Fréttablaðið - 26.05.2014, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 26.05.2014, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 26. maí 2014 | SKOÐUN | 13 „Aðal ungrar þjóðar / orðin voru forðum …“ Þannig hefst Margrét- arlof Þórarins Eldjárns sem hann flutti Danadrottningu á dögun- um í tilefni af nýjum þýðingum á Íslendingasögunum sem eru að koma út í Danmörku. Sofandi Noregskonungur Síðast flutti íslenskt skáld nor- rænum þjóðhöfðingja drápu á sjötta áratug síðustu aldar í Íslandsheimsókn Ólafs Noregs- konungs sem hlýddi kvæði Davíðs Stefánssonar, og herma áreið- anlegar samtímaheimildir að konungur hafi sofið með hljóð- um þrátt fyrir volduga rödd og annálaða orðkynngi skáldsins. Því var aldeilis ekki að heilsa hjá Þórarni og Margréti eins og sést á upptöku frá athöfninni sem hægt er að sjá á netinu. Öðru nær: hið besta var kvæðið flutt. Drottning hlýðir með lifandi athygli enda búin að sjá danska þýðingu og veit hvað er á seyði. Þetta er falleg athöfn, virðuleg en líka innileg, hlýleg og brosmild: enginn tekur sig of hátíðlega, hvorki skáld né þjóðhöfðingi, en bæði þekkja og virða sameiginlega sögu þjóð- anna. Svona eigum við að nálgast Dani af reisn – en aldrei fram- ar með því að kaupa undan þeim fræg hótel og stórmagasín út á krít eða fara í mannjöfnuð um viðskiptamál eins og henti á al- kjánalegasta niðurlægingarskeiði útrásarinnar. Þórarinn minnir okkur öll á mikilsverð sannindi nú á þess- um tímum þegar enn virðist ekki ætla að takast að finna meðal- hófið milli hins hömlulausa sjálfs- haturs og blygðunarlausrar sjálfs- upphafningar, þegar ekki er hægt að kynna verðug áform um aukin framlög til rannsókna og mennta án þess að því þurfi að fylgja heit- strengingar um að skara fram úr öllum öðrum. Þórarinn minnir okkur á þetta: Íslendingar kunna að hafa orðið maklega að spotti um víða veröld vegna fjármála- umsvifa sinna en samt ferst þeim sumt vel úr hendi: ekki síst að búa til list. Eru þeir þá bestir í heimi í því? Það eru þeir ekki, en það má alveg halda á lofti því sem vel er gert og gott í íslenskri menningu. Þegnar Óðins Og í framhaldi af þessu er rétt að árétta enn einu sinni að hug- myndin um útrásarvíkingana, sem komnir væru í beinan karl- legg frá þeim víkingum sem stóðu í stórræðum við að henda börn á spjótsoddum, bíta fólk á barkann, æla skyri á mann og annan, ræna, myrða, nauðga, brenna, rústa og kúga – sú sjálfs- mynd var byggð á vissu þekk- ingarleysi á sögunni. Í fyrsta lagi var það undarleg hugmynd að eftirsóknarvert væri að samsama sig slíkum rumpulýð og nota hana síðan til að réttlæta strandhögg í sparifé annarra þjóða eins og Ice- savereikningarnir voru til vitnis um, og í öðru lagi var rangt að slíkur ránskapur væri sérstak- lega arfur Íslendinga og þeim í blóð borinn, umfram til dæmis það að temja sér nægjusemi við lítil efni. Íslendingar voru aldrei vík- ingar í þessum skilningi. Það sem hins vegar var dálítið sérstakt í íslenskri miðaldamenningu og var ríkjandi í fari furðu margra manna af ólíku standi og mis- jöfnun stéttum frá elstu tíð og gegnum aldirnar og allt fram á síðustu ár var útbreidd árátta að stunda skriftir af einhverju tagi. Það lýsti sér í endalausum kvæð- um þar sem skáldið ætlaði aldrei að geta hætt, þáttum af minnis- verðu og merku fólki, ættartölum þar sem menn röktu sig til þeirra frænda Adams og Óðins; algengt var að skrifa upp sálma, gaml- ar sögur og jafnvel semja nýjar sögur í anda riddarasagna, sem lýsa innvirðulegum ævintýrum hugprúðra riddara og hispurs- meyja. Stundum er talað um að á Íslendinga hafi löngum herjað tveir þjóðarsjúkdómar: alkóhól- ismi og grafómanía, skrif æði, sú árátta að mega helst ekki óskrif- andi vera. Skiljanlegt er að margt fólk vilji gjarnan sækja sjálfsmynd sína í eitthvað annað – og ekk- ert því til fyrirstöðu – en þó að maður leggi ekki stund á bók- menntir er allt í lagi að hafa í huga að Íslendingar eiga þennan ríka arf, og þá er ekki einungis um að ræða Íslendingasögurn- ar eða Passíusálmana eða önnur slík eftirlætisverk, heldur hafa hér verið ritaðar ágætar alþýðu- bókmenntir fram á síðustu ár. Þessi arfur þarf ekki að birt- ast í bókagerð á okkar stafrænu tímum; hann getur allt eins birst okkur sem fremur útbreidd gáfa til að skynja umhverfi sitt í lík- ingu listar, í frásögn, metafóru, hreyfingu, söng – að rýminu sem „listamaðurinn vinnur með“. Íslendingar voru aldrei vík- ingar í þeim skilningi að þeir hafi unnvörpum staðið í sjóránum eða kaupskap. Þeir voru ekki þannig fólk. Þeir voru ekki valdamikl- ir á evrópska vísu. En þeir töldu að vísu sjófarendum sem hingað komu trú um að þeir gætu selt þeim byr, að því er heimildir herma frá 15. öld. Þeir réðu yfir vindum með orðkynngi sinni – að eigin sögn. Vald sitt sóttu þeir í orðin, sem þeir tvinnuðu saman af æ meiri hugkvæmni og bundu í sífellt flóknari bragarhætti, sem þeir notuðu til að sveipa list sína kynngi hins ókennilega. Kóng- arnir sátu gapandi og hlustuðu á íslensku skáldin kyrja og spinna þeim frægð með þulum sínum. Á sínu stórveldisskeiði réðu Íslend- ingar yfir sjálfri Sögu, þeir voru dyraverðir Orðstírsins; þegnar Óðins og stjórnuðu eftirmælum konunga. Þeir voru pappírsvík- ingar. Íslendingar voru pappírsvíkingar Á sínu stórveldis- skeiði réðu Íslend- ingar yfir sjálfri Sögu, þeir voru dyraverðir Orðstírsins; þegnar Óðins og stjórnuðu eftirmælum konunga. Þeir voru pappírsvíkingar. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Magnús Halldórsson @MaggiHalld Vika í kosningar. Framsókn er ekki með mann inn í Reykjavík, Hafnarfirði eða Kópavogi. 57 prósent Íslendinga búa á þessum stöðum. Súrrealískt. Einar Bardar @Einarbardar Framsókn á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur ......#x14 Bragi Valdimar @BragiValdimar Hugur minn á þessum erfiðu tímum er hjá þeim feðrum sem staddir eru á singalong-sýn- ingu Frozen. #hugurminn Kristín Soffía @KristinSoffia Þjóðin sýnir múslim- um stuðning í verki með því að hætta að borða svínakjöt. TÍSTIÐ AUKIÐ JAFNRÉTTI – AUKIN HAGSÆLD UN Women á Íslandi, Festa og Samtök atvinnulífsins (SA), í samstarfi við Jafnréttisstofu, bjóða til opinnar ráðstefnu þann 27. maí næstkomandi um stöðu og þróun jafnréttismála á atvinnumarkaði undir yfirskriftinni „Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld“. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Styrktaraðili ráðstefnunnar er Actavis á Íslandi. Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi þess að fyrirtæki setji jafnréttismál á oddinn út frá viðskiptalegum forsendum og samfélagsábyrgð. Rætt verður um mikilvægi þess að hafa blandaðar stjórnir og stjórnendur í fyrirtækjum bæði út frá jafnréttissjónarmiðum og af þeirri einföldu ástæðu að teknar eru betri ákvarðanir fyrirtækjum til heilla. Jafnframt verður rætt um Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact (WEP), stefnu og innleiðingu. Hluti af aðgangseyri ráðstefnunnar rennur til UN Women í þágu valdeflingar kvenna á atvinnumarkaði. Skráning á ráðstefnuna fer fram á www.sa.is 9.800 krónur f. hádegi (innifalið í verði er léttur morgunverður) 15.900 krónur allur dagurinn (innifalið í verði er hádegisverður og léttar veitingar yfir daginn) 8.10 Skráning og kaffi 8.30 Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona stýrir fundi 8.40 Sigurborg Arnarsdóttir formaður Festu 9.00 Gena Lovett, Global Chief Diversity Officer hjá Alcoa 9.20 Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur Jafnréttisstofu 9.30 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi 9.50 Rep. Kristin Hetle, Director, UN Women NY 10.20 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA 10.40 Pallborðsumræður í kjölfar erinda 11.20 Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhendir í fyrsta sinn Hvatningarverðlaun jafnréttismála 11.40 Fyrirtæki skrifa undir Jafnréttissáttmálann 12.00 Hádegishlé 13.00 Vinnustofur UN Women, Festu og SA í samstarfi við Jafnréttisstofu og fleiri. Stefnumótun í jafnréttismálum, staðlar – lög- og viðmið, markmið, innleiðing, skýrslugjöf, endurmat og árangur KR. Þriðjudagur 27. maí · Hilton Reykjavík Nordica D A G SK R Á Halldór Halldórsson @DNADORI Höndlaðu mig af varfærni. Halldór Auðar Svans @tharfagreinir Bjarni Ben vildi þjóðar- atkvæðagreiðslu um ESB. Vill núna að fólk geti krafist þeirra um lög (= á ekki við um ESB-mál). Svikin í hnotskurn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.