Fréttablaðið - 14.04.2014, Qupperneq 10
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
– Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
85
32
0
4/
14
www.lyfja.is
Fyrir
þig
í Lyfju
Læg a
verð í
LyfjuBioténe
Munnúði, munnskol,
munngel og tannkrem
sem vinnur gegn munnþurrki.
20%
afsláttur
ildir út apríl
UPPGJÖR & BÓKHALD
Við elskum
ársreikninga
Einblíndu á það sem skiptir
máli í þínum rekstri og láttu
gerð ársreikningsins í hendur
fagfólks sem hefur unun af
verkinu.
Hafðu samband við
Birnu í síma 545 6082
og fáðu fast verð í
gerð ársreikningsins.
kpmg.is
ÚKRAÍNA Úkraínsk stjórnvöld
ákváðu í gær að senda hermenn
gegn uppreisnarmönnum, hlið-
hollum Rússum, í austanverðu
landinu, þar sem þeir hafa náð
hverri stjórnarbygginguna á
fætur annarri á sitt vald. Jafn-
framt mun herinn veita rússnesk-
um hermönnum viðnám, fari þeir
yfir landamærin frá Rússlandi til
Úkraínu.
Oleksandr Túrtsjínov forseti
segist ekki ætla að láta það við-
gangast að það sem gerðist á
Krímskaga endurtaki sig. Rúss-
ar innlimuðu Krímskaga í síðasta
mánuði eftir að heimamenn þar,
hliðhollir Rússum, höfðu lýst yfir
sjálfstæði og óskað eftir aðild að
Rússlandi.
Túrtsjínov lofaði sakarupp-
gjöf öllum Úkraínumönnum sem
ákveða að leggja niður vopn þegar
í stað.
Til átaka kom í borginni Slovj-
ansk í austanverðri Úkraínu í gær,
þar sem uppreisnarmenn höfðu
náð lögreglustöð og leyniþjón-
ustuskrifstofum á sitt vald dag-
inn áður.
Einn yfirmaður í úkraínsku
leyniþjónustunni lét þar lífið og
tveir yfirmenn í hernum særðust.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, sendi í gær
frá sér yfirlýsingu þar sem hann
lýsti áhyggjum af þróuninni í aust-
anverðri Úkraínu. Þar væru á ný
komnir fram á sjónarsviðið menn
„með sérhæfð rússnesk vopn og
sams konar búninga ómerkta, rétt
eins og rússneskir hermenn höfðu
notað áður þegar Rússland innlim-
aði Krímskaga með ólöglegum og
ólögmætum hætti“. Hann sagði
þetta alvarlega þróun.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hringdi í gær í
Sergei Lavrov, rússneskan starfs-
bróður sinn. Kerry sagðist hafa
miklar áhyggjur af því að árás-
irnar hafi verið „skipulagðar og
samstilltar, svipað fyrri árásum í
austanverðri Úkraínu og á Krím-
skaga“.
Lavrov sagði ekkert hæft í því
að Rússar ættu þarna nokkurn
hlut að máli, en sakaði Úkraínu-
stjórn um að taka ekki tillit til
„lögmætra þarfa og hagsmuna
rússneskra og rússneskumælandi
íbúa“. gudsteinn@frettabladid.is
Úkraínuher
veitir viðnám
Bardagar í austanverðri Úkraínu kostuðu einn mann
lífið í gærmorgun. Úkraínustjórn hefur ákveðið að
ráðast til atlögu gegn uppreisnarmönnum.
MEÐ MARÍU MAGDALENU SÉR TIL STUÐNINGS Vopnaðir menn, hliðhollir Rúss-
um, á götum borgarinnar Lugansk. NORDICPHOTOS/AFP
Save the Children á Íslandi