Fréttablaðið - 26.05.2014, Side 6
26. maí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Plötusala Múrbúðarinnar
er á Kletthálsi
Furukrossviður
Birkikrossviður
Mótakrossviður
Gólfplötur - rakavarðar
spónaplötur með nót
Veggplötur með nót
Skrúfur og festingavörur
Sökkuldúkur
i 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.isSím
PEFC/01-31-60
www.pefc.org
thálsi 7 Reykjavík – Fuglavík 18 Reykjanesbæ Klet
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
MANNRÉTTINDI „Við segjum ekki
að við ætlum að taka þessa lóð til
baka af því okkur er illa við mús-
lima. Það er bæði galið og sérkenni-
legt að oddvitar pólitískra framboða
séu að setja slík mál á oddinn,“ segir
Anna Kristinsdóttir, mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar.
Anna segir Íslendinga aðila að
fjölda alþjóðlegra sáttmála um
mannréttindamál sem banni mis-
munun. Í mannréttindakafla stjórn-
arskrárinnar sé mismunun einn-
ig bönnuð. Því sé sérkennilegt ef
einstaka stjórn-
málamenn telji sig
yfir það hafna að
fara að ákvæðum
alþjóðasáttmála og
stjórnarskrár.
Anna bendir á að
European Comm-
ission for Racism
and Intolerance
(ECRI) hafi nokkrum sinnum gert
athugasemdir við tregðu borgar-
yfirvalda til að úthluta múslimum
lóð undir mosku. Tekið hafi 14 ár
fyrir múslima
að fá lóðina. Hún
verði ekki tekin
af þeim aftur.
Ummæli Svein-
bjargar Birnu
Sveinbjörnsdótt-
ur, um að aftur-
kalla ætti úthlut-
un lóðar fyrir
mosku í Sogamýri í Reykjavík, hafa
vakið hörð viðbrögð. „Auðvitað fylg-
ist ECRI stöðugt með því sem gerist
hér. Við tökum allar athugasemdir
frá þeim mjög alvarlega,“ segir
Anna og efast ekki um að ECRI hafi
fregnað af ummælum Sveinbjargar.
Sverrir Agnarsson, formaður
Félags múslima á Íslandi, hefur
varpað þeirri spurningu til Svein-
bjargar Birnu hvort hún vilji að
Reykjavík fái þann dóm frá Evr-
ópuráðinu, þar sem Ísland er meðal
stofnaðila, að Reykjavík mismuni
fólki á grundvelli trúarbragða og
sendi þau skilaboð til umheimsins
að múslimar séu ekki velkomnir á
Íslandi. - jme
Mannréttindastjóri Reykjavíkur segir að mannréttindasamtök fylgist með ummælum Sveinbjargar:
Fer ekki að ákvæðum alþjóðlegra sáttmála
SVERRIR
AGNARSSON
ANNA
KRISTINSDÓTTIR
1. Hvernig snjallsímaforrit er Tinder?
2. Hvaða fölsuðu lyf eru algengust á
svörtum, íslenskum markaði?
3. Hvert er þriðja skuldugasta sveitar-
félagið á Íslandi?
SVÖR
1. Stefnumótaapp 2. Stinningarlyf á borð
við Viagra 3. Reykjavíkurborg
NÁTTÚRA Ljósmyndir teknar
í hvalaskoðunarferð úti fyrir
ströndum Skotlands hafa rennt
frekari stoðum undir kenningar
um far háhyrninga á milli Íslands
og Bretlandseyja. Það var í krafti
samfélagsmiðla að það sannaðist
að háhyrningur sem dvaldi fyrir
stuttu í síldarveislunni inni í Kol-
grafafirði hafði fært sig á milli
landa í ætisleit.
Því er slegið upp í fjölmiðlum í
Skotlandi að vísindagáta hafi verið
leyst á dögunum þegar áhugaljós-
myndari í hvalaskoðunarferð tók
mynd af hópi háhyrninga úti fyrir
strönd norðvesturhluta Skotlands.
Myndirnar rötuðu á Facebook-
síðu hvalaskoðunarfyrirtækisins
og dreifðust þannig hratt á meðal
hvalaáhugafólks.
Hringnum var lokað þegar
melding barst frá Íslandi, nánar
tiltekið frá Filipu Samarra, sem
hefur um tíma starfað á Hafrann-
sóknastofnun við háhyrninga-
rannsóknir með styrk frá Rannís.
Filipa upplýsti að einn háhyrning-
anna sem voru á ferð við Skotland
hafði fyrir nokkrum vikum verið
á ferð í Kolgrafafirði, og er meðal
vísindamanna þekktur sem IF-4.
Því er haldið fram í skosk-
um fjölmiðlum að aldrei fyrr
hafi þessi tenging verið gerð við
háhyrninga sem lifa hér og við
Bretlandseyjar, og flakka á milli
þegar hentar.
Filipa segir að mikilvægið liggi
í að grunur um ferðir háhyrning-
anna innan ársins sé nú staðfest-
ur, en ekki að dýrin flytji búferlum
og eigi ekki afturkvæmt. „Háhyrn-
ingarnir virðast dvelja yfir vetur-
inn í síldaráti en á sumrin færa
þeir sig til Skotlands – hugsanlega
í aðra bráð,“ segir Filipa.
Í rannsókn hennar eru mynd-
ir frá Vestmannaeyjum, Breiða-
firði og einnig Faxaflóa nýttar
til að rannsaka far hvalanna. „En
staðirnir geta verið óteljandi sem
þeir geta haldið sig á, svo myndir
sem við fáum frá almenningi geta
verið ómetanlegar í þeirri viðleitni
að skrá ferðir þeirra hér á Íslandi
og um allan heim,“ segir Filipa, en
frekari upplýsingar um rannsókn-
ir hennar má finna á vefsíðunni
icelandic-orcas.com.
svavar@frettabladid.is
Ferðir hvala skýrast
með hjálp Facebook
Kraftur samfélagsmiðla skýrir myndina af ferðum háhyrninga. Myndir teknar við
Skotland voru greindar á Íslandi og reyndist gamalt kvendýr í háhyrningakatalóg
Hafró frá 9. áratugnum vera þar á ferð – og hafði stuttu áður sést í Kolgrafafirði.
Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, segir það ekki nákvæmt að nú hafi í fyrsta
skipti verið sannað að háhyrningar flakki á milli landa.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sýnt er fram á ferðir
háhyrninga milli Íslands og Skotlands með ljósmyndum.
Það gerðum við 2009 og birtum niðurstöðurnar í grein.
Þetta er þó býsna merkilegt því dýrið sást bara fyrir
stuttu í Kolgrafafirði svo tímasetning ferðarinnar liggur
þá fyrir. Einnig að dýrið er gamalt, þekkt úr háhyrninga-
katalóg Hafró frá níunda áratug síðustu aldar,“ segir Gísli.
Þekkt dýr úr háhyrningakatalóg Hafró
IF-4 Hvern og einn hval má þekkja á bakugga eða öðrum auðkennum, rétt eins og
fingraför manna. MYND/WWW.ICELANDIC-ORCAS.COM
TAÍLAND, AP Aðalhershöfðingi taílenska hersins, Pray-
uth Chan-ocha, hefur varað fólk við því að mótmæla
valdtökuaðgerðum hersins, og halda sig heima.
Hann segir að í augnablikinu eigi lýðræðisgildi
ekki við.
Eftir valdatökuna hafa tugir stjórnmálamanna
og mótmælenda verið settir í varðhald, en talsmað-
ur hershöfðingjans segir kyrrsetninguna ekki munu
vara lengur en rúma viku, og að hún sé lögmæt.
Einnig hefur hann fyrirskipað mörgum blaðamönn-
um, aðgerðasinnum og fræðimönnum að ganga hern-
um á hönd, svo hann geti haft hemil á gagnrýni og
mótstöðu við aðgerðir sínar.
Herinn heldur flestum þingmönnum ríkisstjórnar-
innar föllnu föngnum á leyndum stöðum, og segist
ætla að viðhalda þeirri stöðu í rúma viku, til þess að
„gefa sér næði til að íhuga málin“, og viðhalda friði
og ró í landinu.
Prayuth réttlætir valdtökuna með þeim rökum að
herinn ætli að binda enda á pólitískar óeirðir sem
hafa geisað í landinu í rúmt hálft ár.
Prófessor við Kyoto-háskóla í Japan sagði aðgerðir
hershöfðingjans benda til óöryggis.
„Þetta snýst ekki um enduruppbyggingu lýðræðis-
ins, heldur afturför að valdboðsstjórn.“ - kóh
Almenningur hvattur til að halda sig frá mótmælum gegn valdtökunni:
Herinn tekur völdin í Taílandi
Í BANGKOK Hermenn dreifa sér um götur Bangkok, höfuðborgar
Taílands, til þess að koma í veg fyrir mótmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?