá stórri bandarískri sjón-
varpsstöð.
Campbell er ekki óvön
því að koma fram í sjón-
varpi en hún hefur dvalið
langtímum í stúdíóum
undanfarið. Upptökur hafa
staðið yfir á fyrir-
sætuþætti hennar
The Face, raunveru-
leikaþætti sem
snýst um keppni
milli þriggja fyrir-
sæta, þeirra Naomi,
Anne Vyalitsyna
og Lydia Hearst-
Shaw. Hver þeirra
keppist við að
finna næsta andlit
ULTA beauty sem
er stórt fyrirtæki í
snyrtivörubrans-
anum í Banda-
ríkjunum. Kynnir
þáttanna er Nigel
Barker, sem var áður dómari í
raunveruleikaþáttunum Amer-
ica‘s Next Top Model.
Þá hefur Naomi einnig
verið áberandi á sjónvarps-
skjánum undanfarið þar
sem hún hefur veitt við-
töl um kynþáttamisrétti
í fyrirsætu bransanum.
Nýr þáttur í hennar
eigin nafni myndi þó
marka tímamót á
ferli hennar.
Ekki er nýtt af
nálinni að frægar
fyrirsætur gerist
spjallþáttastjórn-
endur. Tyra Banks
spjallaði við fólk
í The Tyra Banks
Show frá 2005
til 2010. Hún tók
meðal annars frægt
viðtal við Naomi
þar sem þessar
tvær ofurfyrirsætur
sættust eftir margra
ára illdeilur.
NAOMI MEÐ
SPJALLÞÁTT
Fyrirsætan gæti orðið næsta spjallþáttadrottning.
- Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín