Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 40
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28 BAKÞANKAR Ólafar Skaftadóttur „Jólin fyrir mér eru persónu- leg. Þó að ég tilheyri múslíma- fjölskyldu, fögnuðum við alltaf jólunum í Beirút,“ segir Mazen Maarouf, palestínskt ljóðskáld og þýðandi, sem var bjargað hingað til lands árið 2011 af samtökunum ICORN í samstarfi við Reykja- víkurborg. Honum höfðu borist líflátshótanir vegna blaðaskrifa sinna um stjórnmál, þar sem hann talar fyrir friði og jafnrétti kynjanna, í Miðausturlöndum. Sjálfur er Mazen palestínsk- ur að uppruna en hefur alla tíð haft stöðu flóttamanns í Líbanon. Hann fæddist árið 1978 í Beirút. „Við áttum jólatré úr plasti, sem við fengum að gjöf frá vin- konu móður minnar. Það var ekki í sérstaklega góðu ásigkomulagi, en það skipti ekki öllu máli. Á hverju ári hlökkuðum við til að setja upp tréð, um miðjan desem- ber. Faðir minn skreytti tréð með sama skrautinu, það var gamalt skraut sem mátti muna fífil sinn fegri, en það skipti engu máli,“ segir Mazen. Á þessum tíma ríkti stríðs- ástand í Líbanon. „Stríðið var á ákveðinn hátt á milli mús- líma og kristinna eða hægri- og vinstrisinnaðra, líbanskra, pal- estínskra og sýrlenskra borgara. Þannig tókum við mikla áhættu, að fagna kristinni hátíð eins og jólum, í Líbanon á tímum stríðs. Jólin voru ein ástæða þess að ég gerði mér grein fyrir að mann- réttindi eru mikilvægari en blind trú á hugmyndafræði einna trúar- bragða,“ segir Mazen. Mazen er gríðarlega spenntur fyrir að fagna jólunum á Íslandi í fyrsta sinn, og kannski það eina, en hann hefur sótt um ríkisborg- ararétt á Íslandi sem hann fær skorið úr um á næstu vikum. „Ég er fullur tilhlökkunar. Ég á djúpa tengingu við landið og marga vini. Mér þykir svo vænt um fólk- ið mitt hér. Þó að ég sé ekki með fjölskyldunni minni er vel séð um mig. Ég á meira að segja íslenska mömmu!“ segir Mazen, léttur í bragði. Mazen er um þessar mundir að vinna að fyrstu skáldsögu sinni. „Mér hefur gengið rosalega vel að skrifa og þýða á Íslandi. Dvöl- in hefur verið eins og endalaus jól fyrir mig, þar sem er ekkert stríð og engin átök og mér finnst ég óhultur,“ segir Mazen. olof@frettabladid.is Lagði lífi ð að veði til að halda jól hátíðleg Mazen Maarouf hlakkar til fyrstu, og kannski einu, jólanna á Íslandi. FÆR SVAR VIÐ UMSÓKNINNI Á NÆSTU VIKUM Mazen Maarouf heldur fyrstu jólin á Íslandi í faðmi vina. Hann vonast til þess að fá ríkisborgararétt hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM OPINN Ethan er ófeiminn við að tjá sig um fortíðina. Níu ár eru síðan leikarinn Ethan Hawke og leikkonan Uma Thur- man skildu en þau felldu hugi saman árið 1997 við tökur mynd- arinnar Gattaca. „Gattaca var frábær stund í mínu lífi og frábær stund í lífi Umu Thurman. Við urðum mjög ástfangin. Við reyndum að vera eins bjartsýn og við gátum. Við vildum trúa á ást og möguleikann á ást. Maður gerir sér betur grein fyrir því hve sterk ástin er þegar maður eldist. Þá skilur maður hvernig tilfinningar geta leitt mann í góðar áttir og hættulegar áttir. Ég sé ekki eftir því að hafa gengið ungur í hjónaband,“ segir Ethan í samtali við tímaritið Mr. Porter. Ethan og Uma voru gift í sex ár en skildu árið 2004. Þau eiga tvö börn saman, dótturina Mayu, fimmtán ára og soninn Roan, ell- efu ára. Ethan kvæntist barn- fóstru þeirra, Ryan Shawhughes, árið 2008 og eiga þau tvö börn saman. - lkg Sér ekki eft ir hjónabandinu Dvölin hefur verið eins og endalaus jól fyrir mig, þar sem er ekkert stríð og engin átök og mér líður óhultum. Mazen Maarouf Leikkonan Maria Bello kom út úr skápnum í dálki í New York Times fyrir helgi. Í dálkinum seg- ist Maria hafa verið í sambandi með bestu vinkonu sinni Clare um langt skeið. Þá deilir hún því einnig með lesendum hvernig hún sagði tólf ára syni sínum Jackson frá ráðahagnum en hann var farið að gruna ýmislegt. „Ég dró djúpt andann og vissi að svarið mitt, og viðbrögð hans, myndu breyta lífi okkar um ókomna tíð. Ég var í sambandi með manneskju og var ekki búin að segja honum það. Ég var með konu sem var besta vinkona mín og eins og guðmóðir sonar míns,“ skrifar Maria. Hún ákvað að láta reyna á samband með Clare þegar hún skoðaði gamlar dagbækur í bakgarðinum sínum. „Ég fann svarthvíta mynd af okkur sem var tekin á gamlárs- kvöld. Við vorum svo hamingju- samar. Ég gat ekki annað en bros- að. Ég gerði mér ekki grein fyrir því, fyrr en þarna, að við gætum elskað hvor aðra á rómantískan hátt.“ Maria var áður í löngu sam- bandi með Dan McDermott og eignuðust þau Jackson saman árið 2001. - lkg Komin út úr skápnum Save the Children á Íslandi LJÓSTRAR UPP LEYNDARMÁLI Maria er komin út úr skápnum. Galdrar eða fúsk? Frændi minn telur að betur hefði farið á því að Baldur Brjánsson töframaður hefði verið á sviðinu í Hörpu í stað ráð- herranna tveggja, sem hróðugir kynntu boðskapinn um skuldahvarfið á laugar- daginn. VONANDI hefur minn góði frændi rangt fyrir sér varðandi töframennina tvo – og þeim takist að redda þeim fjár- munum sem upp á vantar. Þrátt fyrir allt held ég að við ættum að reyna eftir fremsta megni að gera okkur vonir um að nú sé verið að binda enda á drunga- lega leiðindatíð, sem einhvern veginn hefur lamað allt og alla. Ég er farin að þrá útbreidda almenna bjartsýni. ÉG hef engar forsendur til að meta galdrana sem sýndir voru á sviðinu. Hvort á ferðinni voru hreinar sjónhverfingar fúskara eða alvöru töfra- brögð. Ég vona svo sannar- lega að tíminn leiði í ljós að það var hið síðarnefnda. KANNSKI ráðum við mestu um það sjálf. Til að galdur virki, verður fólk að trúa á hann. Að því leyti er hann náskyldur hagfræðinni, ef ég skil þau fræði rétt. Hún snýst meira og minna um hjarðhegðun sem efnahagsráðstafanir kalla fram samkvæmt ákveðnum lög- málum. ÞESS vegna vil ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að trúa á galdurinn – í það minnsta þangað til hugsanlegir lodd- arar verða afhjúpaðir. Virkir í athuga- semdum og fleiri góðir hafa þegar sagt okkur að það eru ekki allir til í að trúa. Það er svo sem rétt athugað að oft er miklu fórnað fyrir trúna, stundum sann- leikanum. Þannig að ég ætla að passa mig á að hengja ekki geðheilsuna alfarið á ákvarðanir tveggja miðaldra karl- manna í brúnni. EN mikið hefðum við nú gott af því öll að öðlast trú á að nú sé bjartari tíð í vænd- um. Trúin flytur fjöll og kannski – von- andi – skuldir. PARADÍS: VON “IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” - THE GUARDIAN THE BROKEN CIRCLE BREAKDOWN BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI TRIBECA 2013 SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas HUNGER GAMES 2 6, 7, 9, 10 PHILOMENA 5:50, 8 CARRIE 10:10 S.B. - FBL “ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA” S.B. - FBL þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ NÁNAR Á MIÐI.IS PRINCE AVALANCHE THE HUNGER GAMES 2 THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS THE COUNCELOR CAPTAIN PHILIPS FURÐUFUGLAR 2D Ú ÓT RB 2D ÍSL.TAL THE PAST NORTHWEST THE HUNGER GAMES 2 PHILOMENA CAPTAIN PHILIPS HROSS Í OSS THE HUNGER GAMES 2 NORTHWEST KL. 5.50 - 8 KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9 KL. 5 - 8 KL. 8 - 10.30 KL. 10.10 KL. 3.30 KL. 3.30 KL. 6 - 9 - 10 KL. 6 - 8 Miðasala á: og ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ KL. 5.15 - 10.15 KL. 10.45 KL. 6 - 8 - 9 KL. 5.45 - 8 KL. 8 KL. 6 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIREROLLING STONE GQ DEADLINE HOLLYWOOD ENTERTAINMENT WEEKLY VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS? MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI VARIETY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.