Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 21

Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 21
ÆVINTÝRI MAXÍMÚSAR MÚSÍKÚSAR Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nýtt ævintýri um Maxímús Músíkús á morgun kl. 14. Tónelska músin Maxímús Músíkús er heimilisvinur fjölda barna á Íslandi en hefur einnig unnið hug og hjörtu barna og fjölskyldna þeirra í mörgum löndum Evrópu, Asíu og Ameríku. Tónleikarnir eru í Eldborgarsal Hörpu. NÝBREYTNI Ljúffeng chorizo- pylsan ásamt kjúklinga- baunum setur skemmtilegan svip á rétt dagsins. MYND/DANÍEL Matreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta- kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur uppskrift að kjúklingalærum með kjúklingabaunum og chorizo-pylsu í tómatkjötsósu. Hægt er að fylgj- ast með Úlfari elda þessa girnilegu máltíð í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo endursýndir yfir helgina. Einnig er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is. ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi. FYRIR 4 3 msk. olía 8 kjúklingalæri 1 laukur, skorinn í bita 200 g chorizo-pylsa í bitum 2 sellerístilkar í bitum 2-3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 1/2 -1 chillipipar, steinlaus og smátt saxaður Salt og nýmalaður pipar 1 dl sérrí, hvítvín eða vatn 400 g niðursoðnir tómatar 400 g niðursoðnar kjúklingabaunir, safinn sigtaður frá 21/2 dl kjúklingasoð eða vatn og kjúklingakraftur 1 kúrbítur, skorinn í bita 3 msk. steinselja, smátt söxuð Hitið olíu á stórri pönnu og steikið lærin í 4-5 mínútur eða þar til þau eru orðin fallega brúnuð. Bætið þá chorizo-pylsunni, selleríi, lauk, hvítlauk, chilli-pipar, salti og pipar á pönnuna og steikið áfram í u.þ.b. 7 mínútur. Þá er sérríi, kjúklinga- baunum, niðursoðnum tómötum, kjúklingasoði og kúrbít bætt á pönnuna og látið sjóða í 20-25 mín- útur eða þar til kjarnhiti á kjúklingalærunum sýnir 70°C. Stráið þá steinselju yfir og berið fram með t.d. salati og góðu brauði. KJÚKLINGALÆRI MEÐ KJÚKLINGABAUNUM OG CHORIZO-PYLSU Í TÓMATKJÖTSÓSU Hringdu nú na! Sæktu eða f áðu matinn send an heim 588 9899 HEILSURÉTTIR Fullir af trefjum, próteinum og góðum kolvetnum. Kryddaðir með ferskum hvítlauk, engifer og chilli. Án salts og sykurs. Eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Orka, kkal 92 Prótein 10,8 gr Kolvetni 10,2 gr Fita 1,4 gr 980 | 1340 065 Veitingahús Nings eru opin alla daga frá 11:30 til 22:00 - Suðurlandsbraut | Hlíðarsmári | Stórhöfði | www.nings.is Ugla Sumarbækur Uglu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.