Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 56
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
BAKÞANKAR
Stígs
Helgasonar
Brasilíski gítarleikarinn Thiago
Trinsi, sem starfar hér á landi
sem tónlistarkennari, lenti í þriðja
sæti í alþjóðlegri franskri gítar-
keppni sem fór fram á netinu.
Alls tóku 978 gítarleikarar
þátt í undankeppninni. Trinsi
sendi inn lagið Terra og spil-
aði Mike Lepond úr bandarísku
sveitinni Symphony X á bassa.
Trinsi hefur áður náð langt í gítar-
keppnum, auk þess sem hann átti
lag á plötunni Guitar Wizards. Á
meðal annarra sem áttu þar lag
voru Gilby Clarke, sem spilaði
með Guns N‘Roses, og Bernie
Marsden, sem spilaði með White-
snake.
Trinsi hefur verið boðið að taka
upp lag með lagahöfundinum og
upptökustjóranum Rick Hale,
sem var eitt sinn tilnefndur til
Grammy-verðlaunanna. Garry
King, sem hefur trommað með
Jeff Beck og Paul McCartney,
spilar einnig í laginu. - fb
Gítarhetja í 3. sæti
Thiago Trinsi varð þriðji í alþjóðlegri gítarkeppni.
Í ÞRIÐJA SÆTI Thigao Trinsi varð í
þriðja sæti í keppninni.
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
JOBLO.COM
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
A.O.S NEW YORK TIMES
BOSTON GLOBE
EMPIRE
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
RUNNER RUNNER KL. 6 - 8 - 10
DIANA KL. 8 / MALAVITA KL. 10
ÉAULINN G 2 3D KL. 6
ABOUT TIME FORSÝNING KL. 8
RUNNER RUNNER KL. 5.45 - 8 - 10.15
RUNNER RUNNER LÚXUS KL 3 30 5 45 8 1015. . - . - - .
RIDDICK KL. 8 -10.35
HROSS Í OSS KL 4 6. -
AULINN ÉG 2 2D KL. 3.30 - 5.45
AULINN ÉG 2 3D KL 3 30 . .
MALAVITA KL. 8
BLUE JASMIN KL 5.45
THIS IS US 3D KL 3.30
ELYSIUM KL. 10.25
2 GUNS KL. 10.35
FORSÝND KL. 8 - SMÁRABÍÓ
T.V. - BÍÓVEF.
“EIN BESTA
MYND ÁRSINS!”
- RINN/S&HT.V., BÍÓVEFU
„S ERK MYND SEM SPYR T
ÁL SPURNINGA“EITINNA
-S.B.H., MBL
RIFF Í HÁSKÓLABÍÓ
UPPLÝSINGAR UM
SÝNINGARTÍMA Á RIFF.IS
„HROSS Í OSS ER AFAR FRUMLEG
OG ÁHUGAVERÐ MYND“
-H.S., MBL
„MENNINGARLEGT AFREK!“
-S.G., MBL
RUNNER RUNNER 6, 8, 10
DIANA 8, 10.30
AULINN ÉG 2 - ÍSL 3.50, 6 2D
AULINN ÉG 2 - ÍSL 3.50 3D
DESPICABLE ME 2 - ENS 3.50, 6, 8
MALAVITA 10.10
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
ÍSL OG ENS TAL
T.V. - Bíóvefurinn
5%
TÍMI STAÐUR MYND
12.00 Tjarnarbíó Masterklassi með
Lukas Moodysson – Frítt inn
13.00 Tjarnarbíó Óréttlátur heimur
14.00 Norræna húsið Framtíðin ástin mín
15.00 Tjarnarbíó Loforð Pandóru
16.00 Norræna húsið Vélin sem lætur allt hverfa
17.00 Tjarnarbíó Æska til spillis
18.00 Norræna húsið Elena
Volcano House EBM GMG
19.15 Tjarnarbíó SRF FLB: Sjóræningjaflóinn fjarri
lyklaborðinu Q&A
20.00 Norræna húsið Virðast ókunnugir
Volcano House Nakin ópera
21.00 Tjarnarbíó Grínbíó
22.00 Norræna húsið Mitt Afganistan – Lífið innan
bannsvæðisins
Háskólabíó 4 J.A.C.E
Háskólabíó 1 Stund gaupunnar Q&A
Háskólabíó 2 Innflytjandinn
Háskólabíó 3 Hjálpræðisherinn Q&A
24.00 Háskólabíó 1 Við erum það sem við erum
Háskólabíó 3 Ferðalangur
24.15 Háskólabíó 2 Aðeins elskendur eftirlifandi
GRÍNBÍÓ! Nýtt líf fær nýtt líf!
21.00 – Tjarnarbíó
Nýtt líf eftir Þráin Bertelsson er ein af
grínperlum Íslands. Grínbíó er einstök
kvöldstund þar sem kvikmyndin verður talsett
að nýju á staðnum, fyrir augum áhorfenda, af
leikurum sem gjörþekkja söguþráðinn, þeim
Ragnari Ísleifi Bragasyni, Sögu Garðarsdóttur
og Dóra DNA. Á sýningunni er markmiðið ekki
að halda sig við söguþráðinn heldur spinna
annan og þéttan grínvef í kringum atriðin, en
auðvitað með tilhlýðilegri virðingu fyrir
upprunalega verkinu.
DAGSKRÁ
FÖSTUDAGUR
27. SEPTEMBER
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Orðaskak
Hvað gerir orð falleg? Er það hvernig þau hljóma? Hvað þau merkja? Hvernig
þau líta út á prenti? Blanda af þessu öllu?
Og þegar velja skal fallegasta orðið í
íslensku, þarf það þá að vera rosalega
íslenskt? Hversu íslenskt? Hversu langa
sögu þarf það að eiga sér í íslensku máli?
Mundu málræktarsinnar gleðjast yfir því
að íslenska orðið fokk næði ofarlega á blað
í slíkri keppni? Hvort er betra að orðið sé
samsett eða ekki? Hversu mörg atkvæði
ætti það að vera? Eitt? Tíu?
NOKKRUM sinnum hefur verið efnt til
samkeppna, formlegra sem óformlegra,
um fegurstu orðin í íslensku. Tvö orð
skara yfirleitt fram úr: Ljós móðir
og kærleikur. Sjálfum hefur
mér alltaf þótt orðið blæbrigði
fallegt. Eilífð og dalalæða hafa
einnig verið nefnd. Öll eru þessi
orð ósköp falleg – jafnvel væmin.
En er af þessum skorna skammti
hægt að smíða einhverja forskrift
að fallegu, íslensku orði? Svarið
er já; það þarf að hafa jákvæða
og/eða abstrakt merkingu, vera
í meðal lagi langt (tvö til fjögur
atkvæði er ídealt), innihalda tví-
hljóð (ó, æ, au, ei) og raddað L. Þetta síðast-
nefnda er mjög mikilvægt.
EN um þetta má rífast, eins og annað.
Tveir innflytjendur sem lært höfðu
íslensku voru spurðir þessarar spurningar
í fyrra. Annar þeirra nefndi mjög óhlut-
bundið orð, sem fellur samt sæmilega að
forskriftinni: Sömuleiðis. Hinn var á öðrum
slóðum (en með raddaða L-ið á sínum stað):
Pípulagningamaður var hans val.
Í tilefni þess að enn á ný á að ráðast í könn-
un af þessu tagi lagðist ég yfir orðabók.
Nú skyldi ég finna hið eina sanna falleg-
asta orð. Ég hripaði hjá mér öll orð sem
mér fundust falleg á hefðbundinn hátt,
nú eða óhefðbundinn og skemmtilegan:
Aðalbláber, aðbristi, aðdróttun, aðfram-
kominn, aðgerðarhnappur, afl, aflát,
afmæli, afskræma, aftan, afundinn, agða,
agndofa … ég gafst upp áður en ég komst að
alaskaufsa.
ÉG held ég leggi bókina kannski bara á
borðið og sendi inn borðleggjandi orð sem
ég sá nefnt í umræðu um málið á vefnum í
gær, orð sem uppfyllir öll skilyrðin að fram-
an og er tungubrjótur að auki: Línuívilnun.