Fréttablaðið - 26.05.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.05.2014, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSING MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2014 Íslensk Ameríska fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir. Fyrirtækið hefur rekið í um 9 ár svokallaða horeca deild en nafn hennar er dregið af ensku orðunum hotel, res- taurant og catering. Deildin sérhæfir sig í stóreldhúsvörum og vörum fyrir matvælaiðnað. Ísam hefur það markmið að vera með heildarlausnir fyrir alla í fageldhúsum og matvælaiðnaði. Ísam Horeca samanstendur af fagfólki úr flestum geirum veitinga og matvælaiðnaðar sem hefur mikla þekkingu og ástríðu fyrir matargerð ásamt því að kappkosta að vera með lipra og góða þjónustu. Að undanförnu hefur Ísam Horeca sankað að sér gæða vörumerkjum frá Ítalíu. Ítalir eru frægir fyrir pasta, ís, pizzur, pestó og aðrar gourmet vörur. Ísam telur sig hafa bestu fáanlegu vörur í þessum flokkum. Hjá Ísam Horeca má finna Saclavörur fyrir stóreldhús og þar ber helst að nefna pestó, ólífur, baunir, sósur, niður- soðið grænmeti og olíur í hæsta gæðaflokki. Sacla hefur verið á matvörumarkaði í mörg ár og margir íslendingar þekkja vörurnar en nú eru þær loksins fáanlegar í stóreld- hússtærðum. Ef þú vilt ekta ítalska pizzu þá mælir Ísam með Polselli hveiti. Hveitið er sérstakt að því leyti það er próteinríkt, þolir mjög háan hita, hefur mikla teygju og bindur í sig mikið vatn. Frá Polselli er einnig hægt að fá sérstök hveiti fyrir panettone, croissant, biscotti og kökur. Dececco pasta er þekkt um heim allan og er stærsta vöru- merkið í pasta á Ítalíu. Ísam er með nokkrar tegundir af pasta í stóreldhússtærðum ásamt hágæða ólífuolíu. Ísgerð er ástríða og tækni sem ítalir hafa fullkomnað og því hefur Ísam Horeca sótt þekkingu sína í ísgerð þangað. Nú á næstu dögunum hefja þeir sölu á ísgerðarefnum frá Fabbri sem er 110 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ísvörum. Hægt er að fá hjá Ísam Horeca bragðefni, hjálparefni, sósur, ísbox, skeiðar og fleiri vörur tengdar ís. 50 ára afmæli 1 EFSTA HILLAN Gott er að geyma hér hluti sem notaðir eru oft, á borð við jógúrt, osta og sósur. Mjólk er líka gott að geyma hér. Ef mjólk er geymd í hillu á hurð kemst hún í snertingu við heitt loft í hvert sinn sem ísskápurinn er opnaður og endist ekki eins lengi. Raðað rétt í ísskápinn Ekki er sama hvernig gengið er um ísskápa. Til að matvælin geymist sem best þarf að raða rétt í skápinn, stilla hann rétt og passa að hlaða ekki of miklu í hann. Þá skal einnig að hafa í huga að sum matvæli eiga alls ekki heima í ísskáp. Tómatar verða bragðlausir af því að vera í ísskáp og fá auk þess óspennandi áferð. Þá hafa tómatar einnig slæm áhrif á aðra ávexti eða grænmeti þar sem þeir gefa frá sér efni sem veldur því að þau skemmast fyrr. Tómata skal geyma í skál eða körfu á borðinu. Basilíka skemmist hraðar í ísskápnum og dregur í sig lykt frá matnum í kring. Best er að geyma hana á borði. Kartöflur geymast illa í ísskáp og ætti fremur að geyma í pappírspoka á svölum – en ekki köldum – stað. Laukur myglar hraðar í ísskáp vegna raka. Hann ætti fremur að geyma á þurrum og svölum stað en ekki nálægt kartöflunum því saman skemmast þessar tegundir hraðar. Hvítlaukur spírar fyrr í ísskápnum. Betra er að geyma hann á svölum, þurrum stað. Brauð á alltaf að geyma á borðinu, helst í plastpoka þar sem það verður þurrt í ísskáp. Ólífuolía geymist best á svölum, dimmum stað. Kaffi tapar bragði og dregur í sig lykt úr ísskápnum. Best er að geyma kaffi á svölum, dimmum stað. Hunang getur kristallast og orðið óspennandi í ísskáp. Sum matvæli ætti ekki að geyma í ísskáp 1 2 3 4 5 2 MIÐHILLAN Hér má geyma eldað kjöt í lokuðum umbúðum. Þá er einnig gott að geyma egg í miðhillunni þar sem hiti ísskápsins er stöðugastur. Egg á að geyma í sínum upprunalegu umbúðum. 3 NEÐSTA HILLAN Í kaldasta hluta ísskápsins er best að geyma hrávörur eins og ferskan fisk og ferskt kjöt. Þannig getur safi sem lekur af slíkum vörum ekki mengað vörur fyrir neðan. Sumir mæla einnig með að mjólkin sé geymd í mesta kuldanum. 4 SKÚFFUR Ávexti og grænmeti á að geyma í neðstu skúffunum. 5 HILLUR Í HURÐ Hitastigið í hurðinni er síbreytilegt. Því er best að geyma þar sultur, tómatsósur, salatdressingu og ýmsan krukkumat. Einnig ávaxtasafa sem er gerilsneyddur. Þá má setja í lokuðu hillurnar smjör og mjúka osta sem þurfa ekki mikinn kulda. EKKI TROÐA Ekki er gott að troða of miklu í ísskápinn. Þá aukast líkur á að hitinn verði of hár og matvörur skemmist fyrr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.