Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 49
FÖSTUDAGUR 25. apríl 2014 | LÍFIÐ | 33 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Tónleikar 12.10 Tónleikarnir Hjartsláttur, úr tónleikaröðinni Andrými í litum og tónum, verða haldnir í Listasafni Íslands. Flutt verða tónverk eftir Claude Debussy, Jean Michel Damase og Eugéne Bozza. Flytjendur verða Berglind Stefánsdóttir, Dagný Marinós- dóttir, Emilía Rós Sigfúsdóttir og Karen Erla Karólínudóttir. 12.15 Hádegistónleikar Tríós Reykja- víkur í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur þar sem flutt verður Vorið úr Árs- tíðum Vivaldis með aðstoð nemenda úr Listaháskóla Íslands og Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Á tónleikunum verður leikið píanótríó eftir Beethoven op.1 nr. 1, en í aðalhlutverki er Vorið úr Árstíðum Vivaldi. Tónleikarnir eru á Kjarvalsstöðum og er aðgangur ókeypis. 20.00 Tónleikar Karlakórsins Þrasta ásamt hljómsveit í Víðistaðakirkju. 20.30 Haukur og félagar frumflytja nýja og spennandi tónlist Hauks í Kirkju- holli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. 21.00 Stúdíó Hljómur kynnir á ný tónleikaröðina/hljómsveitakeppnina Eflum íslenskt tónlistarlíf. Eins og áður er engin dómnefnd, heldur sjá áhorfendur alfarið um val á þeim hljómsveitum sem fá frí lög í upp- tökum. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Aeterna, Daedra, Skerðing, Hörmung og Rafmagnað. 21.00 Árstíðaskiptunum fagnað á Loft Hostel með tónlistarveislu. Skotinn Mick Hargan og Kanadabúinn Sarah Noni koma fram. Bæði eru þau söngvaskáld sem hlotið hafa fádæma viðtökur á tónleikum víða um heim. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Kanadíski tónlistarmaður- inn David Porteous kemur fram í Stúdentakjallaranum. David, sem býr í Toronto, er þrítugur tónlistar- og kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur samið tónlist fyrir fjölda kvikmynda og hlotið fyrir það ýmsar viðurkenn- ingar og tilnefningar. Aðgangur er ókeypis. Fræðsla 12.00 Hádegisleiðsögn í Hafnarborg um sýningarnar Shop Show og Hnallþóra í sólinni– Dieter Roth. Ópera 12.00 Tón- listarhópurinn Lýran verður með kynn- ingu á óperettunni Orfeus í Undirheim- um eftir Offenbach í hádeginu í Háteigskirkju. í óperett- unni Orfeus í Undirheimum eftir Offenbach er fjöl- breytt fjör í skemmtilegu sögusviði. Tónleikarnir taka um hálfa klukkustund en aðgangseyrir er 1.000 krónur. Sýningar 17.00 Unnur Óttarsdóttir, meistara- nemi í myndlist við Listaháskóla Íslands, opnar einkasýningu í Kubbn- um, sýningarrými myndlistardeildar að Laugarnesvegi 91. 21.00 Tamara Vickokova og Rafael Elders setja fram spurningu um ein- hverfu í sýningunni Ef þú gefur mér smá tíma … á Litlu Kaffistofunni, Hverfisgata 44. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is „Við erum að gera þetta til þess að gefa ungum og efnilegum hljóm- sveitum ákveðinn stökkpall og byr í seglin,“ segir Kristján Haralds- son, eigandi Stúdíó Hljóms. Hann stendur fyrir keppni sem kallast Eflum íslenskt tónlistarlíf og fer keppnin fram á Gamla Gauknum í kvöld, í formi tónleika. „Þetta eru tónleikar á Gauknum þar sem sveitirnar koma fram og keppast um að fá að taka upp lag frítt í Stúdíói Hljóm,“ útskýrir Kristján. Áhorfendur á svæðinu kjósa svo í lýðræðislegum kosning- um sigurvegarana og er því engin sérstök dómnefnd að dæma. Hver hljómsveit hefur fimmtán mínútur til þess að heilla áhorfendur. „Það eru bönd að taka þátt sem hafa til dæmis tekið þátt í Músík- tilraunum. Til dæmis í fyrra tók hljómsveitin In The Company of Men þátt en hún hafði skömmu áður lent í öðru sæti í Músíktilraunum.“ Kristján segir það ekki sjálf- gefið að ungar hljómsveitir fái svona tækifæri en þetta er í sjötta sinn sem hann stendur fyrir svona keppni. „Þetta hefur alltaf gengið mjög vel og hefur salurinn ávallt verið þétt setinn. Það er líka gaman að sjá hljómsveitirnar kynnast, því oft sér maður hljómsveitir spila saman á tónleikum eftir að hafa spilað í þessari keppni og vinskapur myndast,“ bætir Kristján við. Allir tónleikarnir eru teknir upp og upptökurnar verða svo spilaðar í útvarpsþættinum Skúrinn á Rás 2 á næstunni. Í kvöld keppa hljóm sveitirnar Aeterna, Daedra, Skerðing, Hörmung og Rafmagnað. Húsið opnar klukkan 21.00 og fyrsta sveit stígur á stokk á slaginu 22.30. Það er frítt inn á tónleikana. - glp Stökkpallur fyrir ungar og efnilegar hljómsveitir Áhorfendur velja sigurvegara hljómsveitarkeppninnar í lýðræðislegri kosningu. SÍÐUSTU SIGURVEGARAR Hljómsveitin In the Company of Men sigraði í síðustu keppni. FÖSTUDAGUR VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ . Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu. Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn. MAZDA. DEFY CONVENTION. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. * Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn. 5 stjörnu öryggi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.