Fréttablaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 23. janúar 2014 | MENNING | 31
Sérbýli með lítilli aukaíbúð
og bílskúr í Kópavogi,
Garðabæ eða Hafnarfirði.
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Eignin má þarfnast einhverra lagfæringa.
Verð allt að 50 milljónum.
Sveigjanlegur afhendingartími.
Nánari upplýsingar veitir
Svan G. Guðlaugsson, Sölufulltrúi
svan@miklaborg.is sími: : 697-9300
Við leitum að ...
Hæð í vestubæ Reykjavíkur
eða Seltjarnarnesi.
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Þarf að vera minnst 3-4 svefn-
herbergi og rúmgóðar stofur.
Eigandi býður upp á rúman
afhendingartíma.
Verð allt að 55 milljónir.
Nánari upplýsingar veitir
Svan G. Guðlaugsson, Sölufulltrúi
svan@miklaborg.is sími: : 697-9300
Við leitum að ...
ÞÓR VIÐAR JÓNSSON
39 ára kerfisstjóri
frá Hafnarfirði.
#AframThor
HRÖNN HARÐARDÓTTIR
30 ára viðskiptafræðinemi
við Háskólann á Akureyri.
#AframHronn
JÓNAS PÁLMAR BJÖRNSSON
27 ára kjötiðnaðarmaður
frá Hvolsvelli.
#AframJonas
KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR
25 ára í fæðingarorlofi,
frá Vestmannaeyjum.
#AframKolbrun
EYÞÓR ÁRNI ÚLFARSSON
34 ára frá Reykjanesbæ.
#AframEythor
JÓHANNA ENGELHARTSDÓTTIR
35 ára lífeindafræðingur
frá Mosfellsbæ.
#AframJohanna
„Verkið gengur út frá þeirri grundvallarstaðhæf-
ingu að gólf séu óhreyfanleg, en snýr þessari stað-
hæfingu upp í andstæðu sína vegna þess að þetta er
gólf sem hreyfist,“ segir myndlistarkonan Katrín
Sigurðardóttir um listaverkið sem hún var með á
Feneyjatvíæringnum. Þar var það í gömlu þvotta-
húsi, nú er hún að setja það upp í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi. Það er ekki bara gólf, heldur
teikna útlínur þess 18. aldar hallarskála. „Þessu
hallargólfi hefðarfólksins er stungið inn í bygging-
ar sem allar hafa raunverulega fortíð sem athafna-
svæði verkafólks, þannig að þegar maður gengur
á verkinu er maður á gólfi hefðarfólksins en undir
þaki verkafólksins,“ segir listakonan. Verkið er á
neðri hæð Hafnarhússins, tekur yfir A-salinn og
hluta af portinu. Katrín segir rýmra um það hér en
var í Feneyjum og segir marga eiga heiðurinn að því
að flytja verkið milli landanna. „Ég hef sjálf verið
að mestu leyti upptekin við að teikna og skipuleggja
uppsetninguna hér vegna þess að það er svo mikið
öðruvísi en á Ítalíu.“
Katrín býr og starfar bæði hér á landi og í New
York en segir fólk í sinni starfsgrein gjarnan að
vinna þar sem verkefnin séu. „Mín verk eru að jafn-
aði byggð inn í rýmið og eru því staðbundin og gerð
þeirra er þá líka staðbundin,“ útskýrir hún. En opn-
aði þátttaka hennar í Feneyjatvíæringnum henni
ekki einhverjar dyr?
„Jú, sannarlega. Það var mjög góð aðsókn að sýn-
ingunni allan tímann. Til Feneyja kemur margt fólk
sem starfar í faginu. Verkið mitt vakti athygli og
mér hefur verið boðið á þó nokkuð margar sýning-
ar í framhaldinu. Listasafn Reykjavíkur gaf líka út
fallegan bækling sem var á sýningunni úti og hann
hefur stuðlað að góðri alþjóðlegri kynningu á verk-
inu og mér.“ gun@frettabladid.is
Á gólfi hefðarfólks
undir þaki verkafólks
Katrín Sigurðardóttir er í Hafnarhúsinu að vinna að uppsetningu verksins
sem var á Feneyjatvíæringnum 2013. Sýning á því verður opnuð nú á laugardag.
LISTAKONAN „Þessu hallargólfi hefðarfólksins er stungið inn í byggingar sem allar
hafa raunverulega fortíð sem athafnasvæði verkafólks,“ segir Katrín. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA