Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 26
FRÉTTABLAÐIÐ Eva Signý Berger. Fataskápurinn. Trendnet.is partý og prinsessan. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
6 • LÍFIÐ 27. SEPTEMBER 2013
Uppáhalds
E
va Berger er mennt aður
leikmynda- og búninga-
hönnuður frá hinum virta
skóla Central Saint Martins
College of Art and Design
í London. Hún útskrifaðist þaðan
árið 2007 og hefur starfað við hin
ýmsu verkefni hér heima, nú síð-
ast við Harmsögu sem frumsýnd
var í Kassanum á laugardaginn
fyrir viku, og hefur hlotið mikið
lof fyrir hönnun sína. Hún kemur
einnig að uppsetningu brúðusýn-
ingarinnar Aladdín, sem verður
frumsýnd á Brúðulofti Þjóðleik-
hússins 5. október, og leikverkinu
Svanir skilja ekki eftir Auði Övu
Ólafsdóttur, sem sett verður upp í
Kassanum eftir áramót.
Hvaðan kom leikhúsáhuginn?
„Ég hef alltaf haft gaman af leik-
húsi og mamma byrjaði snemma
að fara með mig á „fullorðinssýn-
ingar“. Ég held ég hafi verið fimm
ára þegar ég sá Pilt og stúlku hjá
Leikfélagi Akureyrar. Amma og
afi eru einnig miklir listunn endur
og fóru oft með mig á sýningar og
söfn. Ég man vel eftir flestum leik-
sýningum sem ég sá þegar ég var
barn. Sem unglingur var ég svo
í leikfélagi, Leik klúbbnum Sögu,
sem var rekinn eingöngu af ung-
lingum. Þegar ég byrjaði vorum
við á aldrinum þrettán til fimm-
tán ára og tókum þetta mjög alvar-
lega. Við fengum styrk frá Akur-
eyrarbæ og notuðum féð til að
ráða til okkar leikstjóra og settum
upp sýningar og tókum þátt í sam-
starfsverkefnum með unglinga-
leikhópum á Norðurlöndunum.
Ég lék svo í nokkrum sýning-
um með Leikfélagi Akureyrar
og Freyvangsleikhúsinu og ætl-
aði alltaf að verða leikkona. Eftir
því sem ég eltist naut ég þess
reyndar minna að leika og fannst
skemmtilegra að koma að uppsetn-
ingum á annan hátt en það hvarfl-
aði einhvern veginn ekki að mér
að ég gæti starfað á öðrum vett-
vangi innan leikhússins fyrr en
ég var orðin tvítug. Mig vantaði
hins vegar listnámsgrunn til að
geta sótt um í háskóla úti og fór
þá á almenna listnámsbraut í Iðn-
skólanum í Reykjavík. Það var
virkilega gott fornám og ég bý enn
að því sem ég lærði þar.“
Þú hlaust menntun þína við
hinn virta Central Saint Martins
College of Art and Design. Hvernig
líkaði þér námið? „Ég kunni mjög
vel við mig í London. Þetta er ofsa-
lega stór skóli en í raun fann ég
ekki svo mikið fyrir því þar sem
skólinn var þá á mörgum stöðum í
borginni. Mín deild hafði aðstöðu í
gamalli prentsmiðju í Farringdon.
Við vorum um fimmtíu nemendur
frá þrjátíu löndum á mínu ári og
ég held ég hafi lært engu minna
af samnemendum mínum en kenn-
urum,“ útskýrir Eva.
„Það var mjög gott fyrirkomu-
lag á námsmatinu; maður vann
og kynnti svo verkefnið sitt fyrir
bekknum. Síðan var maður par-
aður við annan nemanda og saman
þurftum við að meta verk tveggja
annarra út frá ákveðnu kerfi. Þetta
þurfti maður líka að gera fyrir
sitt eigið verkefni. Þetta gat verið
erfitt því stundum þurfti maður
að segja vinum sínum að manni
þætti vinnan þeirra ekki nógu góð,
og enn erfiðara þegar maður gaf
sjálfum sér háa einkunn og þurfti
svo að sjá hvort samnemendur og
kennarar væru sammála því mati.
En þetta var góð þjálfun, maður
lærði bæði að gagnrýna vinnu sína
og hrósa sjálfum sér og rökstyðja
skoðanir sínar.“
Er allt í öllu
Harmsaga, nýtt leikverk eftir
Mikael Torfason, var frumflutt í
Kassanum fyrir viku. Verkið hefur
hlotið góða dóma og leik myndin
spilar að sjálfsögðu þar inn í.
Jón Viðar Jónsson, gagnrýnandi
Fréttablaðsins, segir leikmyndina
meðal annars „vega glæsilega salt
milli natúralismans og þeirrar
leikrænu framandgervingar sem
verkið er byggt á“. Þótti þér þetta
skemmtilegt verkefni að takast á
við? „Þetta var alveg frábært og
æðislegur hópur að vinna með. Svo
var líka alveg ný reynsla fyrir
EVA BERGER
SNÚIÐ AÐ FINNA
ÚTVÍÐAR BUXUR Á KARLA
Eva Berger, leikmynda- og búningahönnuður, nam við Central Saint Martins í London.
Eva Berger starfar sem leikmynda- og búningahönnuður. Hún skapaði meðal annars sviðsmyndina fyrir Harmsögu sem hlotið hefur góða dóma. Hún segir starfið fjölbreytt og skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NAFN Eva Signý Berger
ALDUR 31 ára
HJÚSKAPARSTAÐA Er í sambúð
STARF Leikmynda- og búningahönnuður
Ég hef til dæmis
eytt heilu dög unum
á Barnalandi í leit
að hlutum sem
manni finnst að
ættu að vera alveg
borðleggjandi.
MATUR Svart pasta með hvítlauk, ansjósum, chilli og steinselju
a‘la Dean.
DRYKKUR Góður bjór, til dæmis Kaldi, Leffe og Hoegaarden.
VEITINGAHÚS Fór á Nora Magasin um daginn og fannst það
mjög gott.
VEFSÍÐA Modern Wifestyle er skemmtileg.
VERSLUN Ég fíla að það megi smakka ávexti í Víði.
HÖNNUÐUR Go With Jan.
HREYFING Jóga.
DEKUR Almennilegt nudd (þar sem nuddarinn reynir ekki að
spjalla við mig).
bókakaffi
Vesturgata 2a 101 Rvk.