Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 33
KYNNING − AUGLÝSING Barnaafmæli27. SEPTEMBER 2013 FÖSTUDAGUR 5
Við bjóðum fjórar tegundir af barnaafmælum; Frum-skógarpartí, Leikjapartí, Lasertagpartí og Mega leikjapartí,“ segir Svala Ástríðardóttir, sölu- og mark-
aðsfulltrúi Skemmtigarðsins í Smáralind, sem er afar vin-
sæll staður fyrir krakkaafmæli. Pitsur og gos eða safi fylgja
öllum afmælum í Skemmtigarðinum og öll afmælisbörn fá
sérmerkt afmælissvæði þar sem borðin eru dekkuð með lit-
ríkum dúkum, diskum, glösum og servíettum frá Skemmti-
garðinum. „Fólki er að sjálfsögðu frjálst að koma með eigin
borðbúnað ef afmælisbarnið er með séróskir,“ segir Svala
og bendir á að öll afmælisbörn fái klukkustundarkort í
Skemmtigarðinum í afmælisgjöf frá garðinum.
Frumskógarpartíin henta mjög vel börnum upp að sjö
til átta ára aldri að sögn Svölu. „Þá byrja þau á að borða og
fara síðan í einni halarófu í klessubílana og allir afmælis-
gestir fá að stýra. Svo fara þau í Klifurhúsið okkar sem er
skemmtilegt völundarhús með rennibrautum, boltalandi,
loftbyssum og þrautabrautum. Í þessu afmæli eru allir
gestir í samlitum vestum sem hefur mælst afar vel fyrir hjá
foreldrum,“ lýsir Svala.
Leikjapartíin eru gríðarlega vinsæl enda henta þau
börnum frá sex ára og upp úr. „Þá fá allir afmælis gestir
eigið kort með einnar klukkustundar inneign. Þau kom-
ast þá tvisvar sinnum í stór tæki (Sleggjuna, 7D, klessubíl-
ana, fallturninn og í keilu) og geta svo leikið sér ótakmark-
að í öllum vídeó- og tívolítækjunum,“ útskýrir Svala en eftir
leikinn er afmælisveislan með pitsum og gosi eða safa.
Lasertagpartíin eru fyrir krakka sem orðnir eru tíu ára
og eldri. „Þar er svaka hasar og mikið fjör. Gestir fara þá í
tvo fimmtán mínútna leiki og koma svo í rjúkandi pitsur og
gos eða safa,“ segir Svala.
Mega leikjapartíin eru svo tilvalin fyrir þá sem vilja
gera meira. „Þá fá allir klukkustundarkort í garðinn og fara
líka í tvo lasertagleiki. Allir gestir fá pitsur og gos eða safa
og krapdjús.“
„Öllum er frjálst að mæta með eigin afmælisköku í sína
veislu en við bjóðum einnig upp á gómsæta súkkulaði-
köku með nammiskrauti og kertum fyrir afmælisbarnið.
Við bjóðum einnig aukalega upp á popp og krapdjús.“ Svala
segir marga bæta við kandíflosi enda er það afar vinsælt hjá
krökkum.
Foreldrar hafa verið afar ánægðir með fyrirkomu lagið
í Skemmtigarðinum í Smáralind. Meðan börnin leika sér
geta foreldrar afmælisbarnsins slappað af og þegið kaffi á
efri hæð garðsins. Þeim til þæginda býður Skemmtigarður-
inn upp á samlit vesti til að auðveldara sé að þekkja börnin
úr hópnum.
Frábær afmælisskemmtun
Í Skemmtigarðinum Smáralind er boðið upp á frábæra afmælisskemmtun fyrir káta krakka á öllum aldri.
SKÓLATILBOÐ
Skemmtigarðurinn í Smáralind tekur einnig á móti mörgum hópum
úr skólum, félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum og öðrum ungliðahreyf-
ingum. Ýmis sértilboð eru í gangi fyrir skólahópa. Stundum koma for-
eldrar með og leika sér með krökkunum. Sama á hvaða aldri fólk er, það
geta allir skemmt sér í Skemmtigarðinum.
Nánari upplýsingar um tilboð og annað er að finna á www.skemmti-
gardurinnsmaralind.is. Einnig má hafa samband í netfangið skemmti-
gardur@skemmtigardur.is. Fréttir og fróðleik um Skemmtigarðinn í
Smáralind má einnig nálgast á Facebook.
Afmælin kosta frá 1.390
krónum fyrir hvert barn.