Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Kristbjörg Jónasdóttir. Heilsa og Tíska. Dagur í lífi Hildar Hilmarsdóttur. Samfélagsmiðlarnir.
6 • LÍFIÐ 25. APRÍL 2014
Helgartilboð
kaffidrykkur og ástarpungur
500kr.
opið til 22 alla daga.
É
g hef alltaf heillast af því
að verða þjálfari svo það
kom ekki mikið annað
til greina. Það að geta
hjálpað öðrum og miðlað
reynslu minni og þekkingu til
annarra er eitthvað sem hefur átt
hug minn allan í langan tíma. Ég
er sjálf algjör íþróttaálfur og hef
alltaf verið hugfangin af hreyf-
ingu og þeim lífsstíl. Annars
hefði ég getað hugsað mér að ger-
ast flugfreyja eða tann læknir,“
segir Kristbjörg Jónasdóttir
þegar blaðamaður spyr hana út
stóru draumana þegar hún var
yngri. Kristbjörg býr í Cardiff,
höfuðborg Wales, ásamt kærast-
anum, Aroni Einari Gunnars-
syni, fyrirliða íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu, og hundunum
Tínu og Ninja. Parið kynntist í
lok 2012 í gegnum sameiginlega
vini og hafa þau nú búið í Eng-
landi undanfarið ár þar sem Aron
Einar spilar með Cardiff í ensku
úrvalsdeildinni. Heimþráin hefur
ekki látið á sér bæra enda eru
plönin að vera úti næstu árin, eða
þangað til að Aron Einar klárar
ferilinn.
„Hann er svo ungur enn þá svo
hann á nóg inni. Við munum því
vera hér áfram og ég get ekki sagt
að ég hafi fengið heimþrá enn
þá. Mér líkar ótrúlega vel hérna
og finnst þetta vera ósköp svip-
að Íslandi fyrir utan að maður er
ekkert að skreppa eitthvað enda
miklu meiri vegalengdir. Að sjálf-
sögðu sakna ég vina minna og fjöl-
skyldu og er dugleg að fá heim-
sóknir eða skjótast heim og tala
við þau á Facetime. Ég er einnig
svo heppin að vera búin að kynn-
ast yndislegu fólki hér og svo hef
ég alltaf Aron og hundana okkar
tvo sem ég kom með út.“ Knatt-
spyrna er mikilvægur þáttur í lífi
þeirra beggja. Kristbjörg stendur
við bakið á sínum manni og seg-
ist fara á alla heimaleikina. Henni
finnst fátt skemmtilegra en að sjá
kærastann sinn spila. Hins vegar
er það annars konar sport sem
hefur átt hug hennar allan undan-
farin ár, módelfitness.
Kolféll fyrir íþróttinni
„Ég hef lengi haft áhuga á þessu
sporti og ætlaði mér nú alltaf að
fara í ICE-Fitness þegar það var í
gangi en þá þurfti maður að fara í
samanburð, fara í gegnum hraða-
braut og gera einhverjar æfingar.
Mér fannst það spennandi þar
sem ég er svakaleg keppnismann-
eskja. Besta vinkona mín keppti
í módelfitness vorið 2010 og ég
fór að sjálfsögðu að hvetja hana
áfram. Þá heillaðist ég strax af
þessu og ákvað að fá mér þjálf-
ara. Konráð Valur Gíslason, þjálf-
arinn minn, hvatti mig til að láta
reyna á módelfitness um haustið
2010. Ég skellti mér í það og end-
aði í öðru sæti. Þá kolféll ég fyrir
þessu.“
Konur hafa margar hverjar
verið gagnrýndar fyrir að stunda
módelfitness og hafa verið há-
værar raddir um hversu öfgafullt
þetta getur verið. Hefur hún upp-
lifað svoleiðis gagnrýni? „Já, ég
hef upplifað það, sumir skilja bara
ekkert hvað maður er að gera og til
hvers maður gerir þetta því það er
ekki mikið upp úr þessu að hafa.
Maður fær skrýtið augnaráð þegar
maður tekur upp nestisboxið sem
maður er með alla daga og fólki
finnst óskiljanlegt þegar maður
afþakkar köku í miðri viku.“
Heilbrigði snýst ekki um öfgar
„Ef maður ætlar að ná þeim
árangri sem maður vill þá þarf
maður bara að fórna ýmsu. Þetta
snýst samt fyrst og fremst um
það að lifa heilbrigðu lífi, vera
dugleg að æfa og borða hollt og
verðlauna sig svo með nammi-
degi. Þetta þarf ekkert að vera
öfgafullt og flestar þessara
stelpna sem stunda þetta eru held
ég ekki að fara með þetta í öfgar.
Það er þá kannski einna helst
þær sem ætla sér að missa mikið
á stuttum tíma og það er alls
ekki algengt. Flestallar reyna
bara að borða hollt allan ársins
hring. Aginn þarf að vera mik-
ill því það eru endalausar freist-
ingar í kringum mann. Þegar ég
er í undirbúningi þá er ég ekkert
alltaf að skreppa út að borða með
vinunum eða þess háttar því ég
þarf að sjálfsögðu að fylgja mínu
plani. Sumir lenda í því að þurfa
að elda sérstaklega fyrir sjálfan
sig og svo eitthvað annað fyrir
maka eða fjölskyldu og það getur
oft bara verið erfitt.“
Þessi lífsstíll krefst mikils aga
Kristbjörg starfaði hjá World Class
sem einkaþjálfari og kenndi nám-
skeiðin Fitness Form og Buttlift.
Í dag leiðbeinir hún fólki í gegn-
um fjarþjálfun. „Ég trúi því að
þetta sé fyrir alla þá sem hafa
virkilegan vilja til að gera þetta.
Þetta krefst mikils aga og maður
er í rauninni að tileinka sér þenn-
an lífsstíl og þarf að hafa mikinn
metnað fyrir því sem maður er að
gera. Þetta er mikil vinna. Það er
eitt að vera í flottu formi og annað
að koma sér í þetta svokallaða
„sviðsform“. Þess vegna hvet ég
allar þær stelpur sem vilja prófa
að keppa að fá sér góðan þjálf-
ara sem leiðbeinir þeim því það
þarf að vera góð eftirfylgni eftir
mót líka. Maður æfir svo mikið
og eftir mót eiga sumir það til að
missa sig í mataræðinu og sleppa
æfingum. Það er því mikilvægt að
trappa sig hægt niður og halda rút-
ínunni áfram og mæta í morgun-
brennsluna. Þetta getur verið ótrú-
lega erfitt og margir gera sér ekki
grein fyrir því. Ég væri ekki að
gera þetta nema að mér þætti þetta
skemmtilegt. Mér finnst frábært
að setja sjálfri mér áskoranir og
sjá hvernig ég get breytt líkama
mínum en það koma að sjálfsögðu
tímabil þegar ég er í niðurskurði
og allt er ómögulegt.
Ef ég er í undirbúningi fyrir
mót þá æfi ég tvisvar sinnum á
dag, sex daga vikunnar, semsagt
tólf sinnum í viku. Þá er ég að taka
brennslu á morgnana og lyfta á
kvöldin. Annars fer ég sex til níu
sinnum í viku. Þá er ég að lyfta
sex sinnum í viku en tek kannski
þrjár brennslur aukalega. Ég er
alltaf með einn heilagan hvíldar-
dag. Það koma alveg tímabil þar
sem maður slakar kannski aðeins
meira á en venjulega en ég reyni
að halda mér í formi þannig að ég
þurfi ekki mikinn tíma til undir-
búnings ef ég þarf að fara í mynda-
töku, keppni eða eitthvað slíkt.
Þannig líður mér vel og er ánægð
með sjálfa mig.“
Strong is the new sexy
Fitness-keppnir hafa færst í
aukana undanfarin ár á Íslandi
og núna um páskana fór fram fjöl-
mennasta mót sem haldið hefur
verið frá upphafi. Alls stigu 155
keppendur á svið og í ár eru tutt-
ugu ár síðan fyrsta fitness-mótið
var haldið hér á landi. Hver heldur
Kristbjörg að sé aðalástæða þess
að stúlkur fara á fullt í fitness?
„Það byrjaði fyrir einhverju síðan
að fólk var að tala um að „Strong is
the new skinny“ og „Strong is the
new sexy“. Þetta fór á flug og ég er
ótrúlega ánægð með það þar sem
KRISTBJÖRG JÓNASDÓTTIR
ÉG ER SVAKALEG KEPPNISMANNESKJA
Kristbjörg Jónasdóttir hefur gert fi tness að lifi brauði sínu. Hún kolféll fyrir sportinu fyrir nokkrum árum og hefur helgað sig heilbrigðum lífsstíl allan
ársins hring. Kristbjörg deilir lífi sínu í Englandi með Aroni Einari Gunnarssyni, kærasta sínum, en hann spilar knattspyrnu með Cardiff í ensku úrvals-
deildinni. Lífi ð ræddi við hana um ástina, búsetuna erlendis og sjálfsagann sem er mikilvægur til að ná settum markmiðum.
NAFN Kristbjörg Jónasdóttir
ALDUR 26 ára
STARF Einkaþjálfari
HJÚSKAPARSTAÐA Í sambandi
BÖRN Engin börn