Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og húðf lúr. Heilsusamlegt fæði. Eva Signý Berger. Fataskápurinn. Trendnet.is partý og prinsessan. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
2 • LÍFIÐ 27. SEPTEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Vilhelm Gunnarsson
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
JANA MAREN ÓSKARSDÓTTIR
verslunarstjóri í Gyllta kettinum
„Þetta er trana. Ég fór
á Reykjavík Ink núna í
febrúar og talaði þar við
Thomas Asher. Ég var með
hugmynd að stórum fugli
með fallega vængi og þetta
er það sem kom út úr því.
Mig langaði bara í fallegt
flúr frá flottum listamanni
og ég leyfði honum að
ráða svolítið. Dúfuna fékk
ég mér á Spáni en hún er til minningar um ömmu
mína sem hét Dúa og bjó á Spáni í mörg ár.“
HÚÐFLÚR FAGRIR
FUGLAR OG LITADÝRÐ
Líkamsskreytingar verða vinsælli með árunum og margir virðast aðhyllast fuglafegurð
sem húðfl úr. Lífi ð hafði upp á nokkrum sem eru með áhugaverða fugla á líkamanum.
MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR
módelbókari Elite á Íslandi
og stílisti
„Ég hafði geng-
ið með þessa
hugmynd í koll-
inum í rúm
fjögur ár. Ég
fékk mér það
þremur dögum
eftir fyrsta
húðflúrið þrátt
fyrir yfir liðið
og endorfínsjokkið. Ég gekk inn
á stofu í Las Vegas þar sem Joe
Williams teiknaði það upp eftir
lýsingum mínum og kom ég svo
næsta dag til hans og sat 12 tíma
„straight“ í stólnum hjá honum.
Ég skildi eftir naglaför í stólnum.
Fólk gapir þegar ég segi þeim
söguna, enda óvenjulegt að fólk
sitji það lengi við húðflúrun langt
fram á nótt, hvað þá á stofu í Las
Vegas þar sem húðflúr ararnir
geymdu byssur í beltum sínum
og tannlausar krakkhórur ráfuðu
um eftir kúnnum hinum megin
við götuna.“
HLYNUR BJÖRNSSON
barþjónn á Austur
„Ég er nýbúinn að fá mér
fuglinn sem heitir bluebird
og þetta er fyrsti partur
af „half sleeve“ sem hann
Búri hjá Íslensku húðflúr-
stofunni er að gera fyrir
mig. Húðflúrið er ég að
fá mér til að heiðra tilvist
dóttur minnar.“
JÓN GUNNAR GEIRDAL landstjóri Yslands
„Þetta „sleeve“ byrjaði að fæðast
fyrir þremur árum í Brooklyn í New
York með stjörnumerkjum barna
minna og mínu og svo þegar heim
var komið tók meistari Jón Páll við
með fönixinn minn fallega sem rís
upp úr öskunni, endur fæddur. Ég hef
verið heillaður af goðsögninni um
fönixinn lengi og hvað hann stendur
fyrir og þess vegna fékk ég mér
þetta mikla flúr.“
ELÍSABET, ELÍN OG SIGRÍÐUR EYÞÓRS-
DÆTUR söngkonur í hljómsveitinni Sísý Ey
„Við fengum okkur þessi húðflúr í Banda ríkjunum.
Við höfum það sem reglu að fá okkur alltaf húð-
flúr þegar við förum saman til Bandaríkjanna og
mamma þar á meðal. Við systurnar ákváðum að fá
okkur eins húðflúr í síðustu ferð sem tákn um það
hversu mikið við elskum hver aðra.“
Það lá vel á kvikmyndagerðarmanninum
Hrafni Gunnlaugssyni á Hressó ásamt
barnsmóður sinni, barni þeirra og öðrum
fjölskyldumeðlimum í vikunni. Hrafn sást taka
létta sveiflu við undirleik hljóms veitarinnar
Dixon. Brynja Þorgeirsdóttir, ritstjóri
menningarþáttarins Djöflaeyjan á RÚV, mætti
á fjölmiðlasýningu íslensku kvikmyndarinnar
Málmhaus í vikunni en myndin er í leikstjórn
Ragnars Bragasonar. Vera Sölva dóttir
kvikmyndagerðarmaður var einnig í góðu
gamni á sýningunni.