Fréttablaðið - 26.05.2014, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 26. maí 2014 | FRÉTTIR | 11
*Gegn fra
mvísun m
iðans. Klip
ptu út mið
ann og tak
tu hann m
eð þér í A
pótekaran
n.
gegn fram
vísun mið
ans.1.000 kr. afsláttur
PI
PA
R
\
TBB
W
A
S
ÍA
1
41
5
6
6
Einn miði
veitir 1.00
0 kr. afslá
tt
ef verslað
er fyrir 5
.000 kr. e
ða meira.
Gildir til 5
. júní 2014
.
Er Apótekarinn
nálægt þér?
Gildir ekk
i fyrir lyf
sem heyr
a undir g
reiðsluþá
tttöku Sjú
kratryggi
nga Íslan
ds.
Gildir ekki fyrir lyf sem heyra undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
námskeið
Skráning í síma
581 1281
"Crash course"
í júní
Einkatímar
2x í viku í 4 vikur
Skráning er hafin
www.gitarskoli.is
gera gangskör að því að koma þeim
sem geta unnið í vinnu. Því þurfi að
halda áfram.
Vilja skilyrða fjárhagsaðstoð
„Við stofnuðum nýja atvinnumála-
deild sem hefur það verkefni að
koma þeim sem eru í fjárhagsað-
stoð í virkni,“ segir Dagur.
Sveitarfélög hafa ekki heimild
til að skilyrða fjárhagsaðstoðina,
en Dagur segir Samfylkinguna
vilja að lögum verði breytt til að
slík heimild fáist.
„Okkur finnst ekki eðlilegt að
námsmaður geti rölt inn á hverfa-
miðstöð og fengið fjárhagsaðstoð
yfir sumarið í stað þess að fá sér
vinnu,“ segir Dagur. Hann tekur
þó fram að sá hópur sem fái fjár-
hagsaðstoð frá borginni sé mjög
fjölbreyttur og ekki geti allir í
þeim hópi unnið.
Samfylkingin leggur áherslu á
fjölbreytni í atvinnulífinu. Dagur
segir sérstaka áherslu lagða á að
laða til borgarinnar ferðamenn
sem versli og noti þjónustu í
Reykjavík og skilji þar af leiðandi
mikið eftir í borginni. Þá segir
hann mikla áherslu lagða á skap-
andi greinar.
Þarf hærri fjárhagsaðstoð
Það er mikilvægt að hækka fjár-
hagsaðstoð þannig að hægt sé að
lifa af aðstoðinni, segir Sóley Tóm-
asdóttir, oddviti Vinstri grænna.
Flokkurinn er einnig með það á
stefnuskrá sinni að hækka húsa-
leigubætur þannig að leigumark-
aðurinn verði raunhæfur kostur.
„Við erum algerlega andvíg því
að skilyrða fjárhagsaðstoðina,“
segir Sóley. Hún segir mikilvægt
að bjóða upp á fjölbreytt úrræði til
að auka virkni þeirra sem þiggja
aðstoð, en hafnar því algerlega að
skilyrða aðstoðina.
„Þetta er síðasta úrræðið fyrir
fólk, ef við höfnum einhverjum
um þessa aðstoð erum við þar með
hætt að vera velferðarsamfélag,“
segir Sóley.
Vinstri græn vilja byggja á fjöl-
breyttu atvinnulífi með áherslu á
ferðaþjónustu, sjávarútveg, rann-
sóknir, nýsköpun og skapandi
greinar. Sóley bendir á að borg-
in sé einn stærsti vinnustaður
landsins og leggja verði áherslu
á atvinnumál ungs fólks með fjöl-
breyttum sumarstörfum og virkni-
verkefnum.
Allir sem geta unnið fái vinnu
Björt framtíð vill áframhaldandi
áherslu á átaksverkefni borgar-
innar með Vinnumálastofnun, sem
hafa gert það að verkum að fjöldi
fólks hefur sloppið við að festast
í varanlegu atvinnuleysi, segir
Sigurður Björn Blöndal, oddviti
flokksins í Reykjavík.
„Við viljum að öllum sem geta
unnið en eru á fjárhagsaðstoð verði
boðin vinna eða virkniúrræði,“
segir Björn. „Sumir kalla það skil-
yrðingu, en við erum með þessu
að reyna að hjálpa fólki til virkni.
Fjárhagsaðstoðin er mikilvægt
neyðarúrræði, en ekki eitthvað sem
fólk ætti að þurfa í langan tíma.“
Hann segir að meta þurfi stöðu
þeirra sem fá fjárhagsaðstoð reglu-
lega með tilliti til þess hvort þeir
eru vinnufærir eða ekki. Augljóst sé
að fólk sem er í mikilli neyslu geti
verið óvinnufært, og ekki hægt að
þvinga það í úrræði gegn þess vilja.
Þarf að endurskoða reglurnar
„Það er mikilvægt að endurskoða
reglur borgarinnar um velferðar-
mál,“ segir Sveinbjörg B. Svein-
björnsdóttir, oddviti Framsókn-
ar og flugvallarvina. Framboðið
hefur ekki mótað sér stefnu í þess-
um málaflokki.
Hún nefnir sem dæmi að náms-
maður sem er á vanskilaskrá geti
ekki fengið framfærslulán hjá
banka meðan hann bíður eftir
námslánum, og eðlilegt að borg-
in láni fyrir framfærslu í slíkum
tilvikum.
Sveinbjörg segir að samræma
ætti atvinnumál fatlaðra og ófatl-
aðra. Borgin sjái í dag um atvinnu-
mál fatlaðra, en ríkið sé með
ófatlaða. Hún hefur ekki myndað
sér skoðun á því hvort færa ætti
málaflokkinn allan til ríkisins eða
sveitarfélaganna en skoða verði
það mál út frá heildarhagmunum.
Á FERÐ Í REYKJAVÍK Þegar fólk hefur verið atvinnulaust í þrjú ár missir það rétt til
atvinnuleysisbóta. Þá er hægt að leita til sveitarfélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL