Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 8
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 FJARSKIPTI Tölvuþrjóturinn sem braust inn á vefsíðu Vodafone aðfaranótt laugardags og stal persónuupplýsingum um not- endur vefjar- ins hafði áður kannað mögu- leika á að brjót- ast inn hjá öðru íslensku fjar- skiptafyrirtæki og hjá íslensku hýsingarfyrir- tæki. „Hann var að öllum líkindum bara að fiska,“ segir Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tækni- deildar Póst- og fjarskiptastofn- unar. Spurður hvort tölvuþrjóturinn hafi ekki haft erindi sem erfiði í tilraunum til að brjótast inn ann- ars staðar en hjá Vodafone segir Þorleifur í það minnsta ljóst að hann hafi fyrst náð árangri í að brjótast inn á vef Vodafone. „Þetta er fyrsta alvarlega net- árásin sem er gerð hér á landi,“ segir Þorleifur. Hann er for- stöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar en net- öryggissveitin, stundum kölluð CERT-ÍS, heyrir þar undir. Hann segir sveitina hafa orðið vitni að innbrotum á aðrar vefsíður, en það sem sé alvarlegt í þessu máli sé hversu miklum gögnum þjóf- urinn hafi náð, og viðkvæmum persónu greinanlegum upplýsing- um sem þar hafi verið að finna. Upplýsingar sem liggja að baki vefsíðum eiga að vera dulkóðaðar, en voru ekki í öllum tilvikum hjá Vodafone. Þorleifur segir að slík dulkóðun veiti mikið öryggi. „Það er hægt að ganga þannig frá hlutum með dulkóðun að þeir séu vel varðir, en það er ekki hægt að vera 100 prósent örugg- ur, hvort sem það er á netinu eða í umferðinni,“ segir Þorleifur. „Það er hægt að gera ráðstafanir, en það er aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir slys, ekki frekar en í umferðinni.“ Bregðast við árásum Þorleifur segir íslensk fyrirtæki og stofnanir orðin meðvitaðri um hættuna af netárásum. „Það hefur orðið mikil breyting á síð- ustu árum, og menn eru að átta sig á hættunni. Það hefur orðið vitundarvakning á síðustu árum.“ Netöryggissveitin var kölluð til og aðstoðaði Vodafone eftir inn- brotið. „Við hjálpuðum þeim að nýta þær upplýsingar sem lágu fyrir og komu í ljós og deildum þeim með öðrum fyrirtækjum svo þau gætu brugðist við með réttum hætti,“ segir Þorleifur. Netöryggissveit Póst- og fjar- skiptastofnunar hefur það hlut- verk að bregðast við netárásum á mikilvæga innviði landsins, og koma að fyrirbyggjandi vörn- um. Sveitin hefur hingað til ein- beitt sér að því að koma á sam- starfi við fjarskiptafyrirtækin, en unnið er að því að kynna þjón- ustu netöryggissveitarinnar fyrir fleiri mikilvægum fyrirtækjum og stofnunum og bjóða þeim upp á samstarf. „Við erum að byrja að bjóða öðrum fyrirtækjum, sem eru hluti af ómissandi eða mikilvæg- um innviðum samfélagsins, þjón- ustu okkar. Það eru til dæmis fjármálafyrirtækin, orkufyrir- tæki, heilsugæslan og fleiri,“ segir Þorleifur. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við því.“ Fyrirtækin sem fara í sam- starf við netöryggissveitina gera samning við Póst- og fjarskipta- stofnun, og þurfa sjálf að greiða fyrir þjónustuna. Nú er í gangi vinna hjá innan- ríkisráðuneytinu til að móta stefnu um netöryggismál Íslands. „Þetta er mjög mikilvægt verk- efni og áríðandi að það verk verði klárað. Ég veit að innanríkisráð- herra leggur mikla áherslu á þetta mál,“ segir Þorleifur. Hann segir netöryggi lang- hlaup, vanda þurfi vinnuna. Afleiðingarnar af því að gera ekkert geti orðið skelfilegar. Í þessu tilviki var brotist inn á vef- síðu og gögnum stolið, en erlendis eru þekkt dæmi um að tölvuþrjót- ar komist inn í stjórnkerfi fyrir- tækja. „Við nefnum oft orkugeirann í þessu samhengi, það er vissulega einn af okkar ómissandi innvið- um sem þarf að reyna að verja eins og hægt er. Við vitum öll hvaða afleiðingar það hefði ef það yrði raunin að það væri hægt að leggja orkufyrirtæki á hliðina,“ segir Þorleifur. brjann@frettabladid.is Reyndi að brjótast inn hjá fleirum Tölvuþrjóturinn sem braust inn hjá Vodafone aðfaranótt laugardags reyndi fyrst að brjótast inn hjá öðrum íslenskum fyrirtækjum. Getum aldrei verið fullkomlega örugg segir sérfræðingur. Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að verða meira meðvituð um hættuna af netárásum. INNBROT Tyrkneskur tölvuþrjótur náði að stela miklu magni persónuupplýsinga frá Vodafone aðfaranótt laugardags. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÞORLEIFUR JÓNASSON Um 100 manns komu á Málflutningsstofu Reykjavíkur í gær til að skoða hvort gögn um viðkomandi væru meðal þess sem stolið var af Vodafone, segir Hrannar Pétursson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone. Talsverð bið var eftir því að komast til að skoða gögnin. Þegar blaðamaður Fréttablaðsins leit við í hádeginu var áætluð bið um 90 mínútur. Upphaflega stóð til að gera gögnin aðgengileg í gær og í dag, en Hrannar segir nú unnið að því að finna aðrar leiðir til að leyfa fólki að skoða hvaða gögn um það voru meðal þess sem var stolið. Um 100 vildu skoða gögn Vodafone Hlutabréf í Fjarskiptum, móðurfélagi Vodafone, lækkuðu um 12,1 prósent í Kauphöll Íslands í gær þegar markaðurinn brást við fréttum af netárás- inni á laugardag. Lækkun Fjarskipta var mesta lækkun á verði hlutabréfa í kauphöllinni frá endurreisn markaðarins í lok árs 2011. Fjarskipti slógu þar með eigið met, en fyrra metið var 7,7 prósenta lækkun Fjarskipta í maí eftir birtingu uppgjörs eftir fyrsta ársfjórðunginn. Spurður um þessa lækkun segir Hrannar Pétursson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone: „Okkar áhyggjur liggja fyrst og fremst annars staðar í dag, hjá viðskiptavinum okkar. Markaðurinn hefur sinn sjálfstæða vilja og greinir málið með einhverjum tilteknum hætti, við fylgjumst bara með því.“ Vodafone sló eigið met í kauphöllinni „Þetta mál gefur okkur tilefni til að skoða hvernig við tryggjum betur öryggi fólks á netinu,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Hún segir ábyrgðina í þessu tiltekna máli þó liggja hjá Vodafone. „Við þurfum að skoða hvernig eftirliti er háttað, hvernig lagaramminn er og hvort viðbúnaður okkar og eftirlit sé í samræmi við þá tíma sem við lifum og þá tækni sem við erum að nýta okkur,“ segir Hanna. Hún segir að almenningur verði að geta nýtt sér tæknina án þess að eiga það á hættu að persónuleg gögn og samskipti séu gerð opinber. Það eigi við um fjarskiptafyrirtækin jafnt sem önnur fyrirtæki. Ísland hefur verið framarlega í því að innleiða rafræna stjórnsýslu, og ýmis mjög persónuleg gögn um einstaklinga eru aðgengileg hjá ýmsum stofnunum ríkisins í gegnum netið. Hanna Birna segir að öryggi rafrænnar stjórnsýslu sé afar mikilvægt. „Menn verða að geta treyst því, og eiga að geta treyst því, að það sem fer inn í þessa rafrænu stjórnsýslu sé öruggt,“ segir Hanna Birna. Hún segir aldrei hægt að koma í veg fyrir innbrot í tölvukerfi, en tryggja verði að gögnin sjálf séu vernduð. Vinna við að móta stefnu í netöryggismálum er nú í gangi í innanríkis- ráðuneytinu, og á því starfi að ljúka um mitt næsta ár. Hanna Birna segir þrátt fyrir það mikilvægt að skoða hvernig farið er með þessi mál í dag. Skoða hvernig tryggja má öryggi á netinu Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að stjórnendur Vodafone verði kallaðir á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis til að ræða gagnastuldinn frá fyrirtækinu. Ákveðið hefur verið að halda fundinn á morgun. Katrín óskaði einnig eftir því að fulltrúar Póst- og fjarskiptastofnunar og mögulega annarra fjar- skiptafyrirtækja en Vodafone yrðu kallaðir fyrir nefndina. „Ég óskaði eftir þessum fundi til að fara yfir málið,“ segir Katrín. Hún segir að Vodafone hafi brotið lög með því að geyma gögn lengur en lög heimili. Eðlilegt sé að fara yfir málið og eftirlit stjórnvalda með því að fjarskiptafyrirtæki fari að lögum. Þá sé eðlilegt að ræða hvort lagaákvæði um gagnageymd hafi einhverju skilað, og hvort endurskoða þurfi það ákvæði. Forsvarsmenn Vodafone fyrir þingnefnd Félag Dags Lækkun Fjarskipti 2. des 2013 12,1% Fjarskipti 30. maí 2013 7,7% Össur 29. apríl 2013 6,2% Marel 4. nóv 2012 5,6% Marel 26. júlí 2012 5,0% ➜ Mikil lækkun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.