Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 14
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR frá Rifshalakoti, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, þann 10. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Auður Þorsteinsdóttir Þórður Karlsson Grétar Halldórsson Páll Sævar Halldórsson Halldór Guðmundur Halldórsson Svava Einarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar ástkæri HARALDUR STEFÁNSSON flugvélstjóri, Sunnuvegi 3, Reykjavík, lést í faðmi ástvina sinna 8. apríl síðastliðinn. Útför hans verður gerð frá Áskirkju þriðjudaginn 15. apríl 2014 kl. 11.00. Kristín Rögnvaldsdóttir Stefanía Haraldsdóttir Sigfús Ægir Árnason Jón Ellert Sverrisson Þorgerður Edda Birgisdóttir börn og barnabörn. Stjúpfaðir okkar og fósturfaðir, EINAR ANDRÉS EINARSSON frá Skálará í Keldudal, Dýrafirði, síðast til heimilis að Grýtubakka 6, lést á Vífilsstöðum 9. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.00. Edda Björgmundsdóttir Bragi Björgmundsson Einar Már Gunnarsson og fjölskyldur. „Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Jóda Elín Margrétardóttir, ein þeirra kvenna sem vinna að útgáfu bókarinnar Flæðarmáls sem birtir ólík verk að formi og innihaldi, sögur, ljóð og prósa. Höfundar þess eru átta ritlist- arnemar við Háskóla Íslands. Þeir fengu til liðs við sig sex ritstjórnar- nema úr sama skóla og Jóda Elín er einn þeirra. Allir nutu þeir svo leið- sagnar reynds ritstjóra, Sigþrúðar Gunnarsdóttur hjá Forlaginu. Hún segir útgáfuna algerlega sjálfstætt verk. „Við erum ekki með kynningu á okkur sem nemum held- ur stendur verkið eitt og sér. Við sáum að við værum með geysilega skemmtilegt og fallegt efni og vildum skoða leiðir til að gefa það besta út. Þá kom íslenska hópfjármögnunar- síðan Karolina Fund inn í myndina.“ Stærðin á bókinni var ákveðin nokkurn veginn fyrirfram og höf- undar og ritstjórar unnu saman í pörum að því að draga fram enn betri texta að sögn Jódu Elínar. „Höfund- arnir eru ólíkir en textunum hefur verið raðað saman þannig að þeir mynda sérstakt flæði og eina sterka heild,“ segir hún og nefnir Ingibjörgu Magnadóttur, gjörninga- og mynd- listarkonu, sem eigi heiðurinn af því. „Í þessum hópi eru flottar konur og margar þeirra hafa reynslu af skrif- um og listsköpun. Við hönnum káp- una, setjum upp efnið og sjáum um allt sjálfar nema prentunina og þar skortir okkur fjármagn,“ segir hún. En eru engir karlmenn að læra ritlist og ritstjórn? „Konur eru í meirihluta í námi. Samt eru karlar líka í báðum þess- um fögum en þeir eru ekki að gefa út neina bók, enda er það ekki skylda í náminu. Sigþrúður, ritstýra hjá For- laginu, kemur að verkinu sem stunda- kennari. Það er frábært að fá hana inn í hópinn, hún er eldklár og þaul- reynd en ekki dómínerandi heldur verður ein af hópnum.“ Til að bókin Flæðarmál verði að veruleika hafa konurnar sem sagt hafið söfnun í gegnum Karólína Fund og hvetja almenning til að leggja útgáfunni lið. Söfnunin stendur til 9. maí. Hægt er að sjá meira um málið á vefsíðunni http://www.karolinafund. com/project/view/319. gun@frettabladid.is Bók með ólík verk að formi og innihaldi Flæðarmál er íslenskt, óútkomið bókmenntaverk þar sem smásögur, örsögur, prósar og ljóð renna mjúklega saman. Höfundarnir átta og ritstjórarnir sjö standa nú fyrir hóp- fj ármögnun á Karolina Fund svo verkið komist í prentun. Velunnari Vildarbarnasjóðs Icelandair sem ekki lætur nafns síns getið gaf sjóðnum nýlega nokkrar Apple-spjaldtölvur með ósk um að þær yrðu nýttar þar sem mikil þörf væri á. Í framhaldi af því var ákveðið að afhenda þær barna- og unglingageðdeildinni. Markmið sjóðsins Vildarbörn Icelandair er að gefa lang- veikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á og alls hefur 431 fjölskylda notið stuðnings frá stofnun hans. Sjóðurinn er meðal annars fjármagnaður með beinu fjár- framlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair og með söfnun myntar um borð í flugvélum Ice- landair. Starfsemin byggist á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var for- stjóri Flugleiða og er nú stjórnarformaður Icelandair Group. Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeild- um sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Gáfu börnum á BUGL spjaldtölvur Börn sem dvelja á barna-og unglingageðdeild Landspítala fengu nýlega nokkrar Apple- spjaldtölvur. Tölvurnar voru gjöf frá velunnara Vildarbarnasjóðs Icelandair. Vígsla Ráðhúss Reykjavíkur fór fram þennan mánaðardag árið 1992, nákvæmlega fjórum árum eftir að Davíð Oddsson, þá borgarstjóri, tók fyrstu skóflustunguna. Fjölmennt var við opnunarhátíðina sem hófst á því að hljómskálakvintettinn tók nokkur lög. Síðan söng Karlakór Reykjavíkur, meðal annars Við Reykjavíkurtjörn, lag Gunnars Þórðarsonar við texta Davíðs Oddssonar. Þórður Þorbjarnarson borgarverkfræðingur lýsti byggingarsögu hússins. Til máls tóku einnig Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, Markús Örn Antonsson borgarstjóri og Davíð Oddsson forsætisráðherra. Fyrsti fundur borgarstjórnar Reykjavíkur var síðan settur, þar var eitt mál á dagskrá, kaup Reykjavíkurborgar á Iðnó sem voru samþykkt samhljóða og ákveðið að hefja endur- bætur á húsinu. ÞETTA GERÐIST: 14. APRÍL 1992 Ráðhús Reykjavíkur var vígt MERKISATBURÐIR 1695 Hafís berst inn á Faxaflóa í fyrsta sinn síðan 1615. Leið hans hafði legið suður með Austurlandi, vestur með Suðurlandi og fyrir Reykjanes. 1931 Alþingi er rofið og boðað til nýrra þingkosninga. 1963 Hrímfaxi, flugvél Flugfélags Íslands, ferst við Ósló og tólf manns týna lífi. 1987 Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er vígð að viðstöddum þrjú þúsund gestum. 2010 Eldgos hefst í Eyjafjallajökli, með öskufalli og flóðum. Askan veldur mikilli röskun á flugi víðs vegar um Evrópu. VIÐ AFHENDINGU Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir BUGL, Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna Icelandair, Linda Kristmundsdóttir, deildarstjóri göngudeildar BUGL, og Vilborg G. Guðnadóttir,deildarstjóri legudeildar BUGL. HÖFUNDAR OG RITSTJÓRAR Aftari röð: Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Júlía Margrét Einars- dóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Inga Rósa Ragnarsdóttir, Sigríður Ásta Árnadóttir, Árný Elínborg Ásgeirsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir. Fremri röð: Ingibjörg Magnadóttir, Helga Ágústsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir, Jóda Elín Valgerður Margrétardóttir, Þuríður Elva Jónsdóttir, Ragna Ólöf Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Bjargeyju Ólafsdóttur og Ingi- björgu Valsdóttur. MYND ÚR EINKASAFNI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.