Fréttablaðið - 25.04.2014, Side 4
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
StartStartStart
13-16 ára og16-25 ára
Nánari upplýsingar
í síma 560 1010 eða
á mottaka@heilsuborg.is
www.heilsuborg.is
Hentar ungu fólki sem vill komast í
gott form. Áhersla á aukna hreyfifærni,
líkamsbeitingu og líkamsvitund.
13-16 ára: Mán., mið. og fös. kl. 16:30
16-26 ára:
Þjálfari: Bára Ólafsdóttir
Verð kr. 15.900,
(kr. 13.900 í áskrift, 3ja mán. binditími)
1,5 milljónir króna var andvirði
innfluttrar vöru frá smáríkinu
Barein árið 2013.
LEIÐRÉTT
Í frétt um skoðanakönnun á fylgi flokka
á Akranesi í Fréttablaðinu í gær voru
rangir útreikningar á fjölda bæjarfull-
trúa. Rétt er að samkvæmt könnuninni
myndi Björt framtíð fá einn fulltrúa,
Framsóknarflokkurinn og óháðir tvo,
Sjálfstæðisflokkurinn þrjá, Sam fylk ingin
tvo og Vinstri græn einn. Meirihluti
Samfylkingar, Framsóknar og óháðra
og Vinstri grænna myndi því ekki falla,
eins og fullyrt var í fréttinni. Beðist er
afsökunar á þessum mistökum.
VIÐSKIPTI Sigþór Jónsson hefur
verið ráðinn sem framkvæmda-
stjóri eignastýringarsviðs
Straums fjár-
festingarbanka.
Hann hefur störf
1. ágúst næst-
komandi, að því
er fram kemur í
tilkynningu.
Haft er eftir
Jakobi Ásmunds-
syni, forstjóra
Straums, að mikill styrkur sé
fyrir bankann að fá Sigþór til þess
að leiða uppbyggingu eignastýr-
ingarinnar.
Sigþór var áður framkvæmda-
stjóri Landsbréfa hf. og þar áður
forstöðumaður sérhæfðra fjár-
festinga hjá Stefni hf. - óká
Hefur störf fyrsta ágúst:
Sigþór Jónsson
fer til Straums
SIGÞÓR JÓNSSON
STJÓRNMÁL „Þetta er bara mjög
vandræðalegt,“ segir Þuríður
Bernódusdóttir, fyrrverandi for-
maður Félags Framsóknarkvenna
í Reykjavík.
Þeir eru fleiri Framsóknar-
mennirnir í Reykjavík sem við-
hafa sömu orð um stöðu fram-
boðsmála f lokksins fyr ir
borgar stjórnarkosningarnar sem
verða eftir rúman mánuð.
Flestum virðist hafa komið á
óvart að Guðni Ágústsson, fyrr-
verandi ráðherra, skyldi hætta við
að taka fyrsta sæti á lista Fram-
sóknarmanna í Reykjavík.
Í yfirlýsingu sem Guðni sendi
frá sér í gær segist hann hafa
tekið þá ákvörðun að gefa ekki
kost á sér til að leiða lista fram-
sóknarmanna í Reykjavík „að vel
hugsuðu máli“ og í samráði við
fjölskyldu sína.
Það var nokkru fyrir páska sem
Óskar Bergs-
son ti lkynnti
að hann drægi
framboð sitt til
baka og vantaði
þar með mann
í oddvitasætið í
borginni.
Guðrún Bryn-
dís Karls dóttir,
sem sk ipaði
annað sætið á upphaflega list-
anum, hefur sagt að enginn hafi
ráðgast við hana um nýjan lista
eða boðið henni fyrsta sætið.
Þess í stað fóru framsóknarmenn
þess á leit að Guðni tæki fyrsta
sætið.
„Við settum í feitan lax sem
var Guðni. Hann ákvað að taka
sér umhugsunarfrest en sagði að
lokum nei,“ segir Sigrún Magn-
úsdóttir, þingmaður og fyrr-
verandi borgarfulltrúi Fram-
sóknarmanna. Hún segir ljóst
að mörgum hafi staðið ógn af
Guðna. Menn hafi farið ham-
förum í gagnrýni á hann á meðan
hann var að hugsa sig um. „Margt
af því sem birtist á bloggsíðum og
víðar er ógeð,“ segir hún.
Vandræðum framsóknarmanna
virðist ekki lokið. Af við-
tölum við framsóknar-
menn í gær má ráða að
þeir leiti logandi ljósi að
einhverjum þekktum til
að skipa forystusætið.
Svo stutt sé í kosningar
að menn hafi ekki tíma til
kynna óþekktan frambjóð-
anda til leiks.
Siv Friðleifs-
dóttir, alþingis-
m a ð u r o g
fyrrverandi
ráðherra, var nefnd til sögunnar
fyrir páska sem hugsanlegur kandí-
dat í fyrsta sætið.
Í samtali við blaðið í gær sagð-
ist hún ekki á leið í framboð
og neitaði því að til sín
hefði verði leitað.
Þá hefur nafn
Sveinbjargar Birnu
Sveinbjörnsdóttur,
formanns Lands-
sambands framsókn-
arkvenna, borið á
góma. Hún hefur raunar lýst því
yfir í viðtali við mbl.is að hún hafi
gefið kost á sér í framboð.
Þórir Ingvarsson, formaður kjör-
dæmisráðs Framsóknarmanna í
Reykjavík, segir að nýr framboðs-
listi verði kynntur á þriðjudag í
næstu viku. Hann segist ekki
líta svo á að það sé einhver vand-
ræðagangur með listann.
„Vinna við listann er langt
komin, það er bara eftir að ganga
frá lausum endum,“ segir
Þórir. Hann vill ekkert
gefa upp með hver skip-
ar fyrsta sætið en segist
fylgjandi því að það verði
kona. johanna@frettabladid.is
Leitað að þekktum í framboð
Guðni Ágústsson hætti á elleftu stundu við að taka oddvitasæti hjá Framsókn í Reykjavík. Sigrún Magnús dóttir
segir menn hafa farið hamförum í gagnrýni á Guðna. Framsóknarmenn segja framboðsmálin vandræðaleg.
FRAMSÓKNARHEIMILIÐ Í REYKJAVÍK Gera má ráð fyrir að stíft sé fundað hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík eftir að Guðni
Ágústsson hætti við að leiða lista flokksins. Áður sagði Óskar Bergsson sig frá oddvitasætinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIGUÐRÚN BRYNDÍS
KARLSDÓTTIR
JAPAN, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti staðfesti í gær í Japan
að varnarsamningur Bandaríkj-
anna við Japan feli í sér að Banda-
ríkin þyrftu að bregðast við, fari svo
að Kínverjar reyni að sölsa undir
sig hinar umdeildu Senkako-eyjar.
Bæði Japanir og Kínverjar gera til-
kall til eyjanna.
Obama sagðist andvígur „einhliða
tilraunum til að grafa undan stjórn
Japana á þessum eyjum“.
Talsmaður kínverskra stjórn-
valda svaraði því til að Kína hefði
„óumdeild yfirráð“ á eyjunum og að
hið „svonefnda bandalag Japans og
Bandaríkjanna“ ætti ekki að skerða
þann yfirráðarétt.
Obama kom í gær í heimsókn
til Japans, en heldur svo þaðan til
Suður- Kóreu, Malasíu og Filipps-
eyja. Síðastliðið haust þurfti Obama
að hætta við fyrirhugað Asíuferða-
lag vegna þráteflis á Bandaríkja-
þingi um bandarísku fjárlögin.
Í gær átti hann fund með Shinzo
Abe, forsætisráðherra Japans og
hitti líka Akihito Japanskeisara. - gb
Bandaríkjaforseti segir varnarsamning við Japan gilda um Senkaku-eyjar:
Bandaríkin þyrftu að svara
BARACK OBAMA OG SHINZO ABE
Bandaríkjaforseti ásamt forsætisráð-
herra Japans í Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÉTT MYND KÖNN-
UNAR Á AKRANESI
SAMFÉLAGSMÁL Tuttugu og fimm
börnum og fjölskyldum þeirra,
rúmlega 150 manns, var afhentur
ferðastyrkur úr sjóð Vildarbarna
Icelandair í gær.
Markmið sjóðsins er að gefa
langveikum börnum og aðstand-
endum þeirra tækifæri til þess að
ferðast um heiminn.
Frá stofnun hafa 456 fjölskyldur
notið slíks stuðnings, eða um 2.300
einstaklingar. Þetta var 22. úthlut-
un sjóðsins og hans ellefta starfs-
ár. - kóh
Sjóður styrkir langveik börn:
150 fengu styrk
til ferðalaga
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SNÖGGKÓLNAR N-lands um helgina. Milt veður í dag og á morgun en kalt loft læðist
inn á land á laugardagskvöld og má búast við hita um og undir frostmarki N-lands á
sunnudag. Bjart S-lands næstu daga en dálítil væta svo él N-til.
5°
2
m/s
7°
3
m/s
9°
3
m/s
7°
5
m/s
Fremur
hægur
vindur
5-13 m/s
hvassast
NV-til
Gildistími korta er um hádegi
15°
30°
18°
15°
13°
13°
21°
15°
15°
22°
19°
18°
24°
23°
22°
21°
16°
24°
9°
2
m/s
7°
3
m/s
11°
4
m/s
8°
4
m/s
8°
5
m/s
7°
3
m/s
4°
2
m/s
8°
7°
5°
1°
10°
5°
10°
0°
9°
-1°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
SUNNUDAGUR
Á MORGUN
GUÐNI ÁGÚSTSSON SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR