Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 43
NATHAN OG OLSEN KYNNIR
Zendium-tannkrem hefur verið á
íslenskum markaði í áraraðir. Zendi-
um er milt tannkrem sem hjálpar til
við náttúrulega hreinsun munnhols og
tanna.
Náttúrulegar varnir gegn tann-
skemmdum og sýkingum í munnholi
velta á réttum eiginleikum og sam-
setningu munnvatnsins. Í munnvatni
eru náttúruleg hreinsiefni en freyð-
andi og bragðsterkt tannkrem getur
dregið úr virkni þeirra.
Freyðiefnið SLS (sodium laureth sul-
fate) er ekki notað í Zendium en það er
algengt í öðru tannkremi og er einnig
mikið notað í sápur. SLS er ekki gott
fyrir munnholið, það er sterkt og getur
haft ertandi áhrif. Í Zendium er notað
freyðiefnið Steareth-30 sem freyðir
lítið en virkar vel.
Styrkir heilbrigða munnvatnsflóru
Í Zendium-tannkremi eru ensím,
prótein og sink sem hjálpa til við að
styrkja heilbrigða munnvatnsflóru.
Ensímtannkrem vinna gegn bakteríum
í munnholi en rannsóknir hafa sýnt að
þeir sem eiga það til að fá munnangur
fá lækningu við notkun ensímtann-
krema.
Zendium vinnur ágætlega með
munnskoli sem sótthreinsar og hjálpar
slímhúð í munni að gróa.
Breitt vöruval
Í vöruali Zendium eru tannkrem með
mismunandi flúorinnihaldi. Flúor-
innihald í Zendium-tannkremum
er á bilinu 1.000 ppm (milljónustu
hlutar) til 1.450 ppm, en 1.450 ppm er
hámarksmagn flúors sem mælt er með
að tannkrem innihaldi.
Zendium Classic er merkt norræna
umhverfismerkinu Svaninum en það
er gæðastimpill sem vottar eftir-
sóknar verða vörueiginleika og sýnir
að Zendium er:
MILD TANNKREM SEM STYRKJA
HEILBRIGÐA MUNNVATNSFLÓRU
Zendium-tannkremin eru mild og án sápuefna. Þau innihalda ensím, prótein og sink sem hjálpa til við að styrkja heilbrigða munnvatnsflóru.
Brynja Georgs-
dóttir er vöru-
merkjastjóri
Nathan og
Olsen sem
flytur inn
Zendium-tann-
kremin. Hún
segir það ekki
koma á óvart
að fagmenn í
umhirðu tanna
og munnhols,
tannlæknar,
tannfræð-
ingar og sam-
tök þeirra mæli
með Zendium-
tannkremi.
Mótaður eftir
áhöldum tannlækna
Ultra Reach tannburstinn er nýj-
ung frá Zendium. Burstinn er mót-
aður eftir áhöldum tannlækna. Hann
er með langan og mjóan háls sem gerir
það að verkum að auðvelt er að ná vel til
öftustu jaxlanna. Tannburstinn er gerður
úr málmi sem gerir hann þyngri og auð-
veldari í notkun. Hann er með þéttan
burstahaus svo hárin komist auð-
veldlega á milli tannanna.
Zendium-tannburstar fást bæði
fyrir börn og fullorðna. Barnatann-
burstinn Pósturinn Páll er ætlaður
börnum á aldrinum 0-5 ára. Burst-
inn er með lítið burstahöfuð með
mjúkum burstahárum sem fara
blíðlega um barnatennurnar. Tann-
burstinn er með sogskálum, þann-
ig stendur hann auðveldlega og er
einnig hannaður þannig að ef hann
dettur í gólfið þá lendir hann alltaf
með bursta hausinn upp.
Munnskol og
tannþráður/tannstönglar
Zendium-munnskol inniheldur sink
sem kemur jafnvægi á efnasambönd
sem valda andremmu. Það inni heldur
ensím sem virkja náttúrulegar varnir í
munnvatni og xylitol sem dregur úr sýru-
myndun.
Tannburstar ná ekki alltaf að hreinsa á milli
tannanna og því er mikilvægt að nota tann-
þráð reglulega. Zendium-tannþráðurinn er
flatur og gerður úr næloni með vaxhimnu
þannig að hann fari auðveldlega á milli tann-
anna. Þar sem tannþráðurinn er gerður úr næl-
oni slitnar hann hvorki né trosnar við notkun.
Úrval Zendium-tannkrema er ríkulegt. Sum eru hugsuð fyrir börn, önnur fullorðna og enn önnur fyrir þá sem glíma við vandamál á borð við tannkul, glerungseyðingu og munnangur. MYND/PJETUR
Sápuefni eins og SLS í tannkremi
geta haft ertandi áhrif á viðkvæma
slímhúð í munnholi. Fagmenn
mæla því iðulega með sápulausu
tannkremi í slíkum tilfellum.
Fjórir af hverjum fimm
tannlæknum í Danmörku
mæla með Zendium. Félag
íslenskra tannfræðinga
mælir einnig með því.
● gott fyrir heilsuna
● gæðavara
● jafngott eða betra en annað tann-
krem
● með vistvænni kostum á tannkrems-
markaðnum
Zendium Enamel Protect er tann-
krem sem virkar vel gegn glerungseyð-
ingu, sem getur átt sér stað við ofneyslu
gosdrykkja. Flúorinnihaldið er 1.450
ppm en það inniheldur auk þess prótein
sem vernda glerung og draga úr hættu
á að sýklum fjölgi um of.
Zendium Sensitive hefur milt myntu-
bragð, inniheldur kalíumnítrat og
xylitol. Það er gott gegn tannkuli og
blettum á tönnum. Flúorinnihaldið er
1.450 ppm.
Zendium Fresh White og Zendium
Cool Mint innihalda sink sem virkar
vel gegn andremmu. Auk þess inni-
halda tannkremin xylitol, sem er
bakteríudrepandi efni.
Úrval barnatannkrema
Fyrsta tönn (Pósturinn Páll) er ætlað
börnum frá 0-6 ára. Flúorinnihaldið er
1.000 ppm. Tannkremið er milt og fer
vel með tannholdið.
Junior (Scooby Doo) er ætlað börnum
á aldrinum 6-12 ára. Það hentar vel
fyrir barna- og fullorðinstennur og
inniheldur xylitol. Flúormagnið er
1.000 ppm.
Zendium Enamel Protect 7+ er ætlað
börnum frá 7 ára aldri. Það inni heldur
meira flúormagn en önnur Zendium-
barnatannkrem eða 1.450 ppm. Það
verndar glerung sérstaklega vel þar
sem það inniheldur prótein sem kemur
jafnvægi á sýrustig munnsins.
Barnatannkremin eru blönduð og
samansett samkvæmt ráðleggingum
frá evrópskum tannlæknum og tann-
læknastofum.
Zendium-tannkrem fást í öllum
helstu apótekum og matvöruverslunum
landsins.