Fréttablaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 10
23. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SVÍÞJÓÐ Ákærum í Svíþjóð hefur
fækkað um 15 prósent á fjór-
um árum, samkvæmt könnun á
vegum sænska blaðsins Dagens
Nyheter. Á sama tíma fjölgaði til-
kynningum um afbrot til lögregl-
unnar um 1,8 prósent.
Málum sem berast saksóknara
frá lögreglu hefur fækkað um 12
prósent frá 2010. Haft er eftir
saksóknara hjá ríkissaksóknara-
embættinu að málið snúist að
miklu leyti um hvernig lögreglan
stýrir starfsemi sinni. - ibs
Lögreglan ekki nógu virk:
Færri ákærðir
fyrir afbrot
HEILBRIGÐISMÁL „Það gengur vel
að opna á Vífilsstöðum,“ segir
Gyða Baldursdóttir, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri lyflækningasviðs
Landspítala.
Fyrir jól voru fluttir þangað
18 aldraðir sjúklingar af Landa-
koti og í byrjun janúar voru flutt-
ir þangað tólf af Landspítalanum.
Um miðjan febrúar er stefnt að því
að búið verði að flytja tólf til við-
bótar og þá verður búið að fylla öll
plássin.
Í haust var ákveðið að opna
hjúkrunarheimili á ný á Vífilsstöð-
um til að létta álagi af lyflækninga-
sviði Landspítalans og mæta þörf
fólks sem beið eftir varanlegri dvöl
á hjúkrunarheimili og var með gilt
færni- og heilsumat.
Á síðasta ári voru 136 milljónir
króna settar í verkefnið en talið er
að það kosti tæpar 350 milljónir á
ári að reka Vífilsstaði.
Gyða segir að vel hafi gengið að
manna stöður á Vífilsstöðum, betur
en menn hafi þorað að vona, þegar
ákveðið var að opna þar á ný. - jme
Opnun hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Vífilsstöðum gengur ágætlega:
Búið að flytja 30 sjúklinga
GENGUR VEL Búið er að flytja þrjátíu
aldraða sjúklinga á hjúkrunarheimilið á
Vífilsstöðum. Fleiri verða fluttir þangað
í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
MENNTAMÁL Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra ætlar að láta
endurskoða þá þætti nýrrar aðal-
námskrár grunnskóla er lúta að
mati á persónulegum þáttum og við-
horfum nemenda og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær. Svipaðar hug-
myndir voru uppi varðandi fram-
haldsskólann en búið er að slá þær
út af borðinu.
„Ég hafna því að kennarar verði
látnir gefa nemendum sem eru að
útskrifast úr tíunda bekk einkunn-
ir eða umsögn fyrir sjálfsmynd eða
hvort kennarar telji þá hæfa til að
taka þátt í lýðræðislegu samfélagi,“
segir Illugi.
Hann segir að það sé ekki skyn-
samlegt að kennarar leggi hug-
lægt mat á nemendur, þeir geti hins
vegar gefið nemendum einkunnir
fyrir færni.
Aðalnámskráin er ekki ný af nál-
inni, hún var unnin í menntamála-
ráðuneytinu samkvæmt pólitískri
forskrift fyrrverandi ríkisstjórnar.
Þegar Illugi kom í ráðuneytið ákvað
hann að fresta því um ár að sá hluti
námskrárinnar er tekur til breyt-
inga á einkunnakerfi, það er að gefa
einkunnir í bókstöfum og að kenn-
arar gefi skriflegt mat, taki gildi.
Illugi bendir á að það eigi að sam-
eina Námsmatsstofnun og Náms-
gagnastofnun og eitt af þeim stóru
verkefnum sem nýja stofnunin fær
er að þróa nýtt matskerfi fyrir
grunnskólann.
Það hafa verið skiptar skoðanir
um nýju námskrána. Skólastjórn-
endur hafa sagt að það sé ekki á
færi þeirra eða kennara að leggja
dóm á persónuleika nemenda.
Í svipaðan streng taka samtökin
Heimili og skóli, en Hrefna Sigur-
jónsdóttir, framkvæmdastjóri sam-
takanna, segir hins vegar að málið
sé ekki svo einfalt að það sé hægt
að vera alfarið með eða á móti nýrri
aðalnámskrá grunnskólanna. Hún
sé að mörgu leyti góð, en beri þess
merki að vera samin eftir hrun
þegar fólk fór almennt að velta fyrir
sér siðferðilegum gildum og lýðræð-
islegum þáttum.
„Það er hins vegar afar vandmeð-
farið að ætla að fara að gefa ein-
kunn fyrir slíka þætti og fella um
leið dóma um persónuleika nem-
enda,“ segir Hrefna.
Önnur skoðun er svo sú að kenn-
arar geti lagt siðferðilegt mat á
nemendur.
Guðbjörg Ragnarsdóttir, vara-
formaður Félags grunnskólakenn-
ara, segir að það sé alltaf erfitt að
leggja siðferðilegt mat á nemendur
grunnskóla og gefa einkunnir fyrir
þá þætti. „Nýrri námskrá er ætlað
að mæla það sem ekki er hægt að
mæla í prófum og sýna fram á að
einstaklingurinn er annað og meira
en það sem hægt er að mæla með
hefðbundnu námsmati hvort sem
það eru verkleg eða skrifleg próf.“
Guðbjörg segir að hugsunin sé
sú að kennarar hvers nemanda
ræði saman og komi sér saman um
ákveðið mat og ákvarði einkunnir
út frá því. Það sé þó afar tímafrekt.
Að hennar mati væri betra að gefa
skriflegar umsagnir um nemendur.
„Hugsunin með námskránni er
að koma fleiri þáttum inn í náms-
matið og sýna fram á að nemend-
ur geti staðið sig vel á öðrum svið-
um en í hefðbundnum prófum. Það
getur líka komið þeim nemendum til
góða sem standa höllum fæti í hefð-
bundnu námi,“ segir Guðbjörg.
johanna@frettabladid.is
Hafnar einkunnum
vegna sjálfsmyndar
Menntamálaráðherra segir ekki skynsamlegt að kennarar leggi huglægt mat á
nemendur. Nýtt matskerfi er nú í bígerð. Grunnskólakennari segir að nýrri nám-
skrá sé ætlað að mæla það sem ekki er hægt að mæla með hefðbundnum prófum.
ILLUGI
GUNNARSSON
Í ENDURSKOÐUN Menntamálaráð-
herra ætlar að láta endurskoða þá þætti
nýrrar aðalnámskrár grunnskóla er lúta
að mati á persónulegum þáttum og við-
horfum nemenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GUÐBJÖRG
RAGNARSDÓTTIR
REYKJAVÍK Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks gagnrýndu á borgar-
stjórnarfundi í gær að ákvörðun
um að veita ekki styrk til kvik-
myndahátíðarinnar RIFF væri
ekki endurskoðuð. Var meirihlut-
inn sakaður um að skýla sér á bak
við ákvörðun faghóps Bandalags
íslenskra listamanna.
Einar Örn Benediktsson, for-
maður menningar- og ferðamála-
ráðs, segir að ekkert bendi til þess
að nokkuð í ferlinu við styrkúthlut-
unina hafi verið rangt. - eb
Sjálfstæðismenn ósáttir:
Vilja endurskoða
RIFF-ákvörðun
RÁÐHÚSIÐ Ákvörðun um að endur-
skoða ekki styrk til RIFF er gagnrýnd.
FRÉTTABLAÐIÐ / GVA.
STJÓRNMÁL Samfylkingin bætir
við sig 3,5 prósentustigum í nýrri
könnun MMR og mælist nú með
17,1 prósents fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með 26,3 prósenta fylgi og bætir
við sig 1,1 prósentustigi. Fram-
sóknarflokkurinn mælist nú 17,0
prósent samanborið við 17,3 pró-
sent í síðustu mælingu í desember.
Björt framtíð bætir við sig einu
prósentustigi og mælist með 15,9
prósenta fylgi. Vinstri græn mæl-
ast með ellefu prósenta fylgi og
missa 1,5 prósentustig. Píratar
mælast með 6,9 prósenta fylgi,
samanborið við níu prósent áður.
Aðrir flokkar voru með innan við
1,4 prósenta fylgi. 981 svaraði
könnuninni. - skó
Könnun MMR á fylgi flokka:
Samfylkingin
bætir við 3,5
prósentustigum
BANDARÍKIN, AP Tveir Mexíkóar
voru handteknir af lögregluyfir-
völdum í Texas fyrir að hafa
undir höndum aðgang að um 100
debet- og kreditkortum sem stolið
var af verslanakeðjunni Target
fyrir jól. Kreditkortaupplýsing-
um fjörutíu milljóna viðskipta-
vina verslunarinnar var stolið
eftir að þeir notuðu kort sín í búð-
unum.
Lögregla telur þó ólíklegt að
þeim takist að hafa hendur í hári
hakkaranna sjálfra. - fbj
Tveir handteknir í Texas:
Með stolin kort
frá Target
VIÐSKIPTI Efnisveitan Netflix fer
fram á að símafyrirtækið Tal hætti
notkun á nafni Netflix í auglýs-
ingum sínum. Þetta kemur fram í
tölvubréfi sem Netflix sendi Tal og
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Í bréfinu segir meðal annars að
það stríði gegn notendaskilmálum
Netflix að hvetja neytendur til þess
að fara í kringum reglur til að nota
þjónustuna.
Neytendastofa staðfestir að sam-
kvæmt íslenskri neytendalöggjöf
er bannað að nota auðkenni ann-
ars fyrirtækis án leyfis. Atvik sem
þessi komi reglulega upp og eru
þau metin hvert fyrir sig.
Petrea Guðmundsdóttir, forstjóri
Tals, segir í tölvubréfi til Frétta-
blaðsins að ekki sé ólöglegt að
nefna nafn Netflix í kynningarefni
Tals. Á heimasíðu Tals sé skýrt
tekið fram að fyrirtækið selji ekki
áskrift að efnisveitunni. Til standi
að kynna fyrir Netflix hvaða upp-
lýsingar eru um efnisveituna á síð-
unni. Geri Netflix athugasemdir í
kjölfarið verði málið unnið áfram
í samráði við þá. - eb
Fer fram á að notkun nafns Netflix verði hætt:
Netflix kvartar und-
an auglýsingu Tals
NETFLIX ÓSÁTT Efnisveitan Netflix
hefur gert athugasemd við framsetn-
ingu í kynningarefni Tals. Þetta er skjá-
skot af vef Tals.
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
GÆÐAVÖRUR FYRIR
BÍLINN Á GÓÐU VERÐI!
Landsins mesta úrval bílavara
ÞURRKUBLÖÐ
Í flestar gerðir fólks- og atvinnubifreiða. VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
LANGAR ÞIG AÐ LÆRA AÐ BÚA TIL NÆRINGARRÍKA OG FLJÓTLEGA FÆÐU?
HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5. KL. 18:30-21:00
„Fróðlegt og skemmtilegt námskeið sem sýnir manni að það þarf alls ekki að vera flókið eða
tímafrekt að útbúa hollan og bagðgóðan mat/millimál.“
– Karen Lilja Sigurbergsdóttir
Fimmtudagurinn
30. jan.
7.600 kr.
Hráfæði – Þeytingar – Ofurfæði
Lærðu að búa til kraftmikinn
morgunmat, millimál, þeytinga,
mjólkurlausa mjólk, hráfæði,
aðalrétti, eftirrétti og ís.
Sýnikennsla og fræðsla.
Eingöngu er notast við algeng
eldhúsáhöld, matvinnsluvél og
blandara við matseldina.
Allir fara saddir og sælir heim
með glænýtt uppskriftasafn
auk þess sem Facebook-hópur
verður stofnaður þar sem hægt
er að spyrja spurninga og deila
reynslu eftir námskeiðið.
SIF GARÐARSDÓTTIR
Sif Garðarsdóttir er heilsu-
mark þjálfi og einka þjálfari
með yfir 15 ára ára reynslu.
Nánari upplýsingar
og skráning:
sifg@hotmail.com
www.sifgardars.is