Fréttablaðið - 25.04.2014, Side 2
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FISKIKÓNGURINN
HÖFÐABAKKA 1
v/Gullinbrú
SÍMI 555 2800
FISKIKÓNGUR
S0GAVEGI 3
SÍMI 587 775
www.fiskikongurinn.is
Nýveiddur
INN
5
SAMFÉLAG Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur borist
kvörtun um hávaða vegna árshátíðar Alcoa í mars
sem haldin var í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. „Þetta
er ekkert stórmál og snýr fyrst og
fremst að skemmtanahaldi almennt
í húsinu. Kvörtunin barst frá aðila
sem býr ekki langt frá. Hans hug-
mynd snýr að því hvort ekki sé
hægt að leysa málin þannig að
skemmtanahaldið byrji fyrr og því
ljúki fyrr,“ segir Páll Sigvaldason,
formaður menningar- og íþrótta-
nefndar. Árshátíð Alcoa mun hafa
staðið til klukkan tvö að nóttu.
Páll bendir á að þar sem um íþróttahús sé að ræða
en ekki skemmtistað séu dyr hafðar opnar og þess
vegna heyrist meira frá skemmtanahaldinu en ella.
„Svo er verið að ganga frá fram eftir nóttu þar sem
íþróttahúsið er tekið í notkun strax morguninn eftir.“
Björn Ingimarsson bæjarstjóri segir að athuga-
semdum verði komið á framfæri við þá sem halda
árshátíðir og íbúum greint frá skemmtunum með
fyrirvara. „Menn hafa þá þetta í huga næst þegar
svona hátíðir verða haldnar svo að þetta þurfi ekki
að pirra nágrannana. Það er full ástæða til að skoða
þetta þegar bent er á að þetta megi betur fara.“
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi
Alcoa, segir fyrirtækinu ekki hafa borist formlegt
erindi vegna málsins. „Þegar það kemur munum við
bregðast við því. Okkur þykir leiðinlegt ef íbúar hafa
orðið fyrir ónæði.“
- ibs
Kvörtun frá pirruðum íbúa vegna skemmtana í íþróttahúsinu á Egilsstöðum:
Hávaði barst frá árshátíð Alcoa
BJÖRN
INGIMARSSON
ÁLVER ALCOA Á REYÐARFIRÐI Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs
vill ekki að íbúar verði pirraðir. MYND/PJETUR
MENNTAMÁL Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Illugi Gunn-
arsson, ásamt Ágústi Sigurðssyni, rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands, notuðu tækifærið í gær, sumardaginn fyrsta, og skáluðu í
íslensku kaffi á opnu húsi Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi.
„Nýlega kom í hús önnur uppskera af kaffi úr bananahúsi skólans,“
segir á vef Garðyrkjuskólans, en kaffið er brennt og malað á staðnum.
Ráðherrarnir og rektor gáfu kaffinu sínu bestu einkunn.
Garðyrkjuskólinn fagnar 75 ára afmæli í ár og margt var að sjá á
opnu húsi í gær. - óká, mhh
Ráðherrar og rektor skáluðu í íslensku kaf i á opnu húsi:
Ný uppskera brennd og möluð
SKÁLA Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson land-
búnaðarráðherra og Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, gáfu kaffi Garðyrkjuskólans á
Reykjum í Ölfusi góða einkunn. FRÉTTABLAÐIÐ/MHH
MENNTUN Leikskóla kennarar
í Kópa vogi og mörgum öðrum
sveitar félögum geta ekki notað
efni Námsgagnastofnunar fyrir
spjaldtölvur vegna þess að ekkert
þráðlaust net er í leikskólunum.
Þetta segir Fjóla Þorvaldsdóttir,
varaformaður Félags leikskóla-
kennara og sérkennslustjóri, sem
kennt hefur leikskólakennurum að
nota spjaldtölvur.
„Við hér í Kópavogi erum enn
aftur í fornöld. Þetta er mjög baga-
legt því að Námsgagnastofnun er
með fínan krakkavef með íslensku
efni sem hún hefur verið að endur-
bæta og laga svo hægt sé að nota
hann í ipad,“ segir Fjóla.
Á vef Kópavogsbæjar í des-
ember síðastliðnum segir að átján
leikskólar hafi fengið afhentar
spjaldtölvur. Stefnt sé að því að
setja upp öruggt þráðlaust net í
öllum leikskólunum á þessu ári.
„Bæjarfélagið lét hvern leikskóla
fá eina spjaldtölvu og hafa þær
verið mikið notaðar við sérkennslu
með góðum árangri. Rannsóknir
í Danmörku, Skotlandi og Sví-
þjóð hafa leitt í ljós að börnum fer
mikið fram í tungumálakunnáttu
í slíkri sérkennslu. Það er einnig
mín reynsla.“
Á árlegu þingi breskra kenn-
ara í samtökunum Association of
Teachers and Lecturers vöruðu
nokkrir kennarar við spjaldtölvu-
notkun ungra barna. Fram kom á
þinginu að fjögurra börn væru fær
í að renna fingrum eftir skjám á
spjaldtölvum en þau skorti hins
vegar hreyfifærni til að byggja
með kubbum.
Fjóla telur engar líkur á slíkt
komi fyrir íslensk börn. „Leikur-
inn er námsleið barna á Íslandi og
leikskólakennarar eru mjög með-
vitaðir um það. Víða í Evrópu eru
fjögurra ára börn farin að sitja við
borð í akademísku námi. Hér eru
þau við leik. Það er þeirra náms-
leið. Skólakerfið á Íslandi er allt
öðruvísi uppbyggt og miklu betra.“
Hún kveðst hvetja leikskóla-
kennara til að nota spjaldtölvur í
skapandi starfi með börnum. „Ég
bendi þeim líka á að ná sér í smá-
forrit sem hægt er að þýða. Mér
finnst skipta máli að börnin læri
á íslensku. Það eru til flott forrit
sem auðvelda alla vinnu í skapandi
starfi.“ ibs@frettabladid.is
Skortur á þráðlausu
neti hamlar námi
Ekki er hægt að nota efni Námsgagnastofnunar fyrir spjaldtölvur vegna skorts á
þráðlausu neti í leikskólum. Bagalegt segir varaformaður Félags leikskólakennara.
Hún segir flott forrit auðvelda alla vinnu í skapandi starfi með leikskólabörnum.
MEÐ SPJALDTÖLVU Breskir kennarar segja fjögurra ára börn skorta hreyfifærni til
að byggja með kubbum vegna mikillar spjaldtölvunotkunar. Engar líkur á slíku hér,
segir varaformaður Félags leikskólakennara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Við hér í Kópavogi
erum enn
aftur í forn-
öld. Þetta er
mjög bagalegt
því að Náms-
gagnastofnun
er með fínan
krakkavef
með íslensku efni.
Fjóla Þorvaldsdóttir, varaformaður
Félags leikskólakennara
Bjarni, er grasið grænna
hinum megin?
„Það fer eftir því hver nágranni
manns er.“
Bjarni Þór Hannesson, formaður Sam-
taka íþrótta- og golfvallasérfræðinga er
eini Íslendingurinn með mastersgráðu í
íþróttavallarfræðum. Á blaðamannafundi
samtakanna er staða íslenskra fótboltavalla
sögð vægast sagt slæm.
ALÞINGI Fyrirhugað er að leggja
fram frumvarp til laga um vernd
afurðaheita sem vísa til uppruna,
landsvæðis eða hefðbundinnar sér-
stöðu fram á Alþingi.
Þetta segir í skriflegu svari
Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
við fyrirspurn Össurar Skarphéð-
inssonar, þingmanns Samfylking-
arinnar.
Snýst frumvarpið um að vöru-
heiti sem innihalda uppruna- eða
staðarvísun fái lögbundna vernd.
Með því verði samkeppnisstaða inn-
lendra vara gerð sterkari gagnvart
innfluttum vörum. Einnig myndi
slík löggjöf skapa ný tækifæri á
erlendum mörkuðum. - kóh
Sigurður Ingi svarar fyrir sig:
Frumvarp um
vernd vöruheita
SVÍÞJÓÐ Umhverfisflokkurinn og
Vinstriflokkurinn í Svíþjóð gagn-
rýna áætlanir stjórnvalda um að
búa orrustuflugvélar lang drægum
flugskeytum. Jafnaðarmanna-
flokkurinn er fylgjandi, að því er
segir í frétt Dagens Nyheter.
Samkvæmt áætlununum á að
vera hægt að stýra flugskeytunum
þannig að þau nái til hernaðarlegra
skotmarka í Rússlandi eða öðrum
löndum við Eystrasalt. Stjórnar-
andstaðan segir áætlanirnar geta
leitt til vígbúnaðarkapphlaups. - ibs
Flugskeyti á orrustuvélar:
Sænsk stjórn-
völd vígbúast
NOREGUR Kínverjar hafa í leyni-
legum viðræðum við norsk
stjórnvöld lagt fram kröfur í tíu
til fjórtán liðum um hvað Norð-
menn þurfi að gera til að stjórn-
málasamband milli Noregs og
Kína komist aftur á.
Meðal þess sem Kínverjar eru
sagðir krefjast er að Norðmenn
lofi því að Nóbelsverðlaun verði
aldrei aftur veitt Kínverja sem
gagnrýnir opinberlega mann-
réttindabrot kínverskra stjórn-
valda.
Fundirnir munu hafa verið
haldnir í norska utanríkisráðu-
neytinu og sendiráði Kína. - ibs
Kröfur er í 10 til 14 liðum:
Í Ósló hefur
verið rætt við
Kínverja á laun
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Í nýrri
skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum
um nauðganir í styrjöldum eru
34 vopnuð samtök eða hópar í alls
21 landi sakaðir um að hafa beitt
kynferðisofbeldi með markvissum
hætti gegn andstæðingum sínum.
Þetta eru ýmist uppreisnarmenn,
stjórnarhermenn eða liðsmenn ann-
arra vopnaðra hópa sem tekið hafa
þátt í átökum víða um heim.
„Skýrslan sýnir að þetta er svo
sannarlega alþjóðlegur glæpur,“
sagði Zainab Hawa Bangura,
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, á
blaðamannafundi í gær þar sem
skýrslan var kynnt.
Nefnd eru til sögunnar lönd á
borð við Angóla, Bosníu-Hersegó-
vínu, Kambódíu, Kólumbíu, Mið-
Afríkulýðveldið, Kongó, Malí,
Suður- Súdan og Sýrland.
Bangura segir að hinir seku séu
sjaldnast dregnir fyrir dóm og
fórnarlömbin fái sjaldnast aðstoð
við að takast á við lífið eftir að
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi
í hernaði. - gb
34 vopnaðir hópar í 21 landi nefndir í skýrslu SÞ um nauðganir í stríði:
Fæstir gerenda dregnir til saka
RAUNVERULEIKI MARGRA Konur bíða
við læknamiðstöð í Austur-Kongó, þar
sem fórnarlömbum nauðgana er sinnt.
NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS